Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2001, Page 84

Læknablaðið - 15.10.2001, Page 84
Durogesic Janssen-Cilag, 930066 ( X FORÐAPLÁSTUR; N 02 A B 03 R E Hver forðaplástur inniheldur: Fentanylum INN, 2,5 mg (gefur frá sér 25 míkróg/klst.), 5 mg (gcfur frá sér 50 míkróg/klst.), 7,5 mg (gefur frá sér 75 míkróg/klst.), eða 10 mg (gcfur frá sér 100 míkróg/klst.), constit. q.s. Ábendingar: Langvinnir verkir sem eru næmir fyrir morfínlyfjum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir á almennu ástandi sjúklings svo og á fyrri sögu um notkun morfínlyfja. Hafi sjúklingur ekki fengið sterk morfínlyf áður bcr að stilla inn stuttverkandi moifínlyf fyrst og síðan breyta þcim skammti yfir í Durogesic. Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum er náð. Þegar breytt er úr morfínlyfjum til inntöku eða stungulyfjum yfir í Durogesic skal nota eftirfarandi til leiðbeiningar: 1 Leggið saman notkunina á sterkum verkjalyfjum síðasta sólarhring. 2 Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en morfín, breytið þá yfir í jafngildisskammt af morfíni til inntöku. (Sjá Sérlyfjaskrá vegna töflu um jafngildisskammta). Skipta skal um plástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur fyrir hvem einstakling er fundinn með því að auka skammtinn þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki nægjanlcg vcrkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn eftir 3 daga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja daga fresti. Þegar skipt er yfir á Durogesic eftir langvinna meðferð með morfíni, hefur verið greint frá fráhvarfseinkennum (þrátt fyrir nægilega verkjadeyfingu). Komast má hjá fráhvarfseinkcnnum með því að minnka notkun smátt og smátt hjá sjúklingum sem fá langvinna meðferð með ópíóíðum. Ef fráhvarfseinkenni koma fram er ráðlögð meðferð með stuttverkandi morfíni í lágum skömmtum. Þutfi sjúklingurinn meira en 100 míkróg/klst. má nota fleiri en cinn plástur í senn. Durogesic skal líma á efri hluta líkamans eða á upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða húð. Ef hár eru á staðnum ber að klippa þau af en ekki raka en hárlaus svæði eru æskilcgust. Ef þvo þarf svæðið áður en plásturinn er settur á, skal gera það með hreinu vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð eða önnur efni sem geta ert húðina eða breytt eiginleikum hennar. Húðin á að vera vel þurr áður en plástrað er. Plásturinn skal líma á húðina strax eftir að pakkning hefur verið opnuð. Plásturinn er festur með því að þrýsta á hann með flötum lófa í um það bil 30 sekúndur. Allur plásturinn og sérstaklega kantamir verða að liggja vel að húðinni. Þegar skipt er um plástur skal hann settur á annan stað. Fyrri stað má ekki nota fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastærðir handa börnum: Lítil rcynsla er af notkun lyfsins til meðferðar hjá bömum. Frábendingar: Slævð öndun. VarnaöarorO og varúöarreglur: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð meðvitund, nieðvitundarleysi og órói í kjölfar neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum. Samtímis notkun annarra slævandi lyfja. Fylgjast þarf náið með sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi svo og öldruðum sjúklingum og sjúklingum í kröm. Meöganga og brjóstagjöf: Morfínlyf geta slævt öndun hjá nýburum. Ef um langvarandi notkun lyfsins á meðgöngu hefur verið að ræða má gera ráð fyrir fráhvarfseinkennum hjá baminu eftir fæðinguna. Fentanýl bcrst í brjóstamjólk í nægilegu magni til þess að hafa áhrif á barnið, jafnvel þó að gefnir séu venjulegir skammtar. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir em óglcði/uppköst (28%) og syfja (23%). Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun öndunar og er skammtaháð, en þessi aukaverkun er sjaldgæf hjá sjúklinguin, sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum. Algengar (>!%): Almennar: Kláði. Hjarta- og æðakerfi: Lágur blóðþrýstingur, hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi: Syfja. rugl. ofskynjanir, sæluvíma. Hömlun öndunar. Meltingarfceri: Ogleði. uppköst, hægðatrcgða. Húð: Húðcrting (roði, kláði, útbrot). Þvagfœri: Þvagteppa. Ef um mikið eða langvarandi blóðþrýstingsfall er að ræða, þá ber að hafa vökvaþurrð/blóðþurrð í huga og velta fyrir sér vökvagjöf. Öndunarhemjandi áhrif lyfsins em skammtaháð. Húðertingin hverfur venjulega innan sólarhrings eftir að plástur hefur verið fjarlægður. Sjúklingar, sem fá morfínlyf, gcta myndað þol og einnig orðið háðir lyfinu. Milliverkunir viö lyf eöa unnaö: Samtímis notkun lyfja sem hafa áhrif á miðtaugakerfið, þ.á m. þunglyndislyf, ópíóíðar, sefandi lyf, svefnlyf, almcnn svæfinga- og deyfingalyf, fenótíazfn, róandi lyf, vöðvaslakandi lyf, róandi andhistamín og áfengi, getur valdið auknum bælandi áhrifum með grunnri öndun, lágþrýstingi, miklum sefandi áluifum og dái. Þess vegna þurfa sjúklingar sérstakt eftirlit og umönnun þegar þessi lyf em notuð um leið og Durogesic. umbrotið fyrir tilstuðlan cýtókróm P450 3A4 ensíma. Þó hefur ekki komið fram in-vitro hömlun vegna ítrakónasóls (þekktur cýtókróm P450 ensím hemill), líklega vegna hás útdráttarhlutfalls fentanýls í lifur. Athugiö: Durogesic á ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum eftir skurðaðgerðir þar sem þá gefst ekki nægjanlegur tími til þess að finna hæfilega skammta og þar með getur lyfið valdið lífshættulegri öndunarbilun. Durogesic skal einungis gefið sjúklingum með langvinna verki sem áður hafa svarað meðferð með morfínlyfjum. Ef öndunarbilun kemur í Ijós skal taka plásturinn af og fylgjast vel með sjúklingnum. Öndunarhjálp skal veitt með þeim aðferðum sem með þarf (t.d. hvatning, sjúkrjþjálfun, öndunarvél). Áfengi cykur öndunarhemjandi áhrif fentanýls. Áhrifin má stöðva með naloxóni. Þar scm fentanýláhrifin vara mun lcngur en áhrif naloxóns þarf að fylgjast mjög vel með sjúklingnum. Fái sjúklingur alvarlegar aukaverkanir þarf að fylgjast mjög vel með honum í sólarhring eftir að plásturinn hefur verið tekinn af vegna þess hver verkunartími er langur. Þegar meðferð með Durogesic er hætt skal hefja meðferð með öðrum morfínlyfjum í hægt vaxandi skömmtum. Morfínlyfjum skal að jafnaði hætt hægt. Ef sjúklingur fær hita (40°C) getur frásog fentanýls aukist um u.þ.b. 30%. Þess vegna þarf að fylgjast með sjúklingum sem fá hita og lækka skammtinn cf með þarf. Forðast ber að hita á einhvern hátt plástursstæðið. Viðbragðflýtir sumra sjúklinga minnkar meðan á Durogesic meðferð stendur, þetta ber að hafa í huga til dæmis við akstur. Geymsla: Plásturinn skal gcyma í órofnum umbúðum við herbergishita. Geymist fjarri bömum, einnig eftir notkun. Notaðir plástrar skulu brotnir saman og fargað með öruggum hætti. Pakkningar og verö 1.4. 2001: 10 cm2 x 5 stk. kr. 5.283 20 cm2 x 5 stk. kr. 9.244 30 cm2 x 5 stk. kr. 12.360 40 cm2 x 5 stk. kr. 14.962 Notkunarleiöbeiningar á íslensku skulu fylgja hverri pakkningu lyfsins. Foröaplástur 25 míkróg/klst. Foröaplástur 50 míkróg/klst. Foröaplástur 75 míkróg/klst. Forðaplástur 100 míkróg/klst. Thorarensen Lyf Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 530 7100 ^ JANSSEN-CILAG

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.