Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2001, Page 26

Læknablaðið - 15.01.2001, Page 26
FRÆÐIGREINAR / SYKURSTERAR Table II. Complications, supposed due to iong term treatment with corticosteroids, registrated in 191 patients records. No comptication which coutd be related to the corticosteroids therapy was recorted in 63 out of 191 patients records (33.0%). Complication No of patients (%) Osteoporosis (assumed) 50 (26.2) Cushingoid changes 49 (25.7) Fractures (assumed osteoporosis related*) 39 (20.4) Edema 37 (19.4) Infections problems 24 (12.6) Gastrointestinal complaints 20 (10.5) Cataract / glaucoma 18 (9.4) Hypertention 16 (8.4) Hyperglycemia / diabetes mellitus 15 (7.9) Dermal artophy 14 (7.3) Mental symptoms 11 (5.7) Muscular atrophy 4 (2.1) Thrombosis 4 (2.1) Oral mucosal symptoms 1 (0-5) * 32 compression fractures in columna vertebralis; three fractures of distal ulna and one fracture of: colum femoris, subtrochanter, tibia and fibula. handleggsmæli staðsettum á FSA, en mælirinn var óáreiðanlegur vegna tíðra bilana. Mælirinn var á rannsóknartímabilinu sendur utan til viðgerðar og urðu það síðar örlög hans að hverfa í hafið með strandi Vikartinds veturinn 1997. Tvær konur voru beinþéttnimældir á rannsóknartímabilinu á Sjúkra- húsi Reykjavíkur (Dual X-ray Absorption aðferð). Önnur þeirra reyndist með beinþynningu, en hin hafði góðan beinhag. Beinbrot: Þrjátíu og níu sjúklingar, 25 konur (64%) og 14 karlar (36%), höfðu beinbrotnað eftir að sykursterameðferðin hófst. Algengast voru sam- föll í hryggjarbolum eða 32, þar næst þrjú framhand- leggsbrot. Einn sjúklingur hafði brotnað á lærleggs- hálsi og annar hafði brotnað við mjaðmarhnútuna, enn annar sjúklingur hafði ökklabrotað og sá fjórði fengið brot á dálk. Einn sjúklingur hafði bæði fengið samfall í hrygg og framhandleggsbrot og annar sjúklingurinn sem hafði lærleggsbrotnað hafði líka brotnað á mjaðmagrind. Meðalaldur þeirra sem höfðu sögu um beinbrot var 75 ár (62-90 ár) eða níu árum hærri en meðferðarhópsins í heild (p>0,0001). Upphafs- og viðhaldsskammtur prednisólóns í þessum hópi var hinn sami og fyrir allan meðferðar- hópinn (26 mg á móti 24 mg og 6,3 mg á móti 6,0 mg prednisólón) og mögulegt var að áætla meðferðar- lengdina hjá 23 einstaklingum, en að meðaltali leið 31 mánuður (3-168) frá meðferðarbyrjun að bein- broti. Dánarorsakin Tuttugu og sjö sjúklingar létust á rannsóknartímabilinu, meðalaldur þeirra var 74 ár. Dánarorsakir þeirra voru eftirfarandi: 10 sjúklingar létust úr öndunarbilun og þrír úr lungnabólgu, átta sjúklingar dóu vegna hjartasjúkdóma, fimm vegna illkynja sjúkdóma og einn sjúklingur dó vegna heila- blæðingar. Átta þessara einstaklinga (30%) höfðu fengið beinbrot. Forvöm gegn beinþynningu: Samkvæmt sjúkra- skrám voru meðferðarráðstafanir gegn beinþynn- ingu færðar til bókar hjá 61 sjúklingi (32%). Ef frá eru taldar 15 konur, sem héldu áfram hormónaupp- bótarmeðferð sinni við upphaf sykursterameðferðar- innar, fengu 46 sjúklingar ítarlegri meðferðarráðlegg- ingar gegn beinþynningu samkvæmt sjúkraskrám. Meðalaldur þessa hóps var 66 ár (23-93 ár) sem samanstóð af 46 konum og 15 körlum. Eitt hundrað sextíu og fjórir einstaklingar voru á lífi er rannsóknin var framkvæmd veturinn 1997. Eitt hundrað þrjátíu og tveir (80,5%) þeirra útfylltu spurningablað um neysluvenjur. Niðurstöður þessara spurningablaða sýndu að 93% karla og kvenna neyttu reglulega mjólkurvara. Auk þess tóku 37% einnig kalktöflur daglega. Fimmtíu og tvö prósent hópsins tóku reglulega lýsi og tryggðu sér þannig dagsþörf af D-vítamíni. Þrjátíu og átta sjúklingar (29%) tóku bæði kalk og D-vítamín daglega. Af 106 konum höfðu 86 eða 81% náð tíðahvörf- um, meðalaldur þeirra var 64 ár. Aðeins 18 þeirra (21%) fengu hormónauppbótarmeðferð á rann- sóknartímabilinu. Enginn karl fékk meðferð með karlkynshormónum sem vörn eða meðferð gegn beinþynningu. Bísfosfónöt tóku 10 konur og sjö karlar eða 9% sjúklingahópsins. Fjórtán þessara sjúklinga höfði sögu um beinbrot og tveir sjúklingar til viðbótar höfðu beinþynningu án beinbrota (annar þeirra hafði gengist undir beinþéttnimælingu). Þannig tóku 16 sjúklingar bísfosfónöt sem meðferð gegn greindri beinþynningu, en einungis einn karl með sykursýki og nýgreinda fjölvöðvagigt fékk bísfosfónatameðferð í forvarnarskyni. Tveir sjúklingar með beinþynningu og samfalls- brot í hrygg höfðu fengið kalsítónínkúra í stuttan tíma sem hluta af verkjastillandi meðferð meðan á sjúkra- húsdvöl stóð. Beinbrot og beinþynningarmeöferð: Rúmlega þriðjungur hópsins (36%), sem höfðu fengið beinbrot, voru meðhöndlaðir með bísfosfónötum, sem samsvarar að 32% þeirra sjúklinga er taldir höfðu verið með beinþynningu samkvæmt sjúkra- skrám fengu meðferð með lyfi af þessum flokki. Tuttugu og níu sjúklingar (58%) er höfðu bein- þynningu samkvæmt sjúkraskrám höfðu hvorki feng- ið hormónauppbótarmeðferð né meðferð með bísfosfónötum. Hins vegar tóku 44% þeirra reglulega kalktöflur og 58% þeirra tryggðu sér D-vítamín inntöku með reglulegri neyslu lýsis. Umræða Rannsókn okkar nær til tæplega tíunda hluta íbúa landsins og lýsir ávísunarvenjum heilsugæslulækna og annarra sérfræðilækna á sykursterum yfir tveggja ára tímabil á öllu Norð-Austurlandi. í ljósi þessa verður að telja að niðurstöðurnar séu marktækar og óhætt sé að varpa þeim yfir á landið í heild sinni. Rannsóknin sýnir að 0,72% íbúa Norðurlands eystra eru á 26 Læknablaðið 2001/87

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.