Læknablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 71
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING
Ráðgjöf til foreldra um
ómskoðanir í meðgöngu
Ágrip
María Hreinsdóttir
Fósturgreiningardeild
Kvennadeildar, Landspítala
Hringbraut. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: María
Hreinsdóttir ljósmóðir,
fósturgreiningardeild
Kvennadeildar Landspítala
Hrigbraut, 101 Reykjavík.
Sími: 560 1158. Netfang:
mariajh@landspitali.is
Lykilorð: ráðgjöf, upplýst val,
fósturgreining.
í þessari grein er lögð áhersla á hvemig ljósmæður,
hjúkrunarfræðingar, læknar og annað heilbrigðis-
starfsfólk sem vinnur við mæðravernd kynnir óm-
skoðanir í meðgöngu. Aðaláherslan er lögð á hlut-
lausar og faglegar upplýsingar um þær ómskoðanir
sem verðandi foreldrar geta valið um. Pað eru alltaf
foreldrarnir sem verða að taka endanlega ákvörðun
um hvað þau vilja að gert sé á meðgöngu.
Inngangur
Ómskoðanir á meðgöngu hófust á íslandi árið 1975,
en aðeins voru skoðaðar konur í völdum tilfellum
fyrstu árin. Frá árinu 1986 hefur öllum konum staðið
til boða ein ómskoðun í 18.-20. viku meðgöngu og
öllum konum eldri en 35 ára hefur verið boðin
legvatnsástunga til greiningar á litningagerð fósturs.
Nú stendur til að öllum konum verði einnig gefinn
kostur á ómskoðun í 11.-13. viku meðgöngu. Ráðgjöf
og upplýsingar um hvaða skoðanir eru í boði hafa
ljósmæður, læknar og hjúkrunarfræðingar sem starfa
við mæðravernd gefið. Hlutverk Ijósmæðra og lækna
sem vinna við fósturgreiningu er að túlka niðurstöðu
ómskoðunarinnar og veita viðeigandi ráðgjöf í kjölfar
hennar.
Upplýst val
Allar ómskoðanir á meðgöngu eru val verðandi
foreldra. Hlutverk ljósmæðra, hjúkrunarfræðinga og
lækna sem starfa við mæðravernd er að upplýsa
foreldra um hvað er í boði á faglegan og hlutlausan
hátt. Þannig geta þeir tekið upplýsta ákvörðun um
hvaða rannsókn þeir vilja þiggja. Flestir foreldrar
velja þær rannsóknir sem eru í boði, en ávallt verða
einhveijir sem kjósa að hafna öllum ómskoðunum og
fósturgreiningu. Hlutverk fagfólks er að kynna á
greinargóðan hátt hvað er hægt að velja um og gefa
skjólstæðingum sínum svigrúm og tíma til um-
hugsunar og virða ákvarðanir skjólstæðinga sinna,
hverjar sem þær kunna að verða.
Ráðgjöf
Ráðgjöfinni má skipta í þrennt eftir hópum kvenna:
1. Konur með enga áhættuþætti (low risk women).
2. Konur með aukna áhættu vegna aldurs (high risk
women).
3. Konur með aukna áhættu vegna sögu (high risk
women).
Konurnar í fyrsta hópnum eru líklegastar til að vita
ENGIISH SUMMARY
Hreinsdóttir M
Counselling regarding ultrasound
excaminations in pregnancy
Læknablaðið 2001; 87: 459-61
In this article the focus is on how midwifes, nurses,
doctors and other staff who work in prenatal care give
counselling regarding ultrasound excaminations in
pregnancy. The main goal is to give professional
information regarding the examinations which are available
so that parents truly have an informed choice. All
decisions regarding the pregnancy must always be with
the parents.
Keywords: counselling, informed choice, prenetat
diagnosis.
Correspondence: María Hreinsdóttir. E-mail:
mariajh@landspitali.is
minnst um fósturgreiningu og að vera lftt undirbúnar
fyrir því að þær gætu hugsanlega verið með fóstur
með fósturgalla. Þessi hópur er stærstur, og rétt er að
benda á að um 95% þeirra fósturgalla sem finnast í
dag greinist innan þessa hóps. Konur í hinum
hópunum eru oftast betur undirbúnar en einnig oft
kvíðnari vegna sögu eða aukinnar áhættu og þurfa
þær oft sérhæfðari ráðgjöf sem veitt er af
sérfræðingum í bamalækningum eða erfðaráðgjöf.
Mikilvægt er að það komi skýrt fram að fóstur-
greining er rannsókn sem getur leitt í Ijós vandamál
sem geta verið allt frá því að vera minniháttar
vandamál sem hægt er að lagfæra eða alvarlegur galli
eins og heilaleysi, þar sem lífsvon er engin. Gera
verður foreldrum grein fyrir því að gott sé fyrir þau að
vera búin að íhuga hvað taki við sé um fósturgalla að
ræða. Væru þau þá tilbúin að rjúfa meðgönguna eða
vildu þau undirbúa sig fyrir fæðingu barns með
alvarlegan galla? Verðandi foreldrar þurfa að vita að
ekki er hægt að útiloka alla fósturgalla með óm-
skoðun. Hins vegar má benda þeim á að langflest
böm fæðast heilbrigð.
Foreldrum með sögu um fóstur- og/eða litn-
ingagalla eða erfðasjúkdóma í ætt, væri æskilegt að
bjóða sem allra fyrst í meðgöngunni viðtal við
sérfræðing í erfðasjúkdómum. Þar er veitt ráðgjöf
Læknablaðið 2001/87 459