Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 92
NÁMSKEIÐ / STYRKIR
Ráðstefna um rannsóknir
í læknadeild HÍ
4. og 5. janúar 2001
Tími og umsjónaraðili: Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands verður haldin 4. og 5. janúar 2001.
Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar HÍ.
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram í Odda.
Þátttakendur: Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast við kennara og starfsmenn deildarinnar, það er í
læknisfræði og sjúkraþjálfun auk lyfjafræði. Ennfremur er gert ráð fyrir þátttöku starfsmanna stofnana sem
tengjast deildinni og kennslusjúkrahúsum landsins. Aðilum sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsmenn
læknadeildar er einnig boðin þátttaka. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum heimill.
Þátttökugjald: Kr. 3000 almennt gjald, kr. 1000 fyrir háskólanema. Ekki verður tekið við greiðslu með kortum.
Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir frjáisum erindaflutningi (10 mínútur hvert erindi, með fyrirspurnum) og
spjaldasýningu (stærð veggspjalda 90x120 cm). Veggspjöld verða til sýnis einn dag. Höfundar komi með
veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Skráning og afhending þinggagna: Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar Birna Þórðardóttir (sjá netfang að
neðan) tekur við skráningu, þátttakendur er hvattir til að skrá sig tímanlega. Skráningar- og afhendingartími gagna
verður auglýstur nánar í tilkynningu til þátttakenda.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna.
Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar er Birna Þórðardóttir, símar: 564 4104 (v) / 552 9075 (h) / 862 8031, netfang:
birna@icemed.is
Vísindanefnd læknadeildar HÍ
Ástríður Pálsdóttir Tilraunastöð HÍ Keldum, s. 567 4700
Elías Ólafsson taugalækningadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1660, formaður nefndarinnar
Jens A. Guðmundsson kvennadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1000
Reynir Arngrímsson læknadeild HÍ, s. 525 3600
Þorsteinn Loftsson lyfjafræðideild HÍ, s. 525 4464
Rannsóknarstyrkur úr Minningarsjóði
Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar
Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar styrki úr ofangreindum sjóði.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans:
1. Að styrkja kaup á lækninga- og rannsóknartækjum til sjúkrastofnana.
2. Að veita vísindamönnum í læknisfræði styrki til framhaldsnáms eða sjálfstæðra vísindaiðkana.
Rannsóknir á krabbameinssjúkdómum sitja að jafnaði fyrir um styrkveitingar.
Umsóknum ásamt ítarlegum greinargerðum skal skila til landlæknis, Laugavegi 116, 150 Reykjavík,
fyrir 1. febrúar 2001.
Sjóðstjórn
906 Læknablaðið 2000/86