Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR OG STJÓRNUN Stjórnun í stofnun á tímamótum Gísli Heimir Sigurðsson er nýlega kominn heim til Islands eftir um 23 ára fjarveru og reynslu af háskóla- og sjúkrahúsvinnu víðs vegar um heim síðast í Sviss. Síðastliðin níu ár var hann prófessor og yfirlæknir við háskólasjúkrahúsið Inselspital í Bem í Sviss. Hann tók nýlega við starfi prófessors og forstöðulæknis svæfinga- og gjörgæsludeildar Land- spítalans. Hann kemur til starfa þegar spítalinn er á tímamótum, sameining Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi stendur yfir. Gísli er þaulvanur stjómandi og því leitaði Læknablaðið til hans eftir hollráðum um lækna og stjórnun, en því er stundum haldið fram að læknar hafi takmarkaðan áhuga á stjórnun og undir það tekur Gísli: „Það eru væntanlegar margar ástæður fyrir því að læknar hafa sýnt lítinn áhuga á stjórnunarmálum. Flestir fara í læknisfræði af því þeir hafa áhuga á lækningum en ekki stjórnun. Síðan held ég að það spili inn í að flestir íslenskir læknar fara í sérnám erlendis og staldra ekki lengi við. Flestir eru þar meðan á klínísku sérnámi stendur og fáeinir örlítið lengur, til dæmis ef þeir fara í doktorsnám. Tiltölulega fáir fá tækifæri til taka að sér stjóm- unarstörf meðan á sérnámi stendur og starfa því að vissu leyti í „vemduðu umhverfi" á erlendum sjúkrastofnunum þar sem eldri og reyndari læknar hugsa um stjómunarþætti starfsins. En það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að læknar sinni stjórnun, því annars tekur einhver annar að sér að stjórna þeim. Það er ekki alltaf góður valkostur, í hvaða fagi sem maður er. Það er kostur að læknar stjómi læknum því þeir hafa ef til vill dálítið betri skilning á starfi þeirra en ef stjórnunarfræðingur til dæmis tekur að sér að stjórna þeim.“ Best að læra stjórnun samhliða sérnámi Var vikið að stjórnun þegar þú varst hér í lœknadeild- inni? „Nei, nánast ekki neitt.“ Finnst þér að það cetti að breyta því? „Ekki endilega í grunnnáminu. Menn eiga frekar að vaxa inn í stjórnunarstörf samhliða sérgreinar- námi. Heppilegast er að það gerist á einum stað og menn séu leiddir inn í stjórnunarþætti starfsins smátt og smátt. Sums staðar er tekið markvisst á slíku, ég hef séð deildir þar sem virkilega er lagt upp úr að auka ábyrgð aðstoðarlækna í sérnámi, hluti af því var að þeir tóku að sér ákveðna starfsemi og stjómuðu henni eftir að þeir luku náminu, oft samhliða doktorsnámi. Eftir átta til tíu ára veru á sama stað voru þessir læknar komnir með góða klíníska menntun, góða stjómunarmenntun og auk þess stjórnunarreynslu og voru þá taldir hæfir til að verða yfirmenn á stærri sjúkrastofnunum.“ Ætti að taka þessi vinnubrögð upp hér á landi? „Já, og víðar. Þetta er ekki aðeins íslenskt vandamál, það er almennur vandi, bæði á Norður- löndunum, annars staðar í Evrópu og í Banda- ríkjunum, og fyrir því eru margar ástæður. í Banda- ríkjunum og víða í Evrópu er víðast hvar illa borgað fyrir stjórnunarstörf og klínískir læknar fá oft mun hærri laun. Undantekningin er Sviss og Þýskaland og þar er slegist um æðstu stjómunarstörfin. Á síðari árum hefur stjórnunarþátturinn orðið æ mikilvægari í klínísku sérnámi í Bem. Þar hefur verið reynt að auka þátttöku lækna sem eru í sérnámi í ákvarðanatökum sem varða almenna starfsemi deildarinnar og auka hlutdeild þeirra í ábyrgðar- stöðum undir eftirliti reyndari lækna. Á síðustu tveimur eða þremur árum hefur mikilvægi form- legrar menntunar í stjórnun (master of management) og stjómunarreynsla aukist mikið við mat á læknum í toppstöður bæði á stærri einkasjúkrahúsum og á háskólasjúkrahúsum víða um heim.“ Getur þetta fjárhagslega mat áttþátt íþví að störfin eru minna metin en ella? „Mjög líklega. Það er greinilegt að ekki er litið sérstaklega upp til stjórnenda meðal lækna. Að vísu njóta góðir stjórnendur virðingar hvar sem er, einnig á íslandi. En góður klíniskur læknir hefur allt aðra og betri stöðu í hugum manna og það er ekkert séríslenskt." Er þetta ef til vill rótgróin hugsun sem ekki er hœgt að breyta? „Þessu er að sjálfsögðu hægt að breyta og verður að breyta, en það verður ekki auðvelt. Til skamms tíma höfum við komist upp með hálfgert anarkí í stjórnun margra sjúkradeilda hér á landi vegna þess að stofnanirnar hér hafa ekki verið ýkja stórar, starfsemin ekki ýkja flókin og starfsmennimir hafa lært að starfa saman án mikilla formlegra samskipta. Það hefur þá verið hægt að verja eitthvað lakari nýtni á aðstöðu með því að benda á að stjórnunarkostn- aður hefur verið í lágmarki. Þetta hefur því sjaldnast komið mikið niður á gæðum eða magni starfsem- innar. Annað sem hefur einkennt starfsemi á íslenskum sjúkrastofnunum - og svipað má raunar segja um marga aðra starfsemi í íslensku þjóðfélagi - hefur verið riðlun á samskiptum milli stjómunarstiga. Bæði í einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum er 878 Læknablaðið 2000/86
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.