Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2000, Side 61

Læknablaðið - 15.12.2000, Side 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NEYÐARMÓTTAKA lýsingum áverka. Pó við höfum flest starfað lengi, finnst engu okkar auðvelt að koma sem vitni í dómsmáli. Hins vegar hafa bæði þeir sem eru verjendamegin og sækjendamegin lært heilmikið á þeim tíma sem liðinn er frá því móttakan opnaði. Þeir skilja málin og röksemdafærsluna betur nú en áður.“ Hvernig byggið þið ykkur upp til að mœta þessu álagi? „Við styrkjum hvert annað og ræðum saman þannig að við vitum hvaða reynslu hver fyrir sig öðlast með því að fara fyrir rétt. Berum saman bækur okkar um spurningar, framkomu, svör og heimildir sem við vitnum í. Síðan má segja að það sé verulegur styrkur í því hvernig móttakan er byggð upp varðandi vinnubrögð. Skýrslueyðu- blöðin sem við fyllum út eru stöðluð og fyllt út á nákvæman hátt sem tryggir góð vinnubrögð og vekur traust.“ Þannig að þið þurfíð ekki að vera á nálum yfir að gleyma einhverju? „Nei, alls ekki. Við höfum líka alltaf hjúkrunarfræðing með okkur við móttöku brotaþolans og samvinnan er góð. Með tímanum höfum við líka náð betri tökum á þessu fjölþætta hlutverki. Auk læknisstarfs og réttarlæknis- rannsóknar metum við andlegt ástand konunnar eða karlsins - oft er viðkomandi í losti - en það geta líka verið allt frá tiltölulega litlum við- brögðum, ef í hlut á sterkur einstaklingur, til einstaklings í sjálfsmorðshættu. Þetta þarf að meta og vísa viðkomandi áfram ef eitthvert hættuástand er á ferðinni. Hið venjulega læknishlutverk felst í að huga að áverkum og meðhöndla meiðsl og sár, tognanir og þvíumlíkt. Meðan við gerum þessar skoðanir þarf að vinna hinar réttarlæknisfræðilegu athuganir og skoðanir og taka sýni jafnóðum. Þannig að það geta komið stundir þegar manni finnst að brotaþolinn sé afskiptur. Þá þarf að sýna fram á að verið sé að gera það besta sem hægt er, því sýni þurfa auðvitað að vera rétt merkt og vel frá þeim gengið.“ Er ekki boðið upp á einhvers konar handleiðslu? „Jú, læknahópurinn hittist reglulega og við eigum eftir að taka saman reynslu okkar af því. Eins og algengt er með lækna þá finnst þeim að þeir eigi að geta ráðið við allt, sérstaklega eigið álag. í fyrstu vorum við svolítið efins um þetta fyrirkomulag, en þetta hefur reynst mjög gagnlegt, ekki síst félagslega séð. Við sem erum í læknateyminu vinnum hvert á sínum vinnustað, hittumst mjög sjaldan og sum hver mundum við ekki hittast nema af því þessir fundir eru haldnir. Við höfum gagn og gaman af fundunum, tölum saman og hlæjum, erum líka að greiða úr hagnýtum málum, gera ráðstafanir, áætlanir og taka ákvarðanir. Auk þess getum við létt á okkur og rætt um erfiða hluti." Hvað rekurfólk til þess að vera í þessu ofan á fullt starf? „Ég held að fyrst og fremst hafi ég haft þá tilfinningu frá upphafi að þarna væri hægt að gera gagn. Og ennþá held ég að flestum okkar finnist að svo sé. Við fáum svörun við vinnu okkar tiltölulega fljótt. Hittum konuna sem við tókum á móti aftur eftir tvær vikur og finnum að hún er fegin að hafa komið. Móttakan hefur nýst henni. En hvort nauðgunum fækkar eða ekki er auðvitað mjög erfitt að meta. Ég á frekar von á að svo sé. Það að þessum málaflokki er almennilega sinnt og brota- þolar finna að þeir eiga einhvern vettvang leiðir ef til vill til einhverrar viðhorfsbreytingar. Þótt tíðnitölur segi það ekki beint, þar sem ekki er hægt að segja til um hve margir voru ótaldir áður, þá er það mín trú.“ Hvað með karlana? „Ennþá held ég að þeir séu ragari við að koma en konurnar en það er vonandi að breytast.“ Er Neyðarmóttakan ekki orðin þjónusta sem allir reikna með? „Jú, ég held að það sé reynsla þeirra sem hafa komið og aðstandenda eða vina sem koma með, að þjónustan sé búin að sanna sig. Neyðarmóttakan er komin til að vera.“ - aób Ósk Ingvarsdóttir er ekki í vafa wn að Neyðarmót- takan hefur reynst gagnleg. Læknablaðið 2000/86 877

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.