Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2000, Side 89

Læknablaðið - 15.12.2000, Side 89
FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTINU OG LANDLÆKNI Lyfjamál 90 Að tillögu sóttvarnaráðs hefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra nýlega skipað sjö manna nefnd sem hefur það hlutverk að vakta ónæmi fyrir sýklalyfjum meðal sýkla í mönnum, dýrum og umhverfi. Jafnframt skal nefndin fylgjast með notkun sýklalyfja og vera yfirvöldum og öðrum er málið varðar til ráðgjafar um aðgerðir til að sporna við ofnotkun sýklalyfja og öðru sem að gagni má koma til að hindra myndun ónæmis. Nefndin skal skila ráðherra skýrslu um störf sín árlega. Formaður hennar er Karl G. Kristinsson prófessor, sýklafræði- deild Landspítala Hringbraut. Nokkur árangur hefur náðst á undanförnum árum í þá átt að draga úr notkun sýklalyfja og gætir þess helst í flokki súlfónamíða (J01E) og makrólíða (J01F). Miklar árstíðasveiflur eru í notkun beta- laktam sýklalyfja, penicillína og tetracýklína eins og sést á línuritum hér að neðan. Þegar skoðuð er notkun lyfjaforma fyrir börn sjást jafnvel enn meiri árstíðasveiflur en jafnframt greinileg minnkun á tímabilinu. ♦ J01A Tetracýklínsambönd Helstu flokkar sýklalyfja 1992-2000 -*-J01C Beta-laktam sýklalyf, penlcillín —a—J01D Onnur beta-laktam sýklalyf Sýklalyf fyrir börn. Mixtúrur, dropar, lausnartöflur, endaþarmsstílar DODMOOOíb./dag Læknablaðið 2000/86 903

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.