Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Staða og hlutverk LSH í
heilbrigðisþjónustunni á Íslandí
Sigurbjörn
Sveinsson
Fyrir skömmu kom út skýrsla Landlæknisembættis-
ins um stöðu Landspítala - háskólasjúkrahúss, LSH,
og er að finna á heimasíðu embættisins www.land-
laeknir.is Hún er um margt athyglisverð og gott inn-
legg í umræðuna um stöðu LSH. Þótt margt gott sé
að finna í skýrslunni er einnig ýmislegt, sem efast má
um. Ekki eru allir sammála um tímasetningu á vinnslu
skýrslunnar, efnistök og niðurstöður, en fagna ber
faglegri umræðu um stöðu og hlutverk LSH. Grein
þessi er hugsuð sem innlegg í þá umræðu.
í skýrslunni kemur fram að háskólasjúkrahús séu
flaggskip heilbrigðisþjónustu, og þar fari saman þrí-
þætt hlutverk, þjónusta við sjúklinga, tilurð nýrrar
þekkingar (vísindarannsóknir) og miðlun hennar
(kennsla). í skýrslunni segir, að það skipti miklu máli
fyrir háskólasjúkrahús að sinna sem flestu. Vaxandi
ferliverkastarfsemi utan sjúkrahússins sé spítalanum
skaðleg. Gegn því verði að vinna. A öðrum stað í
skýrslunni er velt vöngum yfir fjárhagsvanda spítal-
ans. Þar segir, að ekkert hafi komið fram um að heil-
brigðisþjónusta á íslandi sé dýrari en í nálægum lönd-
um. Allir geti verið sammála um, að nauðsynlegt sé
að halda kostnaði innan skynsamlegra marka og að á
stjórnendum hvíli sú kvöð að reka stofnunina á hag-
kvæman hátt. Engu að síður muni kröfur um gæði
þjónustunnar og óhindraðan aðgang að henni fara
vaxandi. Því sé leitað leiða til að veita aukna þjónustu
fyrir sama fé. Það verði vart gert nema með tilfærslu
á verkefnum og verkaskiptingu milli stofnana auk
þess, sem nauðsyn beri til að halda áfram að þróa
verkefnatengdar fjárveitingar.
í þessu samhengi má spyrja, hvemig það fari saman
að efla háskólasjúkrahúsið á flestum sviðum og fjöl-
breyttum annars vegar og koma böndum á fjárhags-
vanda spítalans hins vegar? Er víst að vaxandi ferli-
verkastarfsemi utan sjúkrahússins sé spítalanum skað-
leg?
Útþynning fjármagnsins
Höfundur er formaður
Læknafélags íslands.
Sjónarmið þau er fram koma í
pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar eru höfundar hverju
sinni og ber ekki að taka sem
samþykktir stjórnar LÍ.
Spyrja þarf, þegar verið er að vega saman sjónarmið
um góða nýtingu fjármuna og eins góða þjónustu og
unnt er að veita fyrir þá fjármuni sem til ráðstöfunar
eru, hvaða þjónustustig á að vera inni á hátækni-
sjúkrahúsi. Er skynsamleg stefna að halda uppi eins
víðtækri starfsemi og unnt reynist? Útdeila því fjár-
magni, sem til ráðstöfunar er sem víðast? Eða er
skynsamlegra að útdeila fjármagninu til afmarkaðra
þátta og halda þá uppi betri starfsemi en ella á þeim
sviðum? Spyrja má, hvort það sé rétt stefna hátækni-
sjúkrahúss að vera með sem mesta göngudeildar-
þjónustu eða hvort þeirri starfsemi sé betur fyrir
komið annars staðar? Er það rétt stefna, að hátækni-
sjúkrahúsið geti eitthvað í öllu en ekkert sérlega vel?
Eða ætti stefnan að vera sú, að hátæknisjúkrahúsið
sinni afmörkuðum þáttum og geri það mjög vel?
Þegar litið er til hlutverks sjúkrahússins sem kennslu-
stofnunar má spyrja, hvort sé skynsamlegra að kenna
eitthvað í öllu en ekkert sérlega vel? Eða hvort rétt-
ara sé að kenna ákveðna hluti vel og leita annarra
leiða til að kenna það, sem ekki er hægt innan sjúkra-
hússins? Má hugsa sér samninga við þá, sem hafa sér-
hæft sig á viðkomandi sviði? Þannig má spyrja enda-
laust.
í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga, að
spítalinn er ekki eyland sem þarf að vera sjálfbært á
öllum sviðum. Spítalinn er ekki hluti fvrir heild held-
ur hluti af heild. Þótt segja megi, að hann sé sverasti
einstaki þáttur heilbrigðiskerfisins, þá getur verið, að
aðrir hlutar þess en spítalinn séu betur til þess fallnir
að sinna ýmsum verkum. Gilda þar sömu hagfræði-
lögmál og í samfélaginu almennt; heildinni farnast
betur ef allir einbeita sér að því, sem þeir eru betri í
en aðrir.
Hlutverk LSH
Svör við ofangreindum spurningum eru ekki einhlít.
Áður en reynt er að finna svörin er mikilvægt að skil-
greina, hvert sé hlutverk og tilgangur spítalans. Því
næst er hægt að setja markmið og móta leiðir til að ná
því. Hvert er hlutverk LSH? Fyrir hveija er LSH? Er
spítalinn fyrir sjúklinga, samfélagið, starfsmenn,
stjórnendur eða einhverja aðra?
Væntanlega geta flestir verið um það sammála, að
hlutverk spítala sé að lækna sjúka. Önnur hlutverk
spítalans eins og vísindarannsóknir og kennsla eru af-
leidd með hið sama endanlega takmark, það er að
lækna sjúka. Sú krafa er gerð, að það megi ekki kosta
hvað sem er að lækna sjúka. Hugsa þarf um hags-
muni samfélagsins af hagkvæmri þjónustu. Ef sátt
næst um þetta hlutverk, þarf að nálgast verkefnið frá
þeim sjónarhóli. Hverjir eru hagsmunir sjúkra og
samfélagsins? Eftir hagsmunum þeirra þarf að skipu-
leggja þjónustuna, ekki hagsmunum einstakra stétta,
stjórnenda innan spítalans eða annarra.
Hvernig ræktar spítalinn best hlutverk sitt til að
þjóna hagsmunum sjúkra og samfélagsins? Gerir hann
það með því að leggja áherslu á þjónustumarkmið eða
gerir hann það með því að leggja áherslu á samkeppn-
ismarkmið? Eða fara þessi markmið saman? Bætir
spítalinn samkeppnisstöðu sína með betri þjónustu og
224 Læknablaðið 2003/89