Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 23
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR
Ómega-3 fjölómettaðar fítusýrur:
Hlutverk í læknisfræði
Ólafur Skúli
Indriðason1
LÆKNIR, SÉRFRÆÐINGUR 1
LYFLÆKNINGUM OG
NÝRNASJÚKDÓMUM
Runólfur Pálsson1
LÆKNIR, SÉRFRÆÐINGUR 1
LYFLÆKNINGUM OG
NÝRNASJÚKDÓMUM
Viðar Örn
Eðvarðsson2
LÆKNIR, SÉRFRÆÐINGUR f
BARNALÆKNINGUM OG
NÝRNASJÚKDÓMUM BARNA
Ágrip
Áhugi á notkun ómega-3 fjölómettaðra fitusýra í
læknisfræðilegum tilgangi hefur glæðst mikið síðustu
áratugi enda liggja nú fyrir fjölmargar rannsóknir á
gagnsemi þeirra við meðferð ýmissa sjúkdóma. Yfir-
völd lyfjamála í nokkrum löndum Evrópu hafa veitt
lyfi sem inniheldur ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur
markaðsleyfi sem meðferð við hárri þéttni þríglýser-
íða í blóði og nýverið einnig sem hluta af meðferð
eftir brátt hjartadrep. Pá hafa rannsóknir gefið vís-
bendingar um ávinning í mun fleiri sjúkdómum, sér-
staklega hjarta- og æðasjúkdómum, og hafa meðal
annars leitt í ljós að ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur
gætu nýst við meðferð háþrýstings, æðakölkunar og
til að fyrirbyggja alvarlegar hjartsláttartruflanir og
skyndidauða. Einnig hafa á undanförnum árum kom-
ið fram fjölmargar áhugaverðar rannsóknir á notkun
þessara fitusýra í meðferð langvinnra bólgusjúk-
dóma, sérstaklega iktsýki og ónæmisglóbúlín A
nýrnameins þar sem niðurstöður benda til marktæks
ávinnings af slíkri meðferð en hafa ekki verið alveg
samhljóða. Loks hafa rannsóknir á hlutverki ómega-
3 fjölómettaðra fitusýra í miðtaugakerfi ýtt undir at-
huganir á gildi þeirra fyrir taugaþroska ungbarna og
notkun við meðferð geðsjúkdóma en þær rannsóknir
eru ekki eins langt á veg komnar. I þessari grein er
fjallað um gildi ómega-3 fjölómettaðra fitusýra í
læknisfræði og helstu rannsóknir sem farið hafa fram
á notkun þeirra við meðferð sjúkdóma.
ENGLISH SUMMARY
Indriðason ÓS, Pálsson R, Eðvarðsson VÖ
The role of omega-3 polyunsaturated fatty acids
in clinical medicine
Læknablaðið 2003; 89: 199-211
In recent years there has been a growing interest in the
use of omega-3 polyunsaturated fatty acids as medical
therapeutic agents, and a multitude of epidemiological and
clinical studies have evaluated their role in health and
disease. A drug containing high concentration of omega-3
polyunsaturated fatty acids has been approved for the
treatment of hypertriglyceridemia and following myocardial
infarction in some European countries. Furthermore, there
is a growing body of evidence suggesting that these fatty
acids may be of benefit in several other diseases. To date,
the majority of research has focused on cardiovascular
diseases including hypertension, atherosclerosis and the
prevention of sudden cardiac death, where these fatty
acids may be useful. In addition, several studies have
suggested a beneficial effect in severe acute and chronic
inflammatory diseases, particularly rheumatoid arthritis
and immunoglobulin A nephropathy, although the results
have not been consistent. Finally, the role of omega-3
polyunsaturated fatty acids in the structure and function of
nervous tissue has prompted investigations on their effect
on neurological development of premature and young
infants and their use as therapeutic agents in psychiatric
disorders. In this article we review the scientific evidence
for the role of omega-3 polyunsaturated fatty acids in
clinical medicine.
'Nýrnadeild og Lyflækninga-
svið 1,2Barnaspítali Hringsins,
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
Fyrirspumir og bréfaskipti:
Viðar Öm Eðvarðsson,
Bamaspítala Hringsins,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík. Sími: 543-1000,
fax: 560-1055.
vidare@lcindspitali.is
Lykilorð: ómega-3 fjölómett-
aðar fitusýrur, lýsi, hjartasjúk-
dómar, bólgusjúkdómar, IgA
nýrnamein, geðsjúkdómar,
taugaþroski.
Inngangur
Allt frá því fyrst var tekið eftir lágri dánartíðni vegna
hjarta- og æðasjúkdóma meðal inúíta á Grænlandi
hafa farið fram miklar rannsóknir á áhrifum sjávar-
fangs, lýsis og þeirra fitusýra sem þessar afurðir hafa
að geyma á heilbrigði og sjúkdóma (1-3). Þessar
rannsóknir hafa einkum beinst að sjúkdómum í
hjarta og æðakerfi og hækkaðri blóðfitu en svo virðist
sem neysla þessara afurða hafi þar mikilvæg vernd-
andi áhrif. Einnig hafa frumurannsóknir, dýratilraun-
ir og rannsóknir á mönnum gefið til kynna að ómega-
3 fjölómettaðar fitusýrur hafi umtalsverð bólgu- og
ónæmishemjandi áhrif (4) og hlutverk þeirra í bygg-
ingu frumuhimna er talið mikilvægt fýrir þroska og
starfsemi taugakerfis (5).
Nýlega var sérlyfinu Omacor™ (Solway Pharma-
ceuticals, Brussel, Belgía), sem er blanda af eikósa-
Key words: omega-3 polyunsaturated fatty acids, fish oil,
cardiovascular diseases, inflammatory diseases, IgA
nephropathy, mental illness, neurological development.
Correspondence: Viðar Örn Eðvarðsson,
vidare@landspitali.is
pentaensýru (eicosapentaenoic acid, EPA) og dók-
ósahexaensýru (docosahexaenoic acid, DHA), veitt
markaðsleyfi í nokkrum löndum Evrópu sem með-
ferð við hækkaðri þéttni þríglýseríða í blóði og eftir
brátt hjartadrep. Sterkar vísbendingar eru þó um að
lyfið geti gagnast við fleiri meinsemdum. í þessari
yfirlitsgrein er fjallað um helstu rannsóknir á þýðingu
sjávarfangs og/eða ómega-3 fjölómettaðra fitusýra
fyrir heilbrigði og mögulega gagnsemi þessara fitusýra
við meðferð sjúkdóma, þar á meðal hjarta- og æða-
Læknablaðið 2003/89 199