Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2001, Side 84

Læknablaðið - 15.05.2001, Side 84
GRAFÍSKA SMIÐJAN EHF. - Málverk: BiUon Oropram ■ cítalópram Hamingja hversdagsins er ekki alltaf gefin Tafla, filmuhúðuð; N 06 A B 04 RB Hver tafla inniheldur: Citalopranum INN, hýdróbrómið, samsvarandi Citalopranum INN10 mg, 20 mg eða 40 mg, litarefni (títantvíoxíð) E171, et constit. q.s. Ábendingar: Þunglyndi. Felmtursköst (ofsahræðsla) með eða án víðáttufælni (panic disorder with or without agarophobia). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar handa fullorflnum: Lyfið er gefið einu sinni á dag, en skammtar eru breytilegir. Þunglyndi: Upphafskammtur er 20 mg á dag, en má auka í 40 mg á dag, ef þörf krefur. Ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. Hjá sjúklingum eldri en 65 ára er ráðlagður skammtur helmingur ofangreindra skammta, þ.e. 10-30 mg á dag, að hámarki 40 mg á dag. Mikilvægt er að gefa lyfið a.m.k. í 2-3 vikur áður er árangur meðferðarinnar er metínn. Meðferðarlengd er 4-6 mánuðir eftir svörun sjúklings. Felmturköst: Lágir skammtar eru notaðir í upphafi meðferðar til að draga úr likum á versnun sjúkdómsins. Ráðlagður upphafsskammtur er þannig 10 mg á dag. Eftír einnar viku meðferð er skammturinn aukinn í 20 mg á dag. Venjulegur viðhaldsskammtur er 20-30 mg á dag. Ef svörun er ófullnægjandi má auka skammtinn en ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. Við meðferð á felmturköstum nær árangur hámarki eftir u.þ.b. 3 mánuði og er viðvarandi við áframhaldandi meðferð. Skammtar handa bömum: lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir cítalóprami eða einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Samtímis notkun MAO-hemla. Sérstök varnaflarorfl og varúflarreglur vifl notkun: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með skerta liírar- eða nýrnastarfsemi. Þunglyndi fylgir sjálfsvígshætta, sum þunglyndislyf geta í upphafi meðferðar aukið þessa hættu. Milliverkanir við önnur lyf og aflrar milliverkanir: Cítalópram og MAO-hemla skal ekki gefa samtímis og skulu að minnsta kosti líða 14 sólarhringar á milli þess að þessi tvö lyf séu gefin nema MAO-hemill hafi mjög skamman helmingunartíma. Niðurbrot cítalóprams er aðeins að hluta háð cýtókróm P450 ísóensíminu CYP 2D6 og ólíkt sumum öðrum sérhæfðum hemlum serótónín endurupptöku er cítalópram mjög vægur hemill þessa ensímskerfis (cýtókróm P450) sem er viðriðið umbrot margra lyfja. Próteinbinding cítalóprams er tiltölulega litil (80%). Vegna þessara eiginleika cítalóprams eru möguleikar þess til að valda klínískt mikilvægum milliverkunum litlir. Meflganga og brjóstagjöf: Reynsla af gjöf lyfsins hjá barnshafandi konum er mjög takmörkuð, en dýratilraunir benda ekki tíl fósturskemmandi áhrifa. Þangað til ítarlegri reynsla af notkun cítalóprams hjá barnshafandi konum liggur fyrir skal það aðeins gefið að vandlega athuguðu máli. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk en í dýratílraunum hefur litíð magn lyfsins fundist í mjólk. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Citalópram hefur ekki áhrif á vitsmunalegar aðgerðir og skynhreyfigetu. Samt sem áður, má sjúklingur sem er á geðlyfjum búast við að hann hafi skerta almenna athygli og einbeitni, annaðhvort vegna sjúkdómsins sjálfs, lyfjameðferðarinnar eða hvorutveggja og því ætti að vara sjúklinga við hæfni þeirra til að aka bil eða stjórna vélknúnum ökutækjum. Aukaverkanir: Aukaverkanir af völdum cítalóprams eru almennt vægar og tímabundnar og ganga yfir enda þótt meðferð sé haldið áfram. Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði allt að 7%. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur, aukinn svitamyndun, þreyta, slen, titringur, breytingar á þyngd og svimi. Æflakerfi: Þungur hjartsláttur. Mifltaugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir og órói. Meltingarfæri: Ogleði, hægðatregða, niðurgangur, meltingaróþægindi og munnþurrkur. Þvagfæri: Erfiðleikar við að tæma þvagblöðru. Augu: Sjónstíllingarerfiðleikar. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Almenn lasleikatilfinning, geispar. Mifltaugakerli: Æsingur, rugl, erfiðleikar við einbeitingu, minnkuð kynhvöt og truflun á sáðláti. Meltingarfæri: Aukið munnvatnsrennsli. Húfl: Útbrot. Öndunarfæri: Nefstífla. Augu: Stækkað Ijósop. Mjög sjaldgæfar (< 0,1%): Miðtaugakerfi: Mania. Ofskömmtun: Ef tekinn er inn of stór skammtur af cítalóprami geta aukaverkanir magnast. Þungur hjartsláttur og skert meðvitund getur jafnframt sést. Lyfhrif: Cítalópram er tvíhringlaga þalíð-afleiða og er virkt gegn þunglyndi og felmturköstum. Verkunarháttur lyfsins er vegna sértækrar hindrunar á upptöku serótóníns í heila. Lyfið hefur engin áhrif á endurupptöku noradrenalíns, dópamíns eða GABA. Lyfið og umbrotsefni þess hafa því enga anddópamín-, andadren-, andserótónín-. og andhistamínvirka eða andkólínvirka eiginleika. Jafnvel við langtíma notkun hefur lyfið engin áhrif á fjölda viðtaka fyrir boðefni í miðtaugakerfi. Lyfið hefur hvorki áhrif á leiðslukerfi hjartans né blóðþrýsting og eykur ekki áhrif alkóhóls. Lyfið hefur væga róandi verkun. Lyfjahvörf: Frásog cítalóprams er mjög gott og óháð inntöku matar. Aðgengi eftir inntöku er yfir 80%. Hámarksblóðþéttni næst eftir 1-6 klsL Stöðug blóðþéttni næst eftír 1-2 vikur. Próteinbinding er um 80%. Dreifingarrúmmál er u.þ.b. 14 l/kg. Lyfið umbrotnar áður en það útskilst; um 30% í þvagi. Umbrotsefni hafa svipaða en vægari verkun en citalópram. Helmingunartími er um 36 klst. en er lengri hjá öldruðum. Útlit: Töflur 10 mg: Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 6 mm. Töflur 20 mg: Hvitar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 8 mm, með deiliskoru. Töflur 40 mg: Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 10 mm, með krossskoru. Pakkningar og verfl: (Lyfjaverðskrá 1. janúar) Oropram 10 mg/28 stk. 2.308 kr. Oropram 10 mg/100 stk. 6.446 kr. Oropram 20 mg/28 stk. 3.721 kr, Oropram 20 mg/56 stk. 6.610 kr. Oropram 20 mg/100 stk. 10.917 kr. Oropram 40 mg/28 stk. 6373 kr. Oropram 40 mg/56 stk. 11.738 kr. Oropram 40 mg/100 stk. 20.089 kr. Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.