Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 87

Læknablaðið - 15.12.2000, Page 87
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HIN HLIÐIN Hin hlíðin á Páli Torfa Önundarsyni Páll Torfi Önundarson á útgáfutónleikum sínum þann 20. október síðastliðinn. Tónleik- arnir voru haldnir í húsnœði lceknafélaganna að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Með Páli Torfa léku þar féiagar hans Tómas R. Einarsson á bassa, Aðalheiður Þorsteinsdóttir á pi- anó og Þórdís Claessen á slagverk, söng annaðist Jóhanna Þórhallsdóttir. Auk ofan- greindra koma fram á Timbúktú og tólf öðrum söngvararnir Egill Ólafsson og Kristjana Stefánsdóttir, Jóel Pálsson á saxófóna, Matthías M.D. Hemstock á trommur og slagverk, Oliver Manoury á bandoneon, Snorri Sigurðsson á trompet og Þórir Baldursson á píanó auk þess að stjórna upptöku. Hvað gera læknar í frí- stundum sínum? Hvað tekur við þegar vinnu- degi lýkur? Leita menn andlegrar og líkamlegr- ar uppörvunar á öðrum sviðurn, utan læknislist- arinnar? Læknablaðið hleypir hér af stokkun- um nýjum dálki undir heitinu Hin hliðin. Þau sem vilja sýna á sér hina hliðina eru hvött til að hafa samband, benda á viðmælendur eða senda pistla til blaðsins. Allar ábendingar eru vel þegnar. LJÚFAR BALLÖÐUR, SEIÐANDI SALSA, tangó með tregablöndum tóni, ómþýður gítar, stríður bassi og grátandi nikka. Allt þetta og margt fleira er að finna á Timbúktú og tólf öðrum, nýút- komnum geisladiski Páls Torfa Önundarsonar, þar sem hann flytur eigin lög, gömul og ný, og hefur sér til fulltingis heilt landslið tónlistarmanna. Auk lagasmíðinnar hefur Páll Torfi einnig samið flesta textana og spurning, hvort einhver þeirra verði jafn vinsæll og Kartöflugarðurinn úr Þykkvabæn- um forðum, sem reyndar annar maður alls óskyld- ur eignaði sér. En skyldi vera gott fyrir blóðmeinafrœðinginn að hafa smá salsa í blóðinu? Gefum Páli Torfa orð- ið: Ég hef raunar alltaf haldið því fram að blóð- meinafræðingurinn hafi orðið til löngu á eftir tón- listarmanninum Páli Torfa. Spurningin er kannski fremur sú hvort það sé gott fyrir einhvern, sem hefur áhuga á salsa, að verða læknir og blóðmeina- fræðingur? Mér finnst það fara afskaplega vel saman - hóflega þó. Sem þýðir að annað er aðal- starfið en hitt tómstund og góð tómstund held ég að geri ekkert nema gott fyrir sálina í mönnum og hjálpi til við brauðstritið. í sannleika sagt er gott fyrir alla að hafa ein- hverja tómstundaiðkun og nýta tómstundirnar í annað en horfa á sjónvarpið. Hvíldin er fólgin í því að gera eitthvað, ekki að leggjast flatur fyrir. Það eru mjög margir læknar sem iðka einhver tómstundastörf, meðal okkar má finna listmálara, leikritaskáld, hestamenn, kylfinga, briddsara og músíkanta. Það eru einnig dæmi þess að læknar noti hluta læknisfræðinnar sem tómstund, vinni til dæmis klínísk störf mestan part en síðan vísinda- störf til hliðar, þá er einnig hægt að líta á vísinda- rannsóknina sem einhvers konar sport. Aðalstarf- ið er að fást við sjúklinga en kvöldin fara í rannóknir. Menn gera þetta líka til að dreifa hug- anum og það hjálpar vissulega mjög mikið til að brenna ekki út. Ég geri þetta til dæmis sjálfur og lít á það að vinna að vísindaverkefni sem aðferð til þess að slaka á frá þeim hluta læknisfræðinnar sem er brauðstritið. Og í sjálfu sér er það ekkert mjög ólíkt því að vera með gítar eða saxófón í hönd. í hvoru tveggja er samspilið, samstarf við aðra, sköpun á formi, sköpun á texta. I hvoru tveggja verður að vera rytmi og stæll í framsetn- ingu til að hefjast á flug - þetta er nánast alveg eins, sömu lögmálin. Ég hef líka sagt að það sé ágætis stjórnunarnám að spila í hljómsveit, vegna þess að í hljómsveit ákveða menn á hvaða hljóðfæri eigi að leika, menn fá ákveðin hlutverk og ákveðið frelsi en einnig ákveðinn ramma og fá ekki að leika sóló fyrr en kemur að þeim. Það gengur ekki að ein- hver fari að spila sóló ofan í sóló annars, gagn- kvæm tillitssemi verður að ríkja. Þannig eru heil- miklar samlíkingar í þessu, hljómsveit er í raun eins og smækkuð mynd af stóru fyrirtæki. Atök geta verið innan sveitarinnar, eins og annars stað- ar, og allt gengur út á að ná málamiðlun, þannig að sameiginlegt markmið náist. Ég var í gítarnámi hjá Eyþóri Þorlákssyni frá 12 ára aldri og framundir tvítugt og hef í raun eytt mjög svipuðum tíma í músíkina alla tíð, að jafnaði kannski um klukkustund á dag. Einu gildir hvort ég hef verið einn eða í samspili með öðrum. Þetta er í raun spurning um það hvernig maður ver tím- anum. Hvert eða hvort eitthvert framhald verður á út- gáfuævintýri veit ég ekki. Þetta er svo sem engin ferð til fjár. I bili, að minnsta kosti, er það stofu- spilamennskan sem verður ofan á hjá blóðmeina- fræðingnum Páli Torfa Önundarsyni. -bþ Læknablaðið 2000/86 901

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.