Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 66
■ SMÁSJÁIN
Frír aðgangur að gagna-
söfnum um heilbrigðismál
Samið hefur verið um aðgang fslendinga
að ýmsum gagnasöfnum á nelinu, meðal
annars um heilbrigðismál. Meðal þeirra
safna sem gerð hafa verið aðgengileg
öllum þeim er hafa tengingu sem
uppfyllir öryggiskröfur eru: ProQuest
Medical Library með aðgengi að 230
tímaritum um læknisfræði, hjúkrun og
lyfjafræði. Pessi grunnur var valinn besti
gagnagrunnur ársins í Information
Today. Ennfremur má nefna ProQuest
Health með greinum úr 170 tímaritum
um læknisfræði, hjúkrun, tannlækningar
og stjórnum sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva. Nánari upplýsingar er að finna á
vef Menntamálaráðuneytisins: www.
stjr.is/mrn
Af vef Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis
Sjúklingar nota netið
Kannanir sýna að um 60 milljónir
Bandaríkjamanna (af 265 milljónum)
leituðu sér upplýsinga um heilsufars-
málefni á veraldarvefnum árið 1998.
Hins vegar hefur fram til þessa skort
upplýsingar um á hvern hátl netið er
notað í þessu skyni. Könnun var gerð
meðal rúmlega 1000 göngudeildar-
sjúklinga á meltingarsjúkdómadeildum í
Durham í Norður-Karólínu og Rockford
í Illinois í ágústmánuði 1999 og þykir hún
varpa nokkru ljósi á notkun sjúklinganna
á veraldarvefnum. Svörun í könnuninni
var mjög há, eða 92%. Meðalaldur
svarenda var 53 ár, 59% svarenda voru
konur og meðalsvarandi hafði eitthverl
háskólanám að baki. Um helmingur
svarenda hafði aðgang að netinu og af
þeim fjölda notaði rétt rúmlega
helmingur netið til að leita sér upplýsinga
um heilbrigðismál og sjúkdóma en þar af
aðeins 4% vegna þess að læknirinn þeirra
hafði bent þeim á það. Þegar litið var
fram á við sögðust um 60% allra
sjúklinganna ætla að nota netið til að afla
sér upplýsinga um heilsufarsmálefni í
framtíðinni.
JAMA Vol. 284 No. 15.18. október, 2000.
stað og vissa bráðamóttöku hjartasjúklinga
á öðrum, svo dæmi sé tekið. Kerfið er allt of
flókið og reksturinn verður óhjákvæmilega
dýrari en hann þyrfti að vera. Þetta þýðir í
reynd að það þarf að leggja út í
umtalsverðar íjárfestingar í byggingamálum
spítalans á næstu 10 árum. Stór hluti
núverandi bygginga bæði á Landspítala-
lóðinni við Hringbraut og í Fossvogi var
hannaður fyrir sjúkrahússtarfsemi eins og
hún var fyrir 30-50 árum og uppfylla því ekki
kröfur um nútíma háskólasjúkrahús. Ef litið
er á rekstur sjúkrahúss þá eru um 70% af
kostnaðinum vegna launa starfsmanna á
meðan húsnæðiskostnaður er innan við
10%. Með því að ná hagkvæmni í manna-
haldi er hægt að ná hagkvæmni í heildar-
rekstri sem gæti réttlætt að farið væri út í
stórar fjárfestingar eins og að koma starf-
seminni í eitt hús.“
Telur þú að þessar hugmyndirfái brautar-
gengi?
„Já ég er bjartsýnn á það. Eg veit að
Islendingar gera miklar kröfur um gæði
heilbrigðisþjónustu og munu ekki sætta sig
við lakari þjónustu en í nágrannalöndunum.
Þrátt fyrir að við höfum að miklu leyti náð
að halda í við þær þjóðir sem lengst hafa náð
á heilbrigðissviði á undanförnum árum, er
hætt við að við drögumst aftur úr á sviði
hátæknisjúkrahúsa ef við förum ekki að
vakna. En það eru ýmis góð teikn á lofti í
þeim efnum. Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni- og eignasviðs, og hans
samstarfsmenn á Landspítalanum hafa
þegar unnið mjög gott starf á þessu sviði.
