Læknablaðið - 15.01.2004, Síða 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LANDSPÍTALI
Tómas Helgason
Nýlega birtist skýrsla Ríkisendurskoðunar, „Samein-
ing sjúkrahúsanna í Reykjavík. Mat á árangri“ (www.
rikisendurskodun.is/files/skyrslur2002). I fréttatilkynn-
ingu Ríkisendurskoðunar segir: „I skýrslunni kemur
fram að erfitt sé að gefa afdráttarlaus svör við því
hvort sameininginn hafi skilað tilætluðum árangri þar
sem ekki voru sett fram mælanleg markmið fyrir sam-
eininguna. Ljóst sé þó að kostnaðarlega hefur sam-
einingin ekki skilað ávinningi en faglega séð hefur
hún styrkt spítalann“. Engin gögn koma fram í skýrsl-
unni sem styðja fullyrðinguna um aukinn faglegan
styrk.
I skýrslunni segir: „Þrátt fyrir að markmið samein-
ingarinnar hafi ekki verið sett fram með skýrum hætti
má lesa eftirfarandi fyrirætlanir úr gögnum sem unn-
in voru meðan á aðdraganda hennar stóð:
• Gera átti starfsemina skilvirkari og ódýrari.
• Auka átti gæði þjónustunnar og ánægju með
hana.
• Styrkja átti rannsóknir og kennslu innan
sjúkrahússins."
Þetta er væntanlega úr skýrslu ráðgjafafyrirtækis
sem kom á árinu 1997 þar sem m.a. kom fram að
hugsanlega væri hægt að fækka um 500 störf og að
nýta mætti þá fjármuni sem spöruðust til þróunar og
bættrar þjónustu.
Hver hefur svo árangurinn orðið?
1) Fagleg áhrif. „Til lengri tíma litið gefur sameining
sérgreina kost á markvissari og betri þjónustu við
sjúklinga og meiri möguleikum á kennslu og vís-
indastörfum“. Engin gögn eru í skýrslunni sem
benda til að þetta hafi orðið enn, enda segir á öðr-
Höfundur er geölæknir. um stað í skýrslunni: „Breytingar tengdar samein-
Breytingar á sjúkrahússþjónustu í Reykjavík 1996-2003 og fjölda koma til sérfræðinga á
lækningastofur utan sjúkrahúsa.
1996 2003 (áætlun frá 10 mánuóa uppgjöri)
Meðalfjöldi sjúklinga í sólarhringsvist 1.104 775
Legur 36.710 32.300
Legudagafjöldi 408.079 282.000
Dagvistardagar/dagdeildarkomur* 105.152 102.000
Göngudeildaviðtöl 126.000** 200.000
Starfsmenn 4.006 3.891
Rekstrarkostnaður (m.kr.) 21.730*** 26.340
Komurtil sérfræðilækna á læknastofur 398.510 468.153
*Skráningin er ekki sambærileg milli ára, þannig að líklegt er aó komufjöldinn sé svipaóur bæói árin.
**Göngudeildaviötöl Landspítala áastluó miöaö vió upplýsingar frá 1989.
***Rekstrarkostnaóur uppreiknaóur meö launavísitölu júnímánaðar 2003.
Heimildir:
Ársskýrslur Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur 1996. Stjórnunarupplýsingar Landspítala jan.-okt.
2003 (www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/fíles/stju_okt_03/$file/stju_okt_03.pdf).
Staðtölur almannatrygginga 2002 (www.tr.is Staðtölur 2002, tafla 2.06).
ingunni hafa enn ekki skilað áþreifanlegum um-
bótum á kennslu- og rannsóknarþættinum."
2) Afköst fyrir og eftir sameiningu. Ekki hefur enn
tekist að auka umfang þjónustu. Legum og legu-
dögum hefur fækkað, dag- og göngudeildarþjón-
usta hefur aukist lítillega og fjöldi skurðaðgerða er
svipaður og fyrir sameiningu.
3) Skilvirkni og kostnaður. „Þrátt fyrir nokkra fækk-
un starfsfólks er umfang þeirrar þjónustu sem það
skilar svipað“, það er „framleiðni á hvert stöðu-
gildi hefur aukist lítillega“. „Hins vegar hefur allur
tilkostnaður hækkað svo mikið að minni þjónusta
fæst fyrir hverja krónu en áður var“.
4) Gœði þjónustunnar fyrir og eftir sameiningu.
„Fyrirliggjandi upplýsingar gefa ekki til kynna að
bið eftir þjónustu hafi almennt styst.“ Sjúkrahúsið
hefur þó upplýst að staðan hafi batnað á árinu
2003.
Lesendum til frekari glöggvunar hef ég tekið sam-
an meðfylgjandi töflu sem nær yfir lengra tímabil en
skýrsla Ríkisendurskoðunar.
Minni sjúklingafjöldi og fækkun legudaga 2003
skýrist að mestu leyti af lokun Vífilsstaða, verulegs
hluta Kópavogshælis og öldrunardeildar í Hátúni,
auk fækkunar um 70 rúm á geðsviði. Fækkun starfs-
manna er ekki eins mikil og taflan gefur til kynna
vegna þess að ákveðin verk hafa verið færð í útboð,
svarandi til 67 starfsmanna (skv. skýrslu Ríkisendur-
skoðunar). Þrátt fyrir 30% fækkun legudaga hefur
kostnaður aukist um um rúm 20% á föstu verðlagi og
e.t.v. meira vegna þess að launakostnaður er ekki
nema um 65% af útgjöldum eins og verið hefur. Á
móti kemur að göngudeildaþjónusta virðist hafa auk-
ist um nærri 60% og komum til sérfræðilækna utan
sjúkrahúsa hefur fjölgað um 17%. Samkvæmt skýrslu
Ríkisendurskoðunar hefur orðið óveruleg breyting á
fjölda göngudeildarkoma eftir sameininguna, svo að
sú aukning sem hér kemur fram hefur orðið áður en
sameiningin varð. íbúafjöldi á höfuðborgarsvæðinu
hefur aukist um ca. 10% á þessum árum og öldruðum
hefur fjölgað um 12% á landinu.
Sigri hrósað þrátt fyrir misheppnaða tilraun
Spítalaforstjórinn fullyrðir að vandinn væri meiri án
sameiningar og hefur þá eflaust í huga sveltistefnuna,
sem rekin var í hans tíð í fjármálaráðuneytinu og
virðist nú blómstra á nýjan leik. Líklegra er þó að
vandinn væri minni og þjónustan betri ef spítalarnir
væru tveir og veittu hvor öðrum aðhald, en hefðu
hæfilega samvinnu. Forstjórinn og fjárreiðustjórinn
tala bæði um að sjúklingar sem svöruðu könnun sem
54 Læknablaðið 2004/90