Læknablaðið - 15.01.2001, Page 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NEYÐARHJÁLP
Bráðvantar lækna til Palestínu
Læknarnir Sveinn Rúnar Hauksson og Guð-
björn Björnsson heimsóttu nýverið byggðir
Palestínumanna á átakasvæðinu á Gazaströndinni.
Tildrögin voru þau að Guðbjörn þurfti að mæta á
stjórnarfund hjá ÍSAM (International Society for
Addiction Medicine) í Kaíró og á ráðstefnu sam-
takanna í leiðinni. Pað varð úr að Sveinn Rúnar slóst
í för með honum og sótti ráðstefnuna. Upphaflega
átti hún að vera á tveimur stööum. í Jerúsalem og
Kaíró, en ísraelsmenn hurfu frá því að halda hluta
hennar í Jerúsalem vegna ástandsins. Pað voru
einkum læknar á meðferðarstofnunum og heimilis-
læknar sem sóttu ráðstefnuna en Guðbjöm er læknir
á Vogi og Sveinn Rúnar heimilislæknir og fyrrverandi
yfirlæknir á sjúkrastöðinni Von. A ráðstefnunni var
fjallað um framfarir á sviði lækninga og forvarna
gagnvart áfengissýki, lyfjafíkn og annarri
fíkniefnamisnotkun, þar á meðal reykingum.
Kappnóg af verkefnum fyrir eina ferð, en þeir létu
ekki þar við sitja.
í framhaldi af ráðstefnunni héldu þeir félagar til
Jerúsalemborgar, Vesturbakkans og Gazastrandar-
innar til að kynna sér af eigin raun afleiðingar
hernaðar ísraela á hendur Palestínumönnum og
hvernig læknar bregðast við þeim aðstæðum sem
skapast. A Gazaströndinni heimsóttu þeir fjölmörg
sjúkrahús, en Sveinn Rúnar þekkir vel til þessa svæðis
gegnum starf sitt sem formaður Félagsins ísland-
Palestína og hefur tvívegis áður heimsótt svæði
Palestínumanna og kynnt sér heilbrigðisþjónustuna. í
Sveinn Rúnar Hauksson.
framhaldi af ferð þeirra félaga fékk Læknablaðið
Svein Rúnar í spjall og grennslaðist meðal annars
fyrir með hvaða hætti íslenskir læknar gætu veitt
neyðaraðstoð og hvernig undirbúningi þess væri
háttað. Hann var fyrst spurður hvort vel hefði gengið
að komast inn á átakasvæðin:
„Pað er varla hægt að segja það. Þarna voru ekki
margir á ferð, hvorki læknar né aðrir. Raunar átti
ekki að hleypa okkur í gegn og inn á svæðið.
ísraelsmenn töldu að tveir læknar frá Islandi ættu
ekkert erindi inn á Gaza. Pað gagnaði lítið fyrir okkur
að benda á að beðið væri eftir okkur og að við ættum
heimboð hjá starfsfélögum okkar. A endanum voru
það gömlu, góðu, íslensku samböndin sem tryggðu
okkur leið í gegn. Islenskur ljósmyndari, Þorvaldur
Örn Kristmundsson á DV, hafði komið sér upp
samböndum hjá ísraelska hemum og var með
ísraelskt blaðamannaskírteini. Eftir nokkur símtöl
var okkur reddað í gegn. Merkilegt nokk, þá hefur
stefna ísraelsstjórnar að þessu sinni verið sú að leyfa
blaðamönnum að fylgjast með en stundum hefur
verið algert fréttabann í gildi.“
Skrifstofan rjúkandi rúst þremur dögum síöar
Hverjir voru það sem þið heimsóttuð?
„Við áttum fyrst stefnumót við dr. Zakaria Agha,
sem var áður yfirlæknir á Ahli-sjúkrahúsinu, en í
mínum fyrri heimsóknum 1990 og 1992 var það eina
sjúkrahúsið sem Palestínumenn leituðu til á átaka-
tímum, en nú er stærsta sjúkrahúsið, Shifa, einnig
komið undir stjórn Palestínumanna. Dr. Agha er að
mestu hættur læknisstörfum og kominn í miðstjórn
Fatah-stjórnmálahreyfingarinnar, eins konar mið-
flokks og sósíaldemókrata þeirra Palestínumanna.
Við hittum hann á skrifstofu þeirra samtaka en
þremur dögum síðar var hún sprengd í loft upp. Ég var
varla lentur heima þegar ég sá dr. Agha á skerminum,
brattan að vanda, í beinni útsendingu á CNN vegna
þessarar árásar, en skrifstofan var rústir einar.“
Það hefur kannski verið nokkuð stór skammtur af
raunveruleika, að sjá hve skammt var milli ykkar og
sprengingarinnar?
„Jú, það var svolítið einkennilegt, en það var svo
margt fleira sem var raunverulegt við þessa
heimsókn. Þótt við værum ekki á vígvellinum og
sæjum ekki skothríð þá heyrðum við hana. Við vorum
á hinum endanum, við móttöku særðra, og sáum
fólkið þegar það var að koma eftir að hafa orðið fyrir
skotárásum og einnig sjúklinga sem legið höfðu á
sjúkrahúsi í nokkra daga og gengist undir aðgerðir.“
Tölur fallinna úr hópi Palestínumanna eru orðnar
ógnvekjandi háar, en þarfekki að margfalda þœr til að
fá út tölu særðra?
68 Læknablaðið 2001/87