Þeir hafa meðal annars kallað erlenda, sér-
hæfða sjúkrahúsarkitekta til liðs við sig og
hafa þegar skýrt frá frumdrögum að lausn
málsins. Þessi frumdrög benda til þess, að
hægt væri að koma fyrir einum háskóla-
spítala á hvorri lóðinni sem er, það er í
Fossvogi eða við Hringbraut. Það þyrfti að
byggja talsvert og losna við úrelt húsnæði,
annað hvort undir aðra starfsemi eða að
selja það.“
Sérðu fyrir þér ákjósanlega stjórnun,
lœkna eingöngu eða atvinnustjórnendur til
dœmis?
„Hæfileg blanda held ég að reynist best.
Eg held að það sé öllum orðið ljóst sem hafa
kynnt sér stjórnun sjúkrahúsa í öðrum
vestrænum löndum, að við verðum að hafa
lækna í stjórnunarstöðum, en ekki eina. Þeir
þurfa á stuðningi að halda frá atvinnu-
stjómendum. Mér finnst sú samsetning sem
verið er að reyna hér á Landspítalanum eiga
fullan rétt á sér, með einn forstjóra og fimm
framkvæmdastjóra þar af fulltrúa frá stærstu
starfsmannahópunum sem starfa á spítal-
anum, læknum og hjúkrunarfræðingum. Við
hlið þeirra eru sérfræðingar í fjármálum og
tæknimálum svo og kennslu og rann-
sóknum.“
Dýrar sumarlokanir
Á meðan þessi stóru áform móta starfsemi
ykkar er ýmislegt smœrra sem einnig hefur
áhrifá starfsemi sjúkrahúsa, svo sem sumar-
lokanir. Hvernig horfa slíkar aðgerðir við
þér?
„Mér finnst að sjálfsögðu mikil synd að
það skuli þurfa að loka einhverjum deildum
yfir sumartímann. Eg hef séð það bæði hér á
landi og erlendis að það líður tiltölulega
langur tími frá því farið er að draga úr starf-
seminni þar til að lokun kemur en á meðan
er verið að greiða fullan kostnað. Síðan
tekur alllangan tíma að koma starfseminni
af stað á nýjan leik. Þetta er tiltölulega dýr
tími, auk þess sem verið er að draga úr
þjónustu á þessum tíma. Á íslandi eru
umtalsverðir biðlistar í flestum greinum
lækninga og auðvitað lengjast þeir meðan á
sumarlokunum stendur. Á hinn bóginn eru í
gildi lög um sumarfrí starfsmanna og réttur
til að taka það á ákveðnum tíma svo
eitthvert samkomulag verður að vera um
þessi mál. Á yfirstandandi ári var farið að
draga úr starfsemi deilda strax í apríl eða
tveimur mánuðum fyrr en sumarfrístíminn
byrjar. Að þessu sinni var ekki dregið úr
starfsemi vegna sumarleyfa heldur vegna
skorts á rekstrarfé. Ég sé ekki almennilega
hvemig á að vera hægt að spara með því til
að mynda að fækka skurðaðgerðum þegar
launakostnaðurinn er megnið af útgjöld-
unum, eins og ég gat um áðan. Starfsfólkið
er til staðar og aðstaðan bíður.“
Hverjir ertt möguleikar lœkna, til dœmis
yfirlœkna, til að koma atliugasemdum á
framfœri í svona tilvikum?
„Það er helst með því að hafa samband
við lækningaforstjórann, en hann getur
stundum lítið að gert þar sem vandinn að
þessu sinni var að rekstur spítalans fór fram
úr fjárhagsáætlun. Það er rétt, eins og fram
hefur komið í íjölmiðlum, að rekstur ríkis-
spítala á árinu mun fara að minnsta kosti 400
milljónir fram úr áætlun og er það að
sjálfsögðu gífurlega há upphæð. En þegar
litið er á heildarveltu stofnunarinnar sem er
nærri 20 milljarðar kemur í ljós að í
prósentum reiknað er um að ræða 2-3%
880 Læknablaðið 2000/86