Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2000, Síða 43

Læknablaðið - 15.12.2000, Síða 43
FRÆÐIGREINAR / HEILKENNI SJÖGRENS Algengi augn- og munnþurrks á íslandi með hliðsjón af heilkenni Sjögrens Jórunn Atladóttir1, Ólafur Grétar Guðmundsson2, Peter Holbrook3, Ragnar Sigurðsson6, Björn Guðbjörnsson4'5 Læknadeild HÍ, 2augnlækningadeild Landspítala Hringbraut, tannlæknadeild HÍ, Rannsóknarstofa í gigtarsjúkdómum Landspítala Hringbraut, ^lyflækningadeild og ^augnlækningadeild Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. Fyrirspumir, bréfaskipti: Jórunn Atladóttir, Leifsgötu 10,101 Reykjavík. Sími: 867 7985; netfang: jorunn@hi.is Lykilorð: augnþurrkur, faraldsfrœði, heilkenni Sjögrens, munnþurrkur. Ágrip Inngangur: Heilkenni Sjögrens er samkvæmt erlendum rannsóknum einn af algengari fjölkerfa- sjúkdómum. Sjúkdómurinn einkennist af dags- þreytu, stoðkerfisverkjum og þurrkeinkennum frá slímhúðum. Algengi augn- og munnþurrks er ekki þekkt hér á landi né algengi heilkennis Sjögrens. Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi helstu einkenna heilkennis Sjögrens og finna líklegar algengistölur fyrir sjúkdóminn hérlendis. Efniviður og aðferðir: Handahófskennt úrtak var fengið úr tveimur aldurshópum; 40-49 ára og 70-75 ára íslendingum, búsettum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Notast var við spumingakver með 14 spurningum um algengustu einkenni heilkennis Sjögrens. Völdu úrtaki samkvæmt svarmynstri var boðið til skoðunar með Schirmer-I prófi, mælingu á tárafilmurofstíma og Rose Bengal litun fyrir glæm- og tárabólgu. Ennfremur var gerð munnvatns- rennslismæling í hvíld. Niðurstöður: í úrtakinu var 621 einstaklingur, 300 karlar og 321 kona. Skilatíðni spurningakversins var 74%. Alls höfðu 20% þátttakenda einhver einkenni augnþurrks og 12% höfðu munnþurrk, hvort tveggja var marktækt algengara hjá konum (p<0,05). Tuttugu og þrír einstaklingar (3%) kvörtuðu um öll þrjú aðaleinkenni heilkennis Sjögrens og var þeim boðið til skoðunar. Af þeim mældust sex (26%) með óeðlilega táraframleiðslu og níu (39%) með óeðli- lega lítið munnvatnsrennsli. Tvær konur uppfylltu greiningarskilmerkin um heilkenni Sjögrens eða 0,2% úrtaksins (0-0,5%; 95% öryggisbil). í einkenna- lausa samanburðarhópnum höfðu sín hvor 17% hlutlæg einkenni augn- eða munnþurrks og ein kona hafði hvort tveggja. Ályktun: Niðurstöður sýna að einkenni augn- og munnþurrks eru algeng hér á landi, sem og þrjú aðaleinkenni heilkennis Sjögrens. Því er nauðsynlegt að styðjast við ströng greiningarskilmerki þegar staðfesta skal sjúkdómsgreininguna heilkenni Sjögrens. Til að hægt sé að fullyrða um algengi heil- kennis Sjögrens á íslandi verður þó að gera ítarlegri ónæmisfræðilegar rannsóknir með stærri skoðunar- hóp. Inngangur Heilkenni Sjögrens er langvinnur fjölkerfa- sjúkdómur af ónæmisfræðilegum toga, sem ein- ENGLISH SUMMARY Atladóttir J, Guðmundsson ÓG, Holbrook P, Sigurðsson R, Guðbjörnsson B The prevalence of sicca symptoms in lceland Læknablaðið 2000; 86: 859-65 Objectives: Sjögren's syndrome is one of the most common inflammatory systemic rheumatic disorders. The syndrome is characterised by tiredness, pain problems and mucosal dryness. The goal of this study is to elucidate the prevalence of sicca symptoms in the lcelandic population and to calculate the preliminary prevalence value for Sjögren's syndrome in lceland. Material and methods: Random sample was retrieved from two age groups; 40-49 and 70-75 years lcelandic inhabitants of Reykjavík and Akureyri. Questionnaire with 14 questions of the most common symptoms of Sjögren's syndrome was mailed to those sampled. A small sample was evaluated by Schirmer-I test, tear film break up time (BUT) and Rose Bengal score for keratoconjunctivitis sicca (KCS) and unstimulated salivary flow rate was performed. Results: The questionnaire was sent to 621 subjects, 300 male and 321 female. The response rate was 74%. Of those 20.3% had subjective symptoms of dry eyes and 12.0% of dry mouth according to the six questions used in the European classification criteria (EEC). The prevalence of both was higher in females (p<0.05). Of the 23 subjects who reported sicca symptoms, fatigue and pain problems; 26% had abnormal Shirmer-I test, 13% had abnormal BUT and 39% had abnormal salivary flow rate, two of those individuals fulfilled the EEC criteria for Sjögren's syndrome (0.2%; 0-0.5%, 95% Cl). None in the age and sex matched control group fulfilled the EEC criteria. Conclusion: The subjective symptoms of dry eye and dry mouth are common in lceland, as are the three major symptoms of Sjögren's syndrome. Standardised objective diagnostic criteria is necessary when the diagnosis of the syndrome is made. Key words: keratoconjunctivitis sicca, prevalence, sicca symptoms, Sjögren’s syndrome, xerostomia. Correspondence: Jórunn Atladóttir. E-mail: jorunn@hi.is kennist af óeðlilegri dagsþreytu, stoðkerfisverkjum og þurrki í öllum slímhúðum líkamans, auk þess sem þriðji hver sjúklingur með heilkenni Sjögrens fær einkenni frá innri líffærum (1). Sjögrens heilkennið fylgir oft öðrum bandvefssjúkdómum, svo sem rauðum úlfum eða iktsýki (secondary Sjögren’s Læknablaðið 2000/86 859
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.