Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
2. í CP 2000/088 er fjallað um aðbúnað eiturlyfja-
neytenda í fangelsum og var samþykkt ályktun þar
sem segir að læknum sem starfi í fangelsum verði að
gera kleift að veita föngum, sem háðir eru ávana- og
fíkniefnum, góða læknisfræðilega og læknisfélagslega
þjónustu (medical and medico-social), þar með talda
alla sérfræðimeðferð sem hægt er að veita fíkniefna-
neytendum, þar með talda lyfjameðferð. Ekki síst að
faglegt sjálfstæði læknisins sé virt, að fangar eigi
ávallt aðgang að læknisþjónustu og að læknirinn geti
fengið að fylgjast með líðan eiturlyfjasjúklings í
fangelsi og fylgt þar með meðferð eftir. Þess vegna
þurfi að gera ráð fyrir þvf þegar heilbrigðisþjónusta
er skipulögð í fangelsum að eiturlyfjasjúklingar þurfi
sérstaka umsinnu því að þeir séu sjúklingar en ekki
einungis fangar.
3. í CP 2000/167 var samþykkt tillaga um að í
tilvikum þegar hægt sé að rekja legionella sýkingar til
hótela, sumarleyfisstaða eða annarra staða þar sem
fólki gæti stafað hætta af væri siðlaust að koma þeim
upplýsingum ekki til almennings hafi sótthreinsun
(decontamination) dregist.
4. í CP 2000/157 var samþykkt sameiginleg
ályktun CP og PGEU (lyfjanefnd Evrópusamband-
sins) urn lyfjaauglýsingar lil almennings. Hvatt er til
þess að almenningi sé tryggð fræðsla um lyf og
aukaverkanir þeirra en auglýsingum og markaðs-
væðingu lyfja harðlega mótmælt. Eindregið er lagst
gegn því að lyfseðilsskyld lyf séu auglýst eða seld á
netinu.
5. CP 2000/156 fjallar um hlutverk lækna í
matvælaeftirliti en þetta hefur verið mikið hitamál
víða í Evrópu ekki síst vegna díoxíneitrunar og
kúariðu og eru læknar flestir á þeirri skoðun að
hlutverk þeirra, sem ekki er eins frá einu landi til
annars, þurfi að samræma og aukast verulega hvað
hollustu matvæla varðar. Lagt hefur verið til að
stofnuð verði eins konar Hollustuvernd matvæla í
Evrópu (The European Food Safety Authority) sem
meðal annars á að meta hættur sem stafað geta af
matvælum. Læknar þurfa að mati CP að geta unnið
sem teymi við slíkar aðstæður, gefið sérfræðilegt álit
og tekið þátt í að miðla upplýsingum til almennings.
Pess vegna verði að tryggja faglegt og siðferðilegt
sjálfstæði lækna og konta því svo fyrir að þeir komi að
málum þegar koma þarf áreiðanlegum upplýsingum
til neytenda og heilbrigðisstarfsfólks. Kennsla í
næringarfræði, fræðsla um hættur sem af matvælum
getur stafað svo og hvernig eigi að meðhöndla verði
hluti af námi og símenntun evrópskra lækna og loks
að tengslum verði komið á milli Hollustuverndar
matvæla í Evrópu og nýjustu þekkingu stöðugt
miðlað til þeirra lækna sem vinna að þessu verkefni
hver á sínum stað.
Með CP 2000/156 Annexes fylgja svör nokkurra
landa við spurningalista um það hvernig málum sé
háttað hvað matvælaeftirlit varðar í heimalandinu,
hvort einhver sé ábyrgur í stjórnkerfinu og svaraði ég
því til fyrir okkar hönd að matvælasvið hjá
Hollustuvernd ríkisins bæri þá ábyrgð, starfaði
samkvæmt lögum og heyrði undir Umhverfisráðu-
neytið. Menntunarkröfur eru háskólagráða í fagi sem
tengist viðfangsefni deildarinnar (en ekki er kveðið á
um að þar skuli starfa læknir).
Einnig er talsvert fjallað um sama efni í CP info
42-2000.
6. Áfram var rætt um lágmarkskröfur ESB til
heimilislæknanáms (samanber meðal annars UEMO
2000/133, UEMO 2000/127 og UEMO 2000/120).
Alllengi hefur verið kveðið á um að það skuli vera að
lágmarki tvö ár þótt í mörgum Evrópulöndum sé það
mun iengra, samanber fjögur og hálft ár samvkæmt
íslenskri reglugerð. UEMO hefur barist fyrir því í ein
sex ár að þessu ákvæði yrði breytt í tilskipun 93/16 og
loks gerðist það á þessu ári að Evrópuþingið lagði
þetta til þótt Evrópuráðið hafi enn ekki samþykkt
það. Til tíðinda á að draga alveg á næstunni.
Skýrslur aðildarsamtakanna
Fulltrúar frá þeim samtökum sem sitja fundi CP það
er að segja AEMH (samtök sjúkrahúslækna, sem ég
veit ekki til að ísland sé aðili að), CIO, FEMS, PWG,
UEMO, UEMS og EMSA/FMSA (en enginn var
mættur frá WMA) sögðu því næst frá starfi sinna
félaga og var mér falið að flytja skýrslu UEMO í
fjarveru Rogers Chapman frá Bretlandi. Sagði ég þá
meðal annars frá samhljóða samþykkt UEMO í
október síðastliðnum í tengslum við umræður um
miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og upplýst
samþykki. Nánar er sagt frá þessu í skýrslu um
nýafstaðinn UEMO fund eftir Steinunni Jónsdóttur,
fulltrúa LÍ hjá UEMO.
Næsti reglulegi fundur verður í apríl 2001 í Brussel
og verður þá einnig haldinn aukaaðalfundur vegna
fjárhagsáætlunar samtakanna eins og að ofan segir
auk þess sem kjörinn verður nýr forseti. Ekki er vitað
á þessari stundu hverjir gefa kost á sér en Rainer
Brettenthaler frá Austurríki, sem nú er einn af vara-
forsetum CP, er talinn líklegur.
Læknablaðið 2000/86 885