Læknablaðið - 15.10.2001, Blaðsíða 77
leið og einhver verður „alvarlega“ veikur
heyrist í sírenu sjúkrabflsins eða vængja-
þyti þyrlunnar. Eftir situr héraðslæknirinn
og skráir atvikið í tölvuna sína svo það
komist inn á „miðlægan gagnagrunn".
Læknist sjúklingurinn hlýtur hálærði og
tæknivæddi sérfræðingurinn heiðurinn, ef
ekki, var allt gert sem hægt var. Getur
verið, að það að lækna venjulega kvilla hjá
venjulegu fólk sé ekki lengur spennandi?
Það er miklu meira spennandi að klæðast
geimfarabúningi á skurðstofu og gera að-
gerðir gegnum rör, þú þarft ekki einu sinni
að sjá framaní sjúklinginn. Svo er það líka
miklu meira spennandi að standa við rað-
greiningarfæriband á frægri rannsóknar-
stofu, sem með jöfnu millibili greinir frá vís-
indaafrekum starfsmanna sinna en að hlúa
að þeim vaxandi fjölda sem þarf á umönn-
un að halda vegna þess að bætt lífskjör og
betri lækningar hafa stuðlað að langlífi, sem
góða velferðarkerfið okkar ræður ekki
lengur við. Spurningin um það, hvort vér
höfum gengið til góðs, stendur því enn opin.
Taugalæknafélag íslands
Ný stjórn
Á aðalfundi sínum í maí síðastliðnum kaus Taugalæknafélag íslands sér nýja stjórn. Hún er
þannig skipuð: Albert Páll Sigurðsson formaður, Haukur Hjaltason gjaldkeri og Ólöf H.
Bjarnadóttir ritari.
Aðalfundur
Félags íslenskra heimilislækna
verður haldinn föstudaginn 19. október og hefst klukkan 17.30. Fundarstaður er salur
Ferðafélags Islands, Mörkinni 6.
Dagskrá er samkvæmt lögum FÍH. Fundargögn verða send út til félagsmanna.
Boðið verður upp á léttan kvöldverð meðan á fundi stendur.
Athygli er vakin á að fundurinn er haldinn í tengslum við fræðslufund Pharmacia
(Pharmaco) sem hefst kl. 15 sama dag og vísast í kynningu á þeim fundi.
Stjórn FÍH