Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NORRÆNA LÆKNARÁÐIÐ
Af vettvangi Norræna læknaráðsins
Norrænu læknafélögin hafa árum saman haft
með sér samstarf á vettvangi sem kallast Norræna
læknaráðið. Það fundar annað hvert ár, en stjórn þess
hittist tvisvar á ári. Á þessum vettvangi skiptast menn
á skoðunum og upplýsingum um allt það sem skiptir
lækna máli hverju sinni og er efst á baugi í löndunum
fimm. Á næstunni má búast við að ráðið verði sýni-
legra þegar það fær sérstakan bás á heimasíðu hvers
félags, en ákvörðun þess efnis var tekin á síðasta
fundi stjórnar læknaráðsins í Osló hinn 12. febrúar
síðastliðinn. Meðal annarra málefna sem þar voru
rædd og eru mjög áhugaverð má nefna þessi þrjú:
• Öryggi sjúklinga. Danska læknafélagið hefur
haft frumkvæði að þessu máli undanfarin ár í
Danmörku og hefur markvisst unnið að fram-
gangi þess. í fyrstu var hugmyndafræðin mót-
uð en hún felst í því að líta á það sem miður fer
í heilbrigðiskerfinu einkum sem kerfisvanda-
mál fremur en einstaklingsvandamál. í því felst
að litið er á uppkomin mál með því hugarfari
að það eigi að leiða til breytinga á vinnuferli,
skipulagi eða tæknibúnaði fremur en að leiða
einstakling til ábyrgðar. Þetta er svipuð hug-
myndafræði og notuð er til að bæta flugöryggi.
Leiðin er sú að öll frávik sem leiða beinlínis til
heilsutjóns, eða hefðu getað gert það ef ekki
hefði uppgötvast í tíma, eru skráð og yfirfarin.
Veruleg yfirsjón leiðir auðvitað til aðgerða
gegn þeim einstaklingum sem eiga í hlut eins
og nú er. Jafnframt hugmyndafræðinni var unn-
ið að mati á umfangi heilsutjóns af völdum með-
ferðar og birtist niðurstaðan í Ugeskrift for
læger (Schiöler T, et al. 2001; 163:5370-8). Svo
virðist sem hátt í 10% sjúklinga sem leggjast
inn á sjúkrahús verði fyrir einhvers konar
heilsutjóni sem stafar af meðferð og umönnun
og er það svipuð niðurstaða og fengist hefur í
öðrum hliðstæðum rannsóknum. Vandamálið
er því síður en svo lítið.
Næsta skrefið var kynning. Hún var gerð
gagnvart sjúklingafélögum, öðrum fagfélög-
um, eigendum sjúkrastofnana og stjórnmála-
mönnum. Stofnað var féiag sem er óháð öllum
þessum aðilum þar sem umræðan hefur farið
fram. Umræðan hefur nú leitt til uppbyggingar
upplýsingakerfis sem á að þjóna þessum til-
gangi og er lagagrundvöllur að verða tilbúinn.
markmiðið er hið sama, að tryggja að óeðlileg-
ur dráttur verði ekki á meðferð sem hefur ver-
ið ákveðin. f Noregi getur sjúklingur leitað
annað með vandamál sín og fengið meðferð
greidda ef sá tími sem áætlaður var í bið eftir
aðgerð verður lengri en viðkomandi sérfræð-
ingur ákvað og skráði. Það þýðir til dæmis að
sjúklingur með slitna mjöðm sem bæklunar-
læknir hefur metið að þurfi aðgerð innan hálfs
árs á rétt á að leita til annars sjúkrahúss og fá
meðferð þar hafi þessi tími liðið án aðgerðar.
Sú meðferð getur allt eins verið utanlands með
vissum takmörkunum. í Danmörku hefur verið
sett tveggja mánaða bið fyrir alla. Að þeim tíma
liðnum getur sjúklingur leitað til sjúkrahúss á
öðru landsvæði, einkasjúkrahúss eða sjúkra-
húss erlendis og fengið meðferðina greidda.
Þetta hefur leitt til verulegrar styttingar á flest-
um biðlistum því landshlutasjúkrahúsin hafa
lagt í átak til að stytta þá. í Svíþjóð er verið að
ræða frekari útfærslu á svipuðum réttindum
þannig að réttindin séu einnig tryggð í heilsu-
gæslunni. Á vettvangi evrópskra læknafélaga á
sér einnig stað umræða um aukin réttindi sjúk-
linga til meðferðar.
• Pátttaka í almennri umrœðu. í Finnlandi er
kosið til þings um þessar mundir. Þar hefur
læknafélagið stuðlað að megni að því að fá
heilbrigðismál á dagskrá hinnar pólitísku um-
ræðu meðal annars með útgáfu bæklings sem
hefur fengið víðtæka dreifingu. Þar eru tekin
upp þau mál sem félaginu finnst eðlilegt að
rædd séu við stjórnmálamenn, svo sem réttinda-
mál sjúklinga, aðgengi að þjónustu, skipulag
þjónustunnar og fjármögnun. Hefur það með
öðru leitt til þess að heilbrigðismál eru eitt af
kosningamálunum þar í landi. Sænska læknafé-
lagið gerði svipað átak í aðdraganda þingkosn-
inga þar í landi á síðastliðnu hausti.
Hér hefur verið tæpt á nokkrum málefnum sem
rædd eru á vettvangi norræna læknaráðsins. Umræð-
an sem þar fer fram leiðir oft til þess að ný málefni
eru tekin á dagskrá í einu landi þegar ljóst er að félag
í öðru landi hefur náð árangri. Mikilvægt er að
Læknafélag Islands nýti sér þessi mál í umræðu hér.
Jón Snædal
• Réttur til meðferðar. Mismunandi hvernig á
þessu er haldið á hinum Norðurlöndunum en
Höfundur er varaformaður LÍ
og fulltrúi félagsins í stjórn
Norræna læknaráðsins.
Læknablaðið 2003/89 229