Læknablaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 77
Ingileif Malmberg
Kvennadeild Landspítala
Hringbraut. Fyrirspurnir,
bréfaskipti:
Ingileif Malmberg
sjúkrahúsprestur,
Kvennadeild Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími: 560 1000/560 2271.
Netfang: ingilm@landspitali.is
Lykilorð: siðfrœði, sálgœsla.
FRÆÐIGREINAR
/ FÓSTURGREIN
N G
Fósturgreining
Siðfræði — sálgæsla
Ágrip
Framfarir á sviði fósturgreiningar hafa orðið miklar á
undanförnum árum. Pað er ómetanlegt að hægt skuli
vera að fylgjast með vexti, þroska og líðan fósturs eða
barns í móðurkviði og hlýtur það að stuðla að auknu
öryggi móður og barns. En aukin tækni vekur um leið
upp ýmsar spurningar og vangaveltur sem öllum sem
mæðraeftirliti sinna er hollt að velta fyrir sér. Er
sjálfsagt að eyða öllum þeim fóstrum sem greinast
með frávik af einhverju tagi? Hvert gæti sú þróun
leitt okkur? Erum við, með sífellt betri tækni, smám
saman að „útrýma“ ákveðnum hópum innan
samfélagsins? A það að vera sjálfsögð „venja“, jafn-
vel skylda, að allar konur gangist undir þær
rannsóknir sem í boði eru. Við höfum innan
siðfræðinnar mörg og ólík sjónarmið. Við höfum við-
horf sem leggur áherslu á fullkomið frelsi til
fóstureyðinga. Við höfum líka viðhorf sem krefst
þess að öllu lífi skuli viðhaldið, fóstri megi ekki undir
neinum kringumstæðum eyða, þótt vitað sé að um
alvarlegan sjúkdóm eða fötlun sé að ræða.
Höfundur leggur áherslu á regluna um helgi
lífsins, að virða beri mannlegt líf, sú regla skuli alltaf
höfð að leiðarljósi innan læknisfræðinnar. Um leið
skal á það bent að sú virðing, sú líkn er ekki alltaf
fólgin í því að viðhalda og bjarga öllu lífi. Dauðinn er
ekki alltaf versti kosturinn.
Við hljótum að þurfa að vega og meta hvert tilvik
fyrir sig, að hvert og eitt foreldri, eftir viðeigandi
upplýsingar, persónulega ráðgjöf og stuðning
fagfólks, taki sína ákvörðun út frá eigin dómgreind
og siðferðisvitund. Pað er mikilvægt að fagfólk fjalli
um þessi mál af virðingu fyrir lífinu og virðingu fyrir
þeim foreldrum sem eiga fötluð börn og fötluðum
sjálfum.
Öll sú fósturgreining sem í boði er knýr foreldra
reglulega til þess að taka erfiðar ákvarðanir. Pað er
því mikilvægt að þunguð kona og hennar maki viti
tilganginn með því meðgöngueftirliti sem í boði er,
að þau séu meðvituð um þær ákvarðanir sem þau
gætu þurft að standa frammi fyrir. Og þegar og ef
ENGLISH SUMMARY
Malmberg I
Prenatal diagnosis. Ethics - counselling
Læknablaðið 2001; 87: 465-7
During the last years great progress has been made in the
field of prenatal diagnosis. The possibility of monitoring the
growth, development and well being of a child in the
womb is priceless and can offer the mother a sense of
security regarding the pregnancy. But the growing
technology leads at the same time to various questions
and discussions and it is good for all those who are a part
of the maternal care to think about them. Is it
unquestionable to eliminate all those fetuses that are
diagnosed with an abnormality of any kind? Where would
such a development lead us? Are we, with the means of a
continuing better technology, bit by bit "eliminating"
certain groups within the society? Is it to be an
unquestioned “routine” or even duty, that every woman
should be subjected to those diagnoses that are possible?
We have within the field of ethics many different views on
those questions. One view stresses the complete freedom
of abortion. Another demands that all life should be
protected, and a fetus should never be terminated, even if
it is sick or disabled. The author of this article wants to
demonstrate the rule of the sanctity of all life, that all
human life should be respected, that this rule should
always be applied within the field of medicine. At the same
time it should be stressed that this respect for life is not
always best given by sustaining and saving all life. Death is
not always the worst choise.
We must evaluate each and every case, that each and
every parents to be should make their own decision based
on their own ethical views, after having received
appropriate information, professional support and
counselling.
It is important that professionals deal with these matters
with respect for life and respect for the parents who
already have disabled children and the disabled
themselves.
All the prenatal diagnosis which is available may lead to
that parents to be have to take difficult decisions regarding
the pregnancy. It is therefore of the utmost importance that
a pregnant woman and her partner should know the
meaning and purpose of the prenatal care which is offered
and that they are fully aware of the decisions they may
have to face. If the results are not in the favor of the fetus,
the couple should receive the support and care whatever
their decision may be.
Key words: ethics, counselling.
Correspondence: Ingileif Malmberg hospital chaplain. E-
mail: ingilm@landspitali.is
Læknablaðið 2001/87 465