Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2001, Side 77

Læknablaðið - 15.10.2001, Side 77
leið og einhver verður „alvarlega“ veikur heyrist í sírenu sjúkrabflsins eða vængja- þyti þyrlunnar. Eftir situr héraðslæknirinn og skráir atvikið í tölvuna sína svo það komist inn á „miðlægan gagnagrunn". Læknist sjúklingurinn hlýtur hálærði og tæknivæddi sérfræðingurinn heiðurinn, ef ekki, var allt gert sem hægt var. Getur verið, að það að lækna venjulega kvilla hjá venjulegu fólk sé ekki lengur spennandi? Það er miklu meira spennandi að klæðast geimfarabúningi á skurðstofu og gera að- gerðir gegnum rör, þú þarft ekki einu sinni að sjá framaní sjúklinginn. Svo er það líka miklu meira spennandi að standa við rað- greiningarfæriband á frægri rannsóknar- stofu, sem með jöfnu millibili greinir frá vís- indaafrekum starfsmanna sinna en að hlúa að þeim vaxandi fjölda sem þarf á umönn- un að halda vegna þess að bætt lífskjör og betri lækningar hafa stuðlað að langlífi, sem góða velferðarkerfið okkar ræður ekki lengur við. Spurningin um það, hvort vér höfum gengið til góðs, stendur því enn opin. Taugalæknafélag íslands Ný stjórn Á aðalfundi sínum í maí síðastliðnum kaus Taugalæknafélag íslands sér nýja stjórn. Hún er þannig skipuð: Albert Páll Sigurðsson formaður, Haukur Hjaltason gjaldkeri og Ólöf H. Bjarnadóttir ritari. Aðalfundur Félags íslenskra heimilislækna verður haldinn föstudaginn 19. október og hefst klukkan 17.30. Fundarstaður er salur Ferðafélags Islands, Mörkinni 6. Dagskrá er samkvæmt lögum FÍH. Fundargögn verða send út til félagsmanna. Boðið verður upp á léttan kvöldverð meðan á fundi stendur. Athygli er vakin á að fundurinn er haldinn í tengslum við fræðslufund Pharmacia (Pharmaco) sem hefst kl. 15 sama dag og vísast í kynningu á þeim fundi. Stjórn FÍH

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.