Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 91

Læknablaðið - 15.05.2001, Page 91
UMRÆÐA & FRETTIR / KLlNiSKAR LEIÐBEININGAR Gæði læknisþjónustu aukin með vefi um klínískar leiðbeiningar A VEGUM LANDLÆKNISEMBÆTTISINS HEFUR VERIÐ unnið að því á undanförnum misserum að byggja upp vef undir heitinu Klínískrar leiðbeiningar. Þegar er komið talsvert efni á vefinn en 26 vinnuhópar hafa unnið að gerð þess. Sjö þeirra hafa þegar útbúið efni sem er komið á vefinn, ýmist tilbúið eða í vinnslu. Alls hafa um 70 læknar tekið þátt í vinnslu efnisins auk fólks úr öðrum heilbrigðisstéttum. Vefurinn er vistaður á heimasíðu landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is undir Leiðbeiningar/Eftirlit á valstiku vinstra megin á síðunni. Auk þess hefur það efni sem er tilbúið verið gefið út á geisladiski ásamt vefnum Lyfjavali 2000. I bígerð er ennfremur að helstu áhersluatriði sem birt eru á yfirlitssíðu hvers málaflokks á vefnum verði útbúin sem plöstuð minnisblöð. Það verkefni er nokkuð dýrt og verður sennilega háð því að fjármagn fáist til verksins. Læknablaðið hefur nú kynningu á því efni sem er að finna á vefnum með því að taka ritstjóra efnisins, Sigurð Helgason lækni, tali. Pistlar um hin einstöku viðfangsefni sem hóparnir hafa tekið fyrir verða birtir í Læknablaðinu á næstunni. Stýrihópur undir forystu Ara Jóhannessonar læknis hefur yfirumsjón með starfi þessu og mótar verklag og stefnu, en Ari er formaður fagráðs Læknafélags íslands um mat á lækningatækni og gerð klínískra leiðbeininga. í hópnum sitja auk þeirra Sigurðar og Ara: Rannveig Einarsdóttir klínískur lyfjafræðingur, Sigurður Guðmundsson landlæknir og læknanir Haukur Valdimarsson, Óttar Bergmann, Sigurður Ólafsson, Runólfur Pálsson, Magnús Jóhannsson og Sveinn Magnús- son. í hópnum eru fulltrúar úr ýmsum sérfræði- greinum læknisfræðinnar auk þess sem fulltrúi unglækna í hópnum er tengiliður við stóran hóp unglækna. Enn meiri fjölbreytni má greina ef litið á allt það fólk sem tekur þátt í vinnu hinna einstöku hópa og sumir eru í fleiri en einum hópi. Markmiðið með klínískum leiðbeiningum er fyrst og fremst að bæta gæði læknisþjónustu eftir því sem kostur er. Aðdragandinn Aðdragandinn að gerð klínískra leiðbeininga á netinu er sá að leitað var til Sigurðar Helgasonar heilsugæslulæknis í Árbæ síðla árs 1999 og hann beðinn að taka að sér ritstjórn þessa vefjar. Hann var ekki með öllu ókunnur slíkri uppbyggingu eftir að hafa unnið að hliðstæðu verkefni sem fjallaði um Lyfjaval. Fagráð Læknafélags íslands undir forystu Pálma Jónssonar hafði þá um eins árs skeið unnið að tillögum um gerð klínískra leiðbeiningar og sett fram mótaðar hugmyndir þar að lútandi (Læknablaðið 1999; 85:1004). „Það sem ýtti þessu af stað var að í löndunum allt í kringum okkur er mikið af slíku efni. Við höfðum dregið lappirnar svolítið í þessum efnum og læknar sem sótt hafa menntun sína til ýmissa landa hafa notast við þær leiðbeiningar sem þekkja úr námi sínu og störfum erlendis.“ Sigurður var fyrst ráðinn til eins árs og að því loknu var ráðning hans framlengd um ár. Eitt fyrsta verkið var að setja á laggirnar hópa til að sjá um einstaka efnisþætti. í flestum tilvikum gekk vel að fá fólk til liðs við hópana og margir þeirra hafa verið mjög virkir. Vinnan í hópunum er að mestu unnin í sjálfboðaliðsstarfi utan þess að greidd eru svokölluð „heiðurslaun" þegar efni hópsins er tilbúið, að upphæð 20 þúsund krónur. Það er að vísu í engu samræmi við vinnuframlagið, en yfirleitt eru 12-18 fundir að baki hvers efnisflokks auk ómældrar vinnu þar á milli. Hins vegar hefur víða, meðal annars í Skotlandi, þar sem byggður hefur verið upp öflugur vefur með klínískum leiðbeiningum, verið farin sú leið að gera fólki kleift að vinna slfk störf í vinnutíma sínum. Hér á landi er reynt að fara að einhverju leyti sömu leið, til dæmis hefur Heilsugæslan í Reykjavík sýnt verkefninu sérstakan skilning. Enn er það þó svo að ef menn skreppa frá á fund þurfa þeir oft og tíðum að bæta vinnuna upp síðar. Ávinningur þeirra sem þátt taka er því að miklu leyti óbeinn enda hafa ýmsir haft á orði að starfið veiti þeim mikla faglega örvun. Hvernig fer hópastarfið fram ? „Það er sennilega best að taka dæmi. Nú er til að mynda mjög öflugur hópur að fjalla um gáttatif. Þessi vinnuhópur hefur það að markmiði að bæta gæðin á blóðþynningu og helst viljum við vinna eftir Drjúgur hluti áhafnar stýríhópsins: Rannveig Einarsdóttir, Ari Jóhannesson, Sigurður Helgason, Óttar Bergmann og Sigurður Guðmundsson. Læknablaðið 2001/87 479
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.