Læknablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 34
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING
Líkindamat með tilliti til litningagalla
fósturs eftir hnakkaþykktarmælingu
Kristín Rut
Haraldsdóttir
Fósturgreiningardeild
Kvennadeildar Landspítala
Hringbraut. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Kristín Rut
Haraldsdóttir ljósmóðir
fósturgreiningardeild
Kvennadeildar Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sfmi: 560 1158. Netfang:
krruthar@landspitali.is
Lykilorð: þrístœða fósturs,
líkindamat.
Mynd 11 Konafœdd 1962
með enga fyrri sögu um
litningagalla fósturs.
Fósturútlit var eðiilegt og
mœlingar ísamrœmi við
meðgöngulengd.
Hnakkaþykkt mœldist 1,3
ntm. Líkur á þrístœðu 21 út
frá aldri móður eingöngu
eru 1:129 en eftir
hnakkaþykktarmœlingu
1:592. Einnig hafa iíkur á
þrístœðu 13 og 18 minnkað
Ágrip
I þessari grein er fjallað um líkindamat en það er
byggt á forriti sem reiknar út tölfræðilegar líkur á
þrístæðu 13, 18 og 21. Forsendur þess eru aldur
verðandi móður, mælingar á haus-daus lengd fósturs
og hnakkaþykkt þess. Dæmi eru gefin, miðað við mis-
munandi aldur móður, fyrri sögu og niðurstöðu úr
ómskoðun.
Mæliaðferðir og búnaður
Hugbúnaðurinn sem notaður er á fósturgreiningar-
deild Kvennadeildar til að reikna út tölfræðilegar
líkur fyrir litningaþrístæðum 21,13 eða 18 hjá fóstri er
frá Fetal Medicine Foundation í London. Byggt er á
gögnum frá yfir 100.000 mælingum á fóstrum við 11-
14 vikna meðgöngu. Stöðugt bætist við þennan fjölda
og nú tekur starfsfólk fósturgreiningardeildar
Kvennadeildar þátt í gagnasöfnun ásamt starfsfólki
svipaðra deilda víða um heim og fæst þannig aukin
reynsla og þekking.
Til þess að fá afnol af hugbúnaðinum þarf að sækja
námskeið hjá Fetal Medicine Foundation, taka
skriflegt próf og senda inn 50 myndir sem sýna
mælingar á hnakkaþykkt fósturs. Myndirnar eru yfir-
farnar af sérfræðingum Fetal Medicine Foundation.
Ef viðkomandi stenst þessi próf fær hann/hún leyfi til
að nota hugbúnaðinn og skuldbindur sig jafnframt til
þess að senda yfirlit á sex mánaða fresti sem fer inn í
gagnabankann. Einu sinni á ári sendir hver skoðandi
inn fimm myndir til að sýna að mælingar séu
framkvæmdar á viðeigandi hátt. Notkun þessa
hugbúnaðar er því ströngum skilyrðum háð til að
ENGLISH SUMMARY
Haraldsdóttir KR
Risk assessment for fetal aneuploidy
after nuchal translucency measurement
Læknablaðið 2001; 87: 422-3
In this article the focus is on the estimation of a likelihood
ratio by using software which calculates the risk for
trisomy 13,18 and 21. It is based on the woman's age,
crown rump length of the fetus and its nuchai translucency
measurement. Examples are given based on different
maternal age, previous history and results of ultrasound
examination.
Key words: fetal trisomy, risk assessment.
Correspondence: Kristín Rut Haraldsdóttir. E-mail:
krruthar@landspitali.is
tryggja gæði upplýsinga sem fara í gagnabankann.
Við skráningu í tölvuforritið er sett nafn verðandi
móður og fæðingardagur. Ef konan hefur áður átt
fóstur/barn með þrístæðu eru þær upplýsingar
skráðar. Þá er sett inn haus-daus lengd fósturs og
niðurstaða hnakkaþykktarmælingar. Eftir það
reiknar forritið tölfræðilegar líkur á litningagalla
fósturs út frá aldri og sögu verðandi móður annars
vegar og mælingum á hnakkaþykkt, lengd fósturs og
höfuðmáli hins vegar. Forsendur líkindamats er að
fósturstærð sé á bilinu 45-84 mm.
422 Læknablaðið 2001/87