Læknablaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 48
FRÆÐIGREINAR / HEILKENNI SJÖGRENS
14% (19,26). Algengi munnþurrks hérlendis er á
hinn bóginn nokkuð lægra en í Skandinavíu þar sem
huglæg einkenni munnþurrks eru rúm 20% hjá
báðum kynjum (18).
Par sem þurrkeinkennin eru margvísleg, er
nauðsynlegt að staðla vel spurningar sem notaðar eru
í faraldsfræðilegum rannsóknum sem kanna algengi
einkenna um slímhúðaþurrk. Þetta kemur glöggt
fram í spurningunum um munnþurrk, en rúmlega
helmingur þátttakenda hefur munnþurrk ef miðað er
við jákvæða svörun við öllum spurningunum um
munnþurrk í spurningakverinu, en ef eingöngu er
stuðst við þær þrjár spurningar sem er að finna í EEC
skilmerkjunum er aðeins fimmta hver kona og
rúmlega tuttugasti hver karlmaður með munnþurrk.
Þessar þrjár spurningar hafa verið valdar með fram-
skyggnum faraldsfræðilegum aðferðum og sama er
að segja um þær þrjár spurningar sem valdar voru
með tilliti til augnþurrks. Endurspeglar þetta mikil-
vægi þess að velja staðlaðar spurningar í faralds-
fræðilegum tilgangi eins og gert er í þessari rannsókn.
Þrátt fyrir það að valið á spurningunum sé vandað, er
ekki gott samræmi á milli huglægra einkenna um
augn- eða munnþurrk og mælinga á framleiðslugetu
tára- eða munnvatnskirtla (26). Með þetta í huga var
völdu úrtaki einstaklinga boðið til áframhaldandi
skoðunar á þurrkeinkennum sínum. Niðurstöður
okkar hvað þetta varðar sýna einnig að hvorki er gott
samræmi þarna á milli, né heldur milli einstakra
augnprófa. Endurspeglar þetta þörfina á vel reynd-
um greiningarskilmerkjum fyrir Sjögrens sjúk-
dóminn.
Erlendar faraldsfræðilegar rannsóknir sýna að
heilkenni Sjögrens er líklega algengasti fjölkerfa-
sjúkdómurinn af ónæmisfræðilegum toga. Rann-
sóknir frá Kaupmannahöfn á miðaldra Dönum sýna
að algengi heilkennis Sjögrens er 0,6-2,1% ef stuðst
er við EEC skilmerkin (4) og í Grikklandi 0,6% (5),
en algengi heilkennisins í Englandi er meira eða 2,2-
4,4% (7) með sömu skilmerkjum. Ef'stuðst er við
önnur greiningarskilmerki, til dæmis Kaupmanna-
hafnarskilmerkin, er algengi sjúkdómsins lægra eða
0,2-0,8% í Danmörku (4) en hins vegar hærra í
miðaldra Svíum eða 1,0-4,5% (6). Síðarnefndu
skilmerkin byggjast eingöngu á hlutlægu mati um
augn- og munnþurrk og henta því síður til
faraldsfræðilegra rannsókna þar sem skoða verður
hvern og einn þálttakanda (4).
I þessari rannsókn ákváðum við að nota EEC
skilmerkin á valinn hóp þátttakenda, sem allir játuðu
þremur aðaleinkennum heilkennis Sjögrens, það er
þeir höfðu þurrkeinkenni, stoðkerfisverki og
dagsþreytu. 1 þennan hóp völdust 17 konur og sex
karlar sem ef til vill endurspeglar kynjahlutfall
sjúklinga með ónæmissjúkdóma, en fyrir hverjar níu
konur er einn karl með heilkenni Sjögrens (3). í
þessum hópi reyndust tvær konur úr eldri
aldurshópnum, önnur frá Reykjavík og hin frá
Akureyri, uppfylla EEC skilmerki fyrir heilkenni
Sjögrens. Þetta samsvarar því að allt að 0,5% þýðisins
hafi heilkenni Sjögrens samkvæmt EEC, en enginn
einstaklingur uppfyllti Kaupmannahafnarskil-
merkin. I þessu samhengi er rétt að benda á að
hópurinn með augn- og munnþurrk er í raun
helmingi stærri og að enn er eftir að beita seinni
liðum EEC skilmerkjanna, það er ónæmisfræði-
legum aðferðum, myndgreiningu og vefjasýnatöku til
greiningar sjúkdómsins. Ef þessum aðferðum er bætt
við og allur hópurinn með þurrkeinkenni er
skoðaður, má ætla að algengi heilkennis Sjögrens sé
hærra. Markmið þessarar rannsóknar var þó að
kanna algengi helstu einkenna Sjögrens hér á landi,
ítarlegri rannsókn á algengi heilkennisins er þegar
hafin.
Styrkur þessarar rannsóknar er margþættur. Þar
er fýrst að nefna gott svarhlutfall, en 74% úrtaksins
svaraði spurningakverinu. Samsetning spurninga
sem var sent til þátttakenda byggist á alþjóðlegum
rannsóknarniðurstöðum sem er nú verið að beita í
mörgum Evrópulöndum í sama tilgangi. Ennfremur
er beitt faraldsfræðilegum reikniaðferðum til þess að
finna stærð úrtaks og algengistölur eru reiknaðar út
með lilliti til stærðar þýðanna á Akureyri og í
Reykjavík. Allt þetta eykur áreiðanleika rann-
sóknarniðurstaðnanna. Hins vegar eru ætíð ann-
markar á rannsóknum byggðum aðallega á spurn-
ingakverum eins og sést meðal annars á ósamræminu
milli huglægra og hlutlægra þurrkeinkenna.
I samantekt eru einkenni um augn- og munnþurrk
algeng hér á landi og þau virðast vera ósértæk.
Þurrkeinkenni frá slímhúðum eru algengari meðal
kvenna og einkenni munnþurrks aukast með aldri
hjá báðum kynjum. Lítill hluti þeirra er hafa
þurrkeinkenni uppfylla greingarskilmerki heilkennis
Sjögrens, því er nauðsynlegt að styðjast við stöðluð
greiningarskilmerki þegar sjúkdómsgreiningin heil-
kenni Sjögrens er staðfest.
Þakkir
Höfundar þakka öllum þeim sem tóku þátt í
rannsókninni og sérstaklega þeim er komu til
skoðunar. Ennfremur þakka höfundar Maríu
Ásgrímsdóttur og Sigurlínu Örlygsdóttur lækna-
riturum, ásamt hjúkrunarfræðingunum Möggu Öldu
Magnúsdóttur og Sigrúnu Rúnarsdóttur, fyrir veitta
aðstoð. Sérstakar þakkir fær Júlíus Atlason fyrir
veitta aðstoð í faraldsfræðilegri tölfræði.
Rannsóknin var styrkt af Vísindasjóðum
læknaráða FSA og Landspítalans og Félagi íslenskra
gigtarlækna (The Scandinavian Joumal of
Rheumatology Grant, year 2000).
864 Læknablaðið 2000/86