Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 69

Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BIÐLISTAR Höfundur er fyrrverandi landlæknir. A biðlistum sjúkrahúsa eru flestir úr röðum eldri borgara Biðlistar fylgja öllum sjúkrahúsum, en for- senda eðlilegs sjúkrahúsrekstrar og að heilbrigðis- þjónustunni sé sinnt samkvæmt lögum, er að biðtími eftir aðgerð eða umönnun sé við hæfi. Kannanir landlæknisembættisins árið 2000 hafa leitt í ljós, að á síðastliðnum fjórum árum hafa að staðaldri verið um 7000 manns á biðlistum og kemur meirihluti þeirra úr röðum eldri borgara. Þeim hefur fjölgað er bíða eftir til dæmis kransæðaþræðingum (biðtími 14-15 vikur) og öðrum æðaaðgerðum (bið- tími upp í tvö ár), aðgerðum á augn-, kvensjúkdóma- og þvagfæradeildum (biðtími allt að tvö ár) og vistun á hjúkrunardeildum. Á einstaka listum hefur orðið smávægileg fækkun til dæmis á biðlistum eftir bæklunaraðgerðum (biðtími 9-15 mánuðir) vegna fjölgunnar aðgerða á stofum úti í bæ. Athugun á biðlistum eftir bæklunaraðgerðum sýnir, að allt að 65% sjúklinga bíða í 6-12 mánuði eftir aðgerð, þrátt fyrir verulegar þjáningar á bið- tímanum, og draga fram lífið á sterkum verkja- og svefnlyfjum (rannsókn frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur). Margoft hefur komið fram að langur biðtími eftir rannsókn og aðgerð vegna kransæðasjúkdóma, dregur úr lífslíkum sjúklinga (upplýsingar frá land- læknisembættinu 1997). Áður fyrr gengu gallsteinasjúklingar fljótlega undir aðgerð en nú er algengt að yfir 60% þeirra komist ekki í aðgerð fyrr en ástand þeirra hefur stórversnað og batalíkur minnkað (munnlegar upp- lýsingar frá prófessor Jónasi Magnússyni). Nú bíða yfir 250 aldraðir eftir hjúkrunarplássi á Reykjavíkursvæðinu, en 30-40% þeirra eru of veikir til þess að bíða heima að áliti Pálma V. Jónssonar forstöðulæknis öldrunarsviðs á Landspítala Fossvogi. Vegfarendur á götum borgarinnar mæta á hverjum degi einstaklingum illa þjáðum vegna geðsjúkdóma eða vímuefnaneyslu. Skortur á sjúkrarými veldur því, að margt fársjúkt fólk fær ekki vistun, en reikar um götur með lyf í vasa sem það hefur ekki rænu á að taka inn. Jafnvel eru fleiri dæmi þess að fólk er útskrifað samdægurs eftir sjálfsmorðs- tilraun, til dæmis alvarlega líkamlega áverka (skorið á púls). Rekja mætti fjölmargar raunasögur um afdrif biðlistasj úklinga sem beðið hafa marga mánuði, óvinnufærir og illa þjáðir. Stundum má lesa greinarkorn og jafnvel leiðara í dagblöðum um. „hvort verið sé að leggja fólk inn á sjúkrahús að óþörlu". Vissulega leggja vaktlæknar stundum fólk á sjúkrahús vegna gruns um einkenni alvarlegs sjúkdóms sem síðan líða hjá, að minnsta kosti í bili og jafnvel að fullu. Hver getur staðhæft að innlögn hafi verið óþörf? Kannanir landlæknisembættsins á árunum 1995- 1997 leiddu í ljós að afköst og árangur íslenskra sérgreinadeilda og minni sjúkrahúsa er svipaður og gerist á bestu sjúkrahúsum á Norðurlöndum. Dönsk ráðgjafarstofnun komst að svipaðri niðurstöðu. Við verðum að hafa í huga að yfirgnæfandi hluti íslenskra lækna og margir hjúkrunarfræðingar hafa áralanga starfsreynslu á útlendum hátækniheilbrigðisstofn- unum. Meirihluti annarra starfsstétta búa ekki við þá reynslu. Til þess að fá staðfestingu á afköstum sérdeilda er bent á yfirlitsgrein í breska læknablaðinu British Medical Journal frá september 1999, en þar kemur fram að legutími á íslenskum sérdeildum er styttri en á bandarískum sérdeildum, sem þó losna fyrr við sjúklinga vegna sjúklingahótela sem rekin eru í nánum tengslum við deildir þar. Kvartanir berast oft um stuttan legutíma og „of hraða útskrift“ sjúklinga hér á landi. Vafasamt er, að samanburður á afköstum annarra atvinnugreina hérlendis við samsvarandi atvinnu- greinar í útlöndum sé hagstæðari en hér er nefnd. Að lokum má spyrja: „Hvaðan koma þær hugmyndir stjórnenda og stjórnmálamanna um afköst sjúkra- stofnana, sem stangast þvert á athuganir þeirra er sinna veiku fólki daglega?“ Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir kröftuglega fækkun sjúkrarýma á hjúkrunar-, geð- og handlækningadeildum eins og fram kemur í fjárhagsáætlun stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík, þar sem stór hluti þess fólks sem er á biðlistum, er eldra fólk. Vinnustaðir er búa við slíkar þrengingar draga ekki að sér starfsfólk. 27. OKTÓBER 2000 F.H. STJÓRNAR FÉLAGS ELDRI BORGARA í Reykjavík og nágrenni Ólafur Ólafsson Læknablaðið 2000/86 883
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.