Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR L R
ekki að skipulagi mála, muni hinn faglegi þáttur
skerðast. Því er mikilvægt fyrir lækna að ráða sínu
nánasta umhverfi og skipuleggja á faglegan hátt.
Að lokum þetta. Miklar sparnaðaraðgerðir í
núverandi heilbrigðiskerfi leiða að lokum til
samdráttar í heilbrigðisþjónustu. Sömu lögmál
hljóta að gilda um heilbrigðisvandamál og aðra
þætti mannlífsins. Fólkið í landinu mun verða í
vaxandi þörf fyrir þjónustu og gera auknar kröfur
um aðgengi og gæði og leita nýrra valkosta. Þetta
er ekkert öðru vísi en ef svo væri þrengt að
fjárveitingum til sinfóníuhljómsveitarinnar að til
„samdráttar og hagræðingar" kæmi og fækka
þyrfti fiðlum, aðeins væri efni á að hafa eina
tegund af slagverki og þeim, sem vildu hlusta á
hornin, væri bent á að mjög svipað væri að hlusta á
básúnurnar. Líklegt er að fólkið sneri sér annað til
að uppfylla þörfina fyrir að njóta tónlistar.
Auðvitað er það hlutverk lækna að stuðla með
öllum hætti að faglegri og aðgengilegri heilbrigðis-
þjónustu og mæta þörfinni með nýjungum í
rekstrarformum.
Fræðslufundir Læknafélags
Reykjavíkur fyrir almenning
Fundartími: Fimmtudagskvöld kl 20.30
Staðsetning: Húsnæði læknasamtakanna á 4. hæð, Hlíðasmára 8 í Kópavogi
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir
7. desember: Vefjagikt og síþreyta
Árni Geirsson sérfræðingur í lyflækningum og giktarsjúkdómum
Arnór Víkingsson sérfræðingur í giktarsjúkdómum
14. desember: Læknirinn og dauðinn. Keppinautar eða bandamenn?
Óttar Guðmundsson sérfræðingur í geðlækningum
25. janúar: Nýjungar í augnskurðlækningum - verða gleraugun ónauðsynleg?
Þórður Sverrisson sérfræðingur í augnlækningum
8. febrúar: Atvinnusjúkdómar. Strit-slit og sjúkdómar
Kristinn Tómasson sérfræðingur í geðlækningum
22. febrúar: Vísindaiegar nýjungar í baráttunni við brjóstakrabbamein
Valgarður Egilsson sérfræðingur í meinafræði
Fræöslufundir Læknafélags Reykjavíkur
Læknafélag Reykjavíkur hefur í vetur gengist fyrir
fræðslufundum fyrir almenning um ýmis heilsufars-
vandamál. Hugmynd um slíka fræðslu kom fram á
síðasta ári og voru fyrstu fundirnir haldnir síðastliðið
haust í tengslum við 90 ára afmæli félagsins. Vöktu
fundirnir athygli og ánægju og var þeim því haldið
áfram í vetur. Fundimir eru skipulagðir þannig að
sérfræðingur heldur erindi um ákveðið heilsu-
farsvandamál og síðan er góður tími til fyrirspurna og
umræðna. Þannig gefst almenningi tækifæri til að
spyrja sérfræðinginn beint og taka þátt í umræðunni.
Fundirnir verða með reglulegum hætti í vetur. Þeim
sem áhuga hafa á að halda erindi er bent á að hafa
samband við skrifstofu læknasamtakanna. Þegar hafa
verið haldnir fundir um þunglyndi, heilabilun og
önnur geðræn vandamál hjá öldruðum og um
matarsýkingar, faraldra og framtíð.
Áframhaldandi dagskrá vetrarins er kynnt hér í
blaðinu.
Læknablaðið 2000/86 871