Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 93

Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 93
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 26 Faraldsfræði í dag Areiðanleiki rannsóknarniðurstaðna Síðasta pistli var varið í umræðu um gæði rann- sóknarniðurstaðna, fyrst og fremst er varðar rétt- mæti þeirra. Hinn meginflötur málsins er áreiðan- leiki (reliability) niðurstaðnanna, það er hve sam- bærilegar niðurstöður fengjust ef tiltekin rannsókn væri endurtekin í sama þýði. Áreiðanleiki niður- staðna veltur fyrst og fremst á því hve stöðluð að- ferðafræði var notuð við framkvæmd rannsóknarinn- ar, aðallega við söfnun og úrvinnslu gagna, og hve vel henni var lýst. Þannig tekur áreiðanleiki niðurstaðna fyrst og fremst til grunngagnanna sem niðurstöðurn- ar byggjast á. Ef endurtekin mæling eða skráning ákveðins fyrirbæris leiðir af sér sömu upplýsingar er sagt að um áreiðanleg gögn sé að ræða. Ef þrír læknanemar nota sömu áhöld til að mæla blóðþrýsting sama ein- staklings og hver um sig fær mismunandi gildi er um óáreiðanlega mælingu að ræða. Fyrir því geta verið margar orsakir, svo sem raunverulegar breytingar á blóðþrýstingi, mismunandi verklag við mælinguna eða misgóð heyrn nemanna. Jafnvel ef allir þrír hefðu komist að sömu niðurstöðu, það er ef mæling- in hefði verið áreiðanleg, er ekki víst að hún hefði verið réttmæt eða sönn. Ef notaður er belgur af rangri stærð eða ef blóðþrýstingsmælirinn er illa stilltur má fá nákvæmlega sömu gildi við endurtekn- ar mælingar, þau eru þannig áreiðanleg en röng. Þannig er góður áreiðanleiki alls ekki trygging fyrir réttmæti. Hins vegar, ef um óáreiðanleg gögn er að ræða, geta þau varla verið réttmæt þar sem fyrir hveija skilgreinda breytu eða gildi sem á að mæla eða skrá getur aðeins verið til eitt réttmætt eða satt gildi. Óáreiðanleiki gagna sem unnin eru upp úr skráð- um heimildum getur átt sér margar uppsprettur. Ef margir aðilar koma að skráningunni er ekki víst að þeir skrái allir á sama hátt. Ef sömu atriði eru skráð á fleiri en einn stað eða ef gögn eru afrituð, til dæmis milli skjala eða gagnagrunna, er möguleiki á mis- ræmi. Jafnframt geta skráningarvenjur verið breyti- legar milli staða eða breyst með tímanum. Þannig geta gögn sem virðast standa fyrir sömu upplýsing- arnar verið algerlega ósambærileg og óáreiðanleg. Tökum sem dæmi rannsókn sem byggir á útskriftar- greiningum (ICD greiningum) sjúklinga á lyflæknis- deildum nokkurra sjúkrahúsa. Á hverri deild eða sjúkrahúsi geta verið til staðar mismunandi reglur um hvaða ICD greiningar helst skuli nota fyrir til- tekið ástand. Breytingasaga þessara reglna getur ver- ið mismunandi milli staða. Af þessum sökum er nauðsynlegt að kanna verklag við val greininga á hverjum stað á því tímabili sem rannsóknin nær yfir til að tryggja eftir því sem kostur er að um sambæri- leg gögn sé að ræða. Björninn er þó ekki unninn því innan hverrar deildar og fyrir hvern einstakling geta gögnin verið breytileg eftir því hvar er borið niður. Utskriftargreiningar eru skráðar á mörgum stöðum, svo sem á forsíðu sjúkraskrár, inni í sjúkraskrá, í læknabréf, í sjúklingabókhald og í ýmis úrvinnslu- kerfi. Fjölmargar ástæður geta verið fyrir því að þess- um gagnauppsprettum ber ekki saman, það er að upplýsingar um greiningarnar eru ekki áreiðanlegar. Auðvitað eru almennt mestar líkur á að gögnin séu áreiðanleg sem næst frumskráningunni, þar sem minnst hefur verið átt við þau og því yfirleitt best að safna þeim þaðan. Rétt er að árétta að hér er einung- is vísað til þess hvort sama greiningin er skráð eins á mismunandi stöðum, það er hvort skráning hennar er áreiðanleg. Hvort greiningin er rétt(mæt) er allt ann- að mál og mun erfiðara að átta sig á því út frá skráð- um gögnum. Rætt hefur verið um réttmæti og áreiðanleika gagna sem undirstöðu rannsóknarniðurstaðna. Gæði gagna eru einnig iðulega metin út frá þremur öðrum sjónarhornum. í fyrsta lagi er heildstæði eða tæming (completeness) gagna. Með því er átt við að fyrir hvern einstakling eða stak í rannsókn sé til fullkomið safn mælinga eða upplýsinga miðað við rannsóknar- áætlun. I öðru lagi er nákvæmni (precision) gagna, til dæmis að notaður sé viðeigandi fjöldi aukastafa í mælingu eða að skráður sé fjórði stafur ICD kóða þegar það á við. í þriðja lagi er tímanleiki (timeli- ness), það er að nauðsynleg gögn séu til reiðu í raun- tíma eða innan tiltekinna tímamarka. Þetta á sérstak- lega við þegar um samfellda, eða að minnsta kosti nokkuð reglulega gagnasöfnun og úrvinnslu, er að ræða, svo sem í skrám um nýgengi sjúkdóma, til dæmis smitsjúkdóma, eða í sjúklingabókhaldi sjúkra- stofnana. María Heimisdóttir mariahei@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 269
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.