Læknablaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LJÓÐ OG LÆKNINGAR
Hin Íslensku bókmenntaverðlaun fyrir árið 2002
hlaut Ingibjörg Haraldsdóttir fyrir ljóðabók sína,
Hvar sem ég verð. I ávarpi hennar við verðlaunaaf-
hendinguna kom fram sú skoðun skáldsins að ljóðið
væri hvergi nærri dautt úr öllum æðum þrátt fyrir þrá-
látan orðróm þess efnis, það væri mannbætandi á alla
lund og hefði ótvírætt uppeldisgildi. Óumdeilanleg-
astur væri þó lækningamáttur ljóðsins, gott dæmi um
þetta væri sjálfur Egill Skallagrímsson og sá óbrot-
gjarni minnisvarði Sonatorrek. Talað er um að fólk
skrifi sig eða yrki frá innri sársauka, og flestir þekkja
líka af eigin raun hvað það yljar um hjartarætur að
syngja saman eða að fara með eitthvað fallegt einsog
sagt var í minni sveit. Listmeðferðarfræðingar (art
therapists) starfa í þessum anda inni á sjúkrahúsum
og víðar með það að leiðarljósi að fá sjúkum og sorg-
mæddum bata með því að láta þá taka þátt í listsköp-
un af ýmsum toga; til dæmis myndlist, dansi, leiklist
og ritun.
- En ljóðið, og máttur þess og megin gagnvart
kvölum og plágum? Eina meinsemdin sem mig hefur
hrjáð um dagana er svæsin tannrótarbólga á yngri ár-
um: sokkin augu, bólgnir kjálkar, hræðilegar vítis-
kvalir. Mér vitraðist á vísindalegan hátt að sá sem a)
gúffar í sig gotterí seint og snemma, b) ber ekki skyn-
bragð á burstun tanna, c) stígur ekki fæti sínum inn
fyrir dyr hjá tannlækni árum saman þrátt fyrir þrot-
lausa tannpínu - hann fær að lokum tannrótarbólgu!
Þvermóðska mín leyfði ekki að ég borðaði magnyl og
þrautalending móður minnar eftir talsverðan grát og
gnístran var að kveða fyrir mig rímur. Mamma (f.
1920) skildi ekki baun í Andrési önd, mér fundust
þjóðsögurnar fúlar og þýddar dömubókmenntir kost-
uðu endalaus komment frá mömmu meðan á lestri
stóð: „Núnú á maður svo að trúa því að hún verði
skotin í þessu greifafi'fli.'* Og rímur reyndust hafa
ótvíræðan lækningamátt: rímurnar eftir Örn Arnar-
son um Odd sterka á Skaganum voru bara einsog
ópíum fyrir mig í tannrótarkrísunni, ég slefaði af vel-
líðan: Meira, meira, þegar mamma sýndi merki þess
að hún ætlaði ef til vill að snúa sér að öðrum verkefn-
um en að kveða rímur. Bótin fólst mest í rytma og
resónansi í stuðlum, höfuðstöfum og rími, þetta var
sefjandi, kjálkinn féll niður, enginn vöðvi strekktur,
og hin djúpa slökun ýtti sársaukanum burt. Mjög
skrítið en afar áþreifanlegt. Þarna vann saman efni,
form og flutningur, rímna-pakkinn af Oddi sterka var
á við allt heimsins parkódín, jafnvel forte, um það
getur síðasta vísan í rímnaflokknum borið fagurt vitni:
Kveðum hátt uns dagur dvín,
dýran hátt við baugalín,
Venus hátt í vestri skín,
við skulum hátta elskan mín.
Kvæðamenn geta ef til vill linað kvalir fólks án
nokkurra aukaverkana eða vanabindingar, það er
talsvert verkjastillandi að hlýða á kveðskap um Odd
sterka og alveg áreiðanlega er öflugur lækningamátt-
ur falinn í því að lesa ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
Vegsummerki
Á miðjum veginum
einsog bíll hafi stansað
og einhver hafi hlaupið
yfir skurðinn inn í skóginn
einsog bíllinn hafi rokið afstað
með rassaköstum
skrensandi
og skilið það eftir
og nú liggur það hér
í kyrrðinni sem lagðist
yfir veginn skurðinn skóginn
þegar bt'llinn varfarinn
þetta rauða hjarta
á miðjum veginum
og slcer
Úr ljóðabókinni Hvarsem ég verð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur.
ingibjórg haraldsdóttir
hvar sem ég verð
Kápa Ijóðabókar Ingi-
bjargar Haraldsdóttur,
Hvar sem ég verð.
Védís
Skarphéðinsdóttir
Læknablaðið 2003/89 241