Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Síða 57

Læknablaðið - 15.01.2004, Síða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / H Æ S TA R ÉTTA R D Ó M U R UM GAGNAGRUNN heilsufarsupplýsinga og veitir hverjum manni (einnig látnum) friðhelgi um einkalíf sitt Mannvernd og þeir fjölmörgu læknar sem studdu málsóknina fagna dómi hæstaréttar í gagnagrunns- málinu (Ragnhildur Guðmundