Læknablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING
mælinguna með ómskoðun um kvið (transab-
dominal) en ef lega fósturs eða líkamsbygging móður
er óhagstæð er gerð ómun um leggöng (transvaginal).
Við 12 vikur tekst nánast alltaf að ná hnakkaþykktar-
mælingu en við 14 vikur nást mælingar aðeins í um
90% tilvika, aðallega vegna óhagstæðrar legu fósturs
(16).
Við allar rannsóknir er mikilvægt að hægt sé að
endurtaka mælingar með áreiðanlegum hætti, innan
ákveðinna skekkjumarka. Þetta er tiltölulega einfalt
við ýmsar lífefnafræðilegar mælingar en við
ómskoðanir má búast við að niðurstaða sé að
einhverju leyti háð ómskoðaranum (operator
dependent). Til að meta áreiðanleika hnakka-
þykktarmælinga hefur Pandya skoðað á fram-
skyggnan hátt áreiðanleika endurtekinna mælinga
milli tveggja ómskoðara (inter-observer variation) og
þegar sami ómskoðari endurtekur mælingarnar
(intra-observer variation). Meðaltal mismunar á milli
mælinga hjá sama ómskoðara var 0,52 mm en milli
ómskoðara 0,62 mm (17).
Þeir sem eru vanir að ómskoða eiga auðvelt með
að tileinka sér hnakkaþykktarmælingar. Til að geta
nýtt sér mælinguna þarf að hafa aðgang að
hugbúnaði sem reiknar líkindamat með tilliti til
litningagalla. Þessi hugbúnaður er útgefinn af Fetal
Medicine Foundation í London og er eingöngu hægt
að fá hann eftir viðeigandi þjálfun hjá stofnuninni.
Þar eru reglulega haldin námskeið til þjálfunar í
hnakkaþykktarmælingum sem og námskeið varðandi
ýmis málefni er varða fósturgreiningu og fóstur-
meðferð, ásamt umönnun þungaðra kvenna. Nám-
skeiði í hnakkaþykktarmælingum lýkur með skrif-
legu prófi og eftir að hafa staðist prófið þarf
viðkomandi að senda inn 50 myndir af hnakka-
þykktarmælingum, til að sýna fram á að hann/hún
kunni að framkvæma mælinguna. Að því búnu fær
hann/hún viðurkenningu stofnunarinnar um að hafa
staðist kröfur þeirra og fær eintak af hugbúnaði.
Jafnframt er sett upp gæðaeftirlit (audit) sem
framkvæmt er á sex mánaða fresti, til að fylgjast með
mælingum innan stofnunarinnar og hjá hverjum
ómskoðara fyrir sig. Ef einstakar stofnanir eða
einstaklingar eru utan marka þarf viðkomandi að
fara aftur í þjálfun og skerpa á kunnáttunni.
Aukin hnakkaþykkt og litningagallar
Hækkandi aldur móður er vel þekktur áhættuþáttur
fyrir litningagalla (18). Líkindamat fyrir þrístæðu 21
er reiknað út frá aldri móður, meðgöngulengd og
hnakkaþykkt fósturs, það er hve mikið frávik er í
mælingu frá væntanlegu gildi (mynd 5).
Aldursbundnar líkur á litningagöllum eru gjarnan
kallaðar grunnlíkur (a priori) en þær geta verið meiri
en aldur segir til um ef konan hefur áður átt
fóstur/barn með þrístæðu. Hjá fóstri með tiltekna
haus-daus lengd endurspeglar hver hnakkaþykktar-
Mynd 5. Hér er sýnt hvernig eðlileg hnakkaþykkt er miðað við haus-daus lengd fósturs.
Heimild: Nicolaides KH, Sebire NJ, Snijders RJM. The 11-14-week scan. The diagnosis of fetal abnormalities. New York,
London: The Partehenon Publishing Group; 1999. Birt með góðfúslegu leyfi útgefanda.
Mynd 6. Líkur á litningagöllum eftir meðgöngulengd.
Heimild: Nicolaides KH, Sebire NJ, Snijders RJM. The 11-14-week scan. The diagnosis of fetal abnormalities. New York,
London: The Partehenon Publishing Group; 1999. Birt með góðfúslegu leyfi útgefanda.
mæling stuðul sem er margfaldaður með grunnlíkum
og nýtt líkindamat reiknað. Því meiri sem hnakka-
þykktin er því hærri er stuðullinn og þá aukast líkur á
litningagalla fósturs. Að sama skapi lækkar stuðull-
inn eftir því sem hnakkaþykktarmælingin er minni
með minni líkum á litningagalla en aldur móður segir
til um.
Við þrístæðu 21 má búast við að þriðjungur
meðgangna endi með fósturláti eða fósturdauða
síðar á meðgöngu (19). Þess vegna eru líkur á
þrístæðu 21 háðar meðgöngulengd. Ef dæmi er tekið
um 37 ára gamla konu þá eru líkur á þrístæðu 21 við
12 vikna meðgöngu 1:152 en 1:218 við fulla
meðgöngu (mynd 6).
Ef kona hefur áður eignast fóstur/barn með
þrístæðu 21 eru líkur á þrístæðu 21 í næstu meðgöngu
0,75% hærri en aldursbundnar líkur hennar segja til
Læknablaðið 2001/87 419