Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 79

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐASAFN LÆKNA 128 Esophagus Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Dægradvölin Dægradvölin í síðasta pistli var úr ritlingi eftir Helga Skúlason, augnlækni á Akureyri. Hann ber heitið: UM GLAUKOMBLINDU. Leiðbeiningar fyrir almenning, og var gefinn út árið 1933. Úr síðustu setningunni var sleppt tveimur orðum: - að ekki sje allt með felldu hvað sjón þeina snertir - Dægradvöl III er enn eldri. Spurt er um höfundinn og viðfangsefnið. Dægradvöl III. „Opt hef jeg haft með þann bannsettan kvilla að gjöra, en aldrei gjört neitt að gagni við hann fyr en nú nýlega á einum sjúkl. Petta er einn af þeim sjúkd. sem er algjörl. kirurgiskur, en meðöl eru allajafna brúkuð við, þó þau vissulega sjeu með öllu bráðónýt. Jeg hef sagt sjúkl. mínum það afdráttarlaust, en af því operat. er nokkuð hættuleg og hefur ekki tíðkast hjer, svo jeg viti, þá hafa sjúkl. veigrað sjer við henni.“ SlGURBJÖRN BlRGISSON, MELTINGARSÉRFRÆÐINGUR, hringdi og spurði hvert væri íslenska heitið á esophagus. Undirrituðum þótti sem meltingarsér- fræðingnum væri farið að förlast illilega og svaraði án mikillar umhugsunar að það væri vélinda. Sigurbirni var greinilega brugðið við svarið þó hann tæki því af sinni alkunnu stillingu. Hrossahlátur heyrðist hljóma á bak við Sigurbjöm og síðan fylgdi upphrópunin: „Vissi ég ekki!“. Par var þá að verki annar meltingarsérfræðingur, Ásgeir Böðvarsson, og undir- ritaður fann að meira bjó undir en í Ijós hafði komið við sakleysislega spurninguna. í skyndingu var komið á þriggja manna símtali og málið reifað og rætt. Sigurbjörn var að sjálfsögðu búinn að fletta upp í íðorðasafni lækna, en þar stendur skírum stöfum að íslenska heitið sé vélindi. Þetta hafði Sigurbjörn viljað staðfesta með símtali við sérfróðan orða- nefndarmanninn, sem nú brást honum illilega. Til þess að bjarga heiðri sínum myndaði undirritaður, fæddur Siglfirðingur, fljótt bandalag með Þing- eyingnum Ásgeiri til að sannfæra Sigurbjöm, borinn og barnfæddan Reykvíkinginn, að hér gæti verið um að ræða norðlensku annars vegar og sunnlensku hins vegar. Sigurbirni þótti greinilega ekki mikið til koma um Norðlendingabandalagið og vildi einfaldlega fá að vita hvort réttara væri vélinda eða vélindi. í fyrirhuguðu fræðsluátaki um bakflæði yrði annað hvort talað um vélindis- bakflæði eða vélindahak- flæði og vildi Sigurbjörn nota það sem réttara reyndist. Símtalinu lauk í bróðerni eftir að undir- ritaður hafði lofað að rannsaka læknisfræðilegar heimildir og hinir málvenju í hópi starfsbræðra sinna. Vélindi Undirritaður kannaði fjöl- mörg læknisfræðileg rit sem gefin höfðu verið út á íslandi á árunum 1884 til 1969. I öllum var notuð orðmyndin vélindi (vjelindi í þeim elstu). Sama gerðu íslensk læknisfræðiheiti frá 1954, íslensk líffæraheiti frá 1956 og íðorðasafn lækna, E-heftið frá 1991. Hjá Orðabók Háskólans fengust þær upplýsingar að sú orðmynd væri frá fyrri hluta 17. aldar og því upprunalegri og „réttari“ en vélinda. sem væri frá síðari hluta 19. aldar. Með þessa vitneskju að vopni hafði hann aftur samband við meltingarsérfræð- ingana og tjáði þeim að réttara væri að nota heitið vélindi. Lokasetningin í röksemdafærslunni var þessi: „Við verðum víst að láta Iðorðasafnið ráða!“ Vélinda Nú var komið að Ásgeiri Böðvarssyni að gefa sig ekki. Hann hafði á fundi með öðrum meltingar- sérfræðingum spurt hvora orðmyndina þeir notuðu og sögðust þeir allir nota heitið vélinda. Ásgeir bætti því við að ólíkt liprara væri að tala um vélindabak- flæði heldur en vélindisbakflæði. Undirritaður var í hjarta sínu sammála en vildi láta fræðilegar rök- semdir ráða. Aftur var leitað ráða og enn var farið í bækur. Hjá Islenskri málstöð fékkst það álit að orðmyndirnar væru jafngildar, báðar „réttar“. f Orðsifjabókinni frá 1989 má finna orðmyndirnar vélinda, vélindi, vélendi, vœlindi, vœlinda og vœlunda. Þrátt fyrir að bent sé á tengsl við ákveðin orð í skyldum málum er orðfræðilegur uppruni talinn óviss. Hjá Orðabók Háskólans var viðruð sú skýring að breytingin frá vélindi í vélinda hefði sennilega orðið vegna áhrifa frá öðrum líffæraheitum sem enduðu á -a, auga, eista, hjarta, lunga, nýra. Sama má líklega segja um breytinguna frá milti í milta. Eftir að hafa einnig skoðað orðabækur þóttist undirritaður geta sett fram þá kenningu að orðmyndin vélinda ætti vaxandi fylgi að fagna og væri orðin ráðandi. Því lil stuðnings má benda á að íslenska alfræðiorðabókin frá 1990 og Ensk-íslensk orðabók frá 1991 (báðar reyndar frá Erni og Örlygi) birta eingöngu heitið vélinda og að íslensk orðabók Máls og menningar birtir það sem aðalheiti þó báðar orðmyndirnar séu tilgreindar. Niðurstaðan varð að lokum sú að orðmyndin vélinda skyldi notuð í fræðsluátakinu Vitundar- vakning um vélindabakflæði. Læknablaðið 2000/86 893

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.