Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 75

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HELSINKIYFIRLYSINGIN Alþjóðafélag lækna. Helsinkiyfirlýsingin Siðfræðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum SAMÞYKKTAR Á 18. HEIMSÞINGI LÆKNA f Helsinki í júní 1964 og breytt á 29. þinginu í Tókíó í október 1975, á 35. þinginu í Feneyjum í október 1983, á 41. þinginu í Hong Kong í september 1989, á 48. þinginu í Somerset West í Suður-Afríska lýðveldinu í október 1996 og á 52. þinginu í Edinborg í október 2000. A. Inngangur 1. Alþjóðafélag lækna hefir þróað Helsinki- yfirlýsinguna sem staðhæfingu um siðfræðilegar meginreglur, í því skyni að leiðbeina læknum og öðrum, sem þátt taka í læknisfræðilegum vísindarannsóknum á mönnum. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum ná til rannsókna á efniviði úr mönnum, sem kennsl verða borin á eða gögnum, sem kennsl verða borin á. 2. Það er skylda læknisins að vemda heilbrigði manna. Þekking hans og samvizka eru helguð því að uppfylla þessa skyldu. 3. Genfarheit Alþjóðafélags lækna bindur lækn- inn með orðunum: „Ég mun hafa heilbrigði sjúklinga minna í huga framar öllu öðru“ og í alþjóða- siðareglum lækna er því lýst yfir, að „Lækni ber einungis að taka mið af hagsmunum sjúklings, þegar hann veitir læknisþjónustu, sem gæti haft þau áhrif að veikja líkamlegt og geðrænt ástand sjúklings". 4. Framfarir í læknisfræði hvíla á vísindarann- sóknum, sem endanlega hljóta að einhvetju leyti að fela í sér tilraunir á mönnum. 5. í læknisfræðilegum vísindarannsóknum á mönnum skal ávallt setja umhyggju fyrir velferli þátttakandans ofar þörfum vísinda og samfélags. 6. Frumtilgangur læknisfræðilegra vísindarann- sókna á mönnum er að bæta greiningar-, lækninga- og forvamaaðferðir og að auka skilning á orsökum sjúkdóma og á uppruna þeirra og þróunarferli. Jafn- vel þær greiningar-, lækninga- og forvamaaðferðir, sem beztar sönnur hafa verið færðar á, verður stöðugt að vefengja með rannsóknum á virkni, notum, aðgengi og gæðum þeirra. 7. í læknisstörfum nú á dögum og í læknis- fræðilegum vísindarannsóknum fela flestar grein- ingar-, lækninga- og forvarnaaðferðir í sér áhættu og byrðar. 8. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir eru háðar siðfræðilegum stöðlum, sem stuðla að virðingu fyrir öllum mannverum og vemda heilbrigði þeirra og réttindi. Sum rannsóknarþýði eru berskjölduð og þarfnast sérstakrar verndar. Viðurkenna verður sérstakar þarfir þeirra, sem eru illa settir fjárhagslega og heilsufarslega. Sérstakrar athygli er einnig krafizt fyrir þá, sem ekki geta veitt eða neitað samþykki, fyrir þá, sem geta lent í því að veita samþykki nauðugir, fyrir þá, sem ekki munu öðlast persónu- legar hagsbætur af því að taka þátt í vísindarann- sókninni og fyrir þátttakendur, sem njóta umönn- unar í tengslum við rannsóknina. 9. Vísindakönnuðum ættu að vera ljósar þær siðfræðilegu kröfur og þau lög og reglur, sem gilda um læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum í heimalandi þeirra, svo og þær alþjóðlegu kröfur, sem við eiga. Engar þær siðfræðilegar kröfur eða lög og reglur ætti að leyfa í neinu landi, sem draga úr eða nema brott neina þá verndun þátttakenda, sem sett er fram í yfirlýsingu þessari. B. Grunnmeginreglur fyrir allar læknisfræöilegar vísindarannsóknir 10.1 læknisfræðilegum vísindarannsóknum er það skylda læknisins að vernda líf, heilsu, einkalíf og reisn þátttakandans. 11. Læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönn- um verða að fullnægja vísindameginreglum, sem almennt eru viðurkenndar, hvíla á ítarlegri þekkingu á vísindabókmenntunum, á öðrum viðeigandi heimildum, vera byggðar á viðeigandi rann- sóknarstofutilraunum og þar sem við á, tilraunum á dýrum. 12. Viðeigandi aðgát skal höfð við rannsóknir, sem áhrif geta haft á umhverfið og virt skal velferð dýra, sem notuð eru við tilraunir. 13. Aætlun um og framkvæmd hverrar tilraunar á mönnum skal skilgreina mjög ljóst í rannsóknar- reglum. Þær reglur skal senda til umfjöllunar og þar sem við á, til samþykktar, í óháðri siðfræðilegri nefnd, sem sérstaklega er skipuð í þessu skyni og er nefndinni ætlað að veita umsögn og leiðbeiningar og skal hún vera óháð könnuði og frumkvöðli og vera laus við hver önnur ótilhlýðileg áhrif. Þessi óháða nefnd skal vera í samræmi við lög og reglur þess lands, þar sem rannsóknin fer fram. Nefndin hefir rétt til þess að hafa eftirlit með þeim rannsóknum, sem fram fara. Könnuðinum ber skylda til að láta nefndinni í té upplýsingar vegna eftirlitsins, sérstaklega um öll alvarleg meintilvik. Könnuðurinn ætti einnig að leggja í mat nefndarinnar upplýsingar um fjármögnun, frumkvöðla, tengsl við stofnanir, aðra hugsanlega hagsmunaárekstra og hvatningu til þátttakenda. 14. í rannsóknarreglunum skal ávallt vera yfir- lýsing um þau siðfræðilegu álitamál, sem um er að ræða og þar skal tekið fram, að þær séu samkvæmt Læknablaðið 2000/86 889

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.