Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2000, Síða 57

Læknablaðið - 15.12.2000, Síða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NEYÐARMÓTTAKA Heimsókn í Neyðarmóttöku Neyðarmóttaka vegna nauðgunar var opnuð þann 8. mars 1993 og þar með skipaði ísland sér í hóp þeirra þjóða sem bjóða upp á hvað besta aðstöðu á þessu sviði bráðaþjónustu. Reynsla áranna sem liðin eru hefur sýnt svo ekki verður um villst að mikil þörf er á slíkri sérhæfðri þjónustu við fórnarlömb nauðgana. Neyðarmóttakan hefur verið skilgreind sem bráðaþjónusta með eftirfylgni og starfsemi hennar er í sífelldri þróun. Læknablaðið heimsótti móttökuna nýverið í fylgd með Guðrúnu Agnars- dóttur yfirlækni móttökunnar og Eyrúnu Jónsdóttur umsjónarhjúkrunarfræðingi. Erindið var að skoða þá aðstöðu sem til staðar er, hvernig ferlið er frá því leitað er til móttökunnar og fræðast um starfsemina. Guðrún og Eyrún hafa starfað að þessum málum í hartnær áratug, bæði við skipulag og rekstur móttökunnar. Flestir sem koma í Neyðarmóttökuna koma fyrst inn á slysa- og bráðamóttöku Landspítala Fossvogi, sem margir þekkja. Afgreiðslunni þar hefur verið breytt, ekki síst vegna þessa nýja viðbótarhlutverks hennar, og nú er hægt að gefa sig fram við afgreiðsluna án þess að ótal eyru á biðstofunni blaki þegar greint er frá erindinu. Þjónusta sú sem stendur til boða er bæði ókeypis og nafnlaus, frá fyrstu stund fær málið númer og öll gögn, bæði sýni og skýrslur, eru geymd undir því númeri, ekki nafni. Ef lögreglan er komin í málið fylgir hún fórnarlambinu inn á Slysadeild um inngang sjúkrabfla þannig að ekki þarf að fara um afgreiðsluna. Skjólstæðingar Neyðar- móttökunnar hafa forgang á slysa- og bráða- móttökunni nema þegar um alvarleg slys eða sjúk- dómstilvik er að ræða. Fórnarlömbum nauðgana og aðstandendum þeirra er fylgt inn í notalegt móttökuherbergi þar sem hjúkrunarfræðingur úr teymi starfsfólks Neyðarmóttökunnar tekur á móti þeim. Nú eru 12 hjúkrunarfræðingar í þessu teymi, þannig að alltaf næst fljótt í einhvern þeirra á bakvakt eða við störf á slysadeildinni. Annað starfsfólk í teyminu er sjö kvensjúkdómalæknar, fimm ráðgjafar, tveir sálfræðingar og fjórir lögfræðingar. Allt þetta fólk hefur fengið sérstaka þjálfun til að takast á við hið erfiða hlutverk sem það hefur tekið að sér. Misjafnt er hve lengi hver og einn dvelur á Neyðarmóttökunni, en það getur verið allt að einum sólarhring ef viðkomandi þarf tíma til að jafna sig eftir nauðsynlega skoðun og skýrslutöku. Oftast konur Það kemur í hlut hjúkrunarfræðings að kanna málsatvik og mynda fyrstu tengsl við konuna eða karlinn sem varð fyrir nauðguninni. í flestum tilvikum er um konu að ræða og í tveimur af hverjum þremur tilvikum undir 25 ára aldri. Ef um einstakling yngri en 18 ára er að ræða er barnarverndarnefnd Félagsþjónustunnar ávallt gert viðvart eins og lög gera ráð fyrir og í samráði við skjólstæðing. I þessari Eyrún Jónsdóttir og Guðrún Agnarsdóttir í notalegum húsakynnum Neyðarmóttökunnar, þar sem aðstandendur geta beðið meðan skoðun ferfram. Megnið af húsbúnaðinum er gjafir frá velunnurum. Læknablaðið 2000/86 873
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.