Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2001, Síða 24

Læknablaðið - 15.05.2001, Síða 24
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING Mynd 5. Op milli gátla og slegla eða lokuvísagalli. Gáttaskil eru nœr engin og því um eina sameiginlega gátt að rœða (common atrium CA). Aðeins lítill hluti sleglaskila er til staðar (ivs) og aðeins ein loka til staðar milli gátta og slegla (örvar). hann er svo dæmigerður fyrir Downs heilkenni að slík greining er ábending fyrir litningarannsókn. Athygli- vert er að víxlun á stóru slagæðunum (transposition of the great arteries), sem er alvarlegur meðfæddur galli, er fremur sjaldan greindur fyrir fæðingu þar sem slíkur galli brenglar ekki fjögurra hólfa sýn í 18-20 vikna ómskoðun þar sem ekki er litið eftir stóru slagæðunum. Fósturhjartaómskoðanir á íslandi Fósturhjartaómskoðanir hafa verið framkvæmdar á íslandi frá 1989 en á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á slíkum skoðunum, sem eru nú yfir 200 á ári. í rannsókn sem nær til greiningar á hjarta- sjúkdómum á fósturskeiði á íslandi frá 1989 til 1998 greindust 35 fóstur með hjartagalla eða að meðaltali 3,5 á hverju ári, (Óbirtar niðurstöður: Sigfússon G, Helgason H, Geirsson RT, Harðardóttir H, Fischer P, Hreinsdóttir M, et al.) Flest þessi fóstur voru með alvarlegan hjartagalla og þar af átta með vanþroska vinstra hjarta og fjögur með lokuvísagalla. Ófull- nægjandi fjögurra hólfa sýn var algengasta ástæða þess að hjartagalli greindist en aðrar ábendingar sem leiddu til greiningar á hjartagalla voru hjartsláttar- óregla hjá fóstri eða fjölskyldusaga um hjartagalla. Nítján meðgöngur enduðu þar sem framkölluð var fóstureyðing, eitt fóstur dó í móðurkviði og þrjú börn skömmu eftir fæðingu. Tólf börn sem greindust með hjartagalla á fósturskeiði voru á lífi en flest þeirra hafa gengist undir aðgerð og hafði greiningin áhrif á meðferð þeirra skömmu eftir fæðingu Úrræði Ávinningur af greiningu á hjartasjúkdómi fyrir fæðingu fremur en eftir að barnið er fætt, getur verið umtalsverður. Ef hjartagalli sem greinist hjá fóstri fyrir 22. viku meðgöngu hefur mjög slæmar horfur, er hægt að enda meðgönguna, ef foreldrar og læknar komast að sameiginlegri niðurstöðu um slíka aðgerð. Greining á hjartagalla á fósturskeiði getur orðið til greiningar á litningagöllum eða heilkennum því svo algeng eru slík vandamál samfara hjartagöllum, að greining á fósturskeiði er í flestum tilfellum ábending fyrir litningarannsókn. Greining á hjartagalla á fósturskeiði getur verið mikilvæg í sambandi við að tímasetja fæðingu og ekki síður að ákveða fæðingarstað. Þannig getur verið mjög mikilvægt að barn með slíkt vandamál fæðist á stað þar sem sérhæfð aðstaða er fyrir hendi, enda geta nýfædd börn með hjartagalla orðið lífshættulega veik skömmu eftir fæðingu. Greining á hjartsláttartruflun getur haft áhrif á hvernig barnið fæðist þar sem bæði hrað- og hægtaktur gera eftirlit með fósturhjart- sláttarriti í eðlilegri fæðingu erfitt og er því oft betra að slíkt barn fæðist með keisaraskurði. Hraðtakt, bæði ofsahraðan ofansleglatakt (supraventriculer tachycardia) og gáttaflökt er mikilvægt að greina enda er hægt að meðhöndla slíkt vandamál í fóstri með lyfjagjöf til móður sem síðan flytur lyfið til fóstursins yfir fylgju. Greining á hjartagalla á fósturskeiði gerir mögu- legt að fræða og undirbúa verðandi foreldra og er það mikilvægt þar sem aðgerðar er oft þörf skömmu eftir fæðingu barnsins. Er þetta ekki síst miklvægt þar sem hjartaaðgerðir á nýburum eru ekki gerðar í heima- landi, eins og hér á íslandi þar sem foreldrar þurfa oft að fylgja fárveiku barni sínu til útlanda nokkrum dögum eftir fæðinguna. Heimildir 1. Sigfússon G, Helgason H. Nýgengi og greining meöfæddra hjartagalla á íslandi. Læknablaðið 1993; 79: 107-14. 2. Kleinman CS, Hobbins JC, Jaffe CC, Lynch DC, Talner NS. Echocardiographic studies of the human fetus: prenatal diagnosis of congenital heart disease and cardiac dysrhythmias. Pediatrics 1980; 65:1059-63. 3. Allan LD, Tynan MJ, Cambell S, Wilkinson JL, Anderson RH. Echocardiographic and anatomical correlates in the fetus. Br Heart J 1980; 44: 444-8. 4. Ott WJ. The accuracy of antenatal fetal echocardiographic screening in high and low risk patients. Am J Obstet Gynaecol 1995;172:1741-9. 5. Kleinman CS, Copel JA. Prenatal diagnosis of structural heart defects. In: Creasy R, Resnik R, eds. Matemal and fetal medicine. 3rd ed. Philadelphia: W.B. Saunders; 1994. 6. Sharland GK, Allan LD. Screening for congenital heart disease prenatally. Results of a 2V2-year study in the South East Thames Region. Br J Obstet Gynaecol 1992; 99: 220-5. 7. Vergani P, Mariani S, Ghidini A, Schiavina R, Cavallone M, Locatelli A, et al. Screening for congenital heart disease with the four-chamber view of the fetal heart. Am J Obstet Gynaecol 1992; 167:1000-3. 412 Læknablaðið 2001/87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.