Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 34

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 34
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURGREINING Líkindamat með tilliti til litningagalla fósturs eftir hnakkaþykktarmælingu Kristín Rut Haraldsdóttir Fósturgreiningardeild Kvennadeildar Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Kristín Rut Haraldsdóttir ljósmóðir fósturgreiningardeild Kvennadeildar Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sfmi: 560 1158. Netfang: krruthar@landspitali.is Lykilorð: þrístœða fósturs, líkindamat. Mynd 11 Konafœdd 1962 með enga fyrri sögu um litningagalla fósturs. Fósturútlit var eðiilegt og mœlingar ísamrœmi við meðgöngulengd. Hnakkaþykkt mœldist 1,3 ntm. Líkur á þrístœðu 21 út frá aldri móður eingöngu eru 1:129 en eftir hnakkaþykktarmœlingu 1:592. Einnig hafa iíkur á þrístœðu 13 og 18 minnkað Ágrip I þessari grein er fjallað um líkindamat en það er byggt á forriti sem reiknar út tölfræðilegar líkur á þrístæðu 13, 18 og 21. Forsendur þess eru aldur verðandi móður, mælingar á haus-daus lengd fósturs og hnakkaþykkt þess. Dæmi eru gefin, miðað við mis- munandi aldur móður, fyrri sögu og niðurstöðu úr ómskoðun. Mæliaðferðir og búnaður Hugbúnaðurinn sem notaður er á fósturgreiningar- deild Kvennadeildar til að reikna út tölfræðilegar líkur fyrir litningaþrístæðum 21,13 eða 18 hjá fóstri er frá Fetal Medicine Foundation í London. Byggt er á gögnum frá yfir 100.000 mælingum á fóstrum við 11- 14 vikna meðgöngu. Stöðugt bætist við þennan fjölda og nú tekur starfsfólk fósturgreiningardeildar Kvennadeildar þátt í gagnasöfnun ásamt starfsfólki svipaðra deilda víða um heim og fæst þannig aukin reynsla og þekking. Til þess að fá afnol af hugbúnaðinum þarf að sækja námskeið hjá Fetal Medicine Foundation, taka skriflegt próf og senda inn 50 myndir sem sýna mælingar á hnakkaþykkt fósturs. Myndirnar eru yfir- farnar af sérfræðingum Fetal Medicine Foundation. Ef viðkomandi stenst þessi próf fær hann/hún leyfi til að nota hugbúnaðinn og skuldbindur sig jafnframt til þess að senda yfirlit á sex mánaða fresti sem fer inn í gagnabankann. Einu sinni á ári sendir hver skoðandi inn fimm myndir til að sýna að mælingar séu framkvæmdar á viðeigandi hátt. Notkun þessa hugbúnaðar er því ströngum skilyrðum háð til að ENGLISH SUMMARY Haraldsdóttir KR Risk assessment for fetal aneuploidy after nuchal translucency measurement Læknablaðið 2001; 87: 422-3 In this article the focus is on the estimation of a likelihood ratio by using software which calculates the risk for trisomy 13,18 and 21. It is based on the woman's age, crown rump length of the fetus and its nuchai translucency measurement. Examples are given based on different maternal age, previous history and results of ultrasound examination. Key words: fetal trisomy, risk assessment. Correspondence: Kristín Rut Haraldsdóttir. E-mail: krruthar@landspitali.is tryggja gæði upplýsinga sem fara í gagnabankann. Við skráningu í tölvuforritið er sett nafn verðandi móður og fæðingardagur. Ef konan hefur áður átt fóstur/barn með þrístæðu eru þær upplýsingar skráðar. Þá er sett inn haus-daus lengd fósturs og niðurstaða hnakkaþykktarmælingar. Eftir það reiknar forritið tölfræðilegar líkur á litningagalla fósturs út frá aldri og sögu verðandi móður annars vegar og mælingum á hnakkaþykkt, lengd fósturs og höfuðmáli hins vegar. Forsendur líkindamats er að fósturstærð sé á bilinu 45-84 mm. 422 Læknablaðið 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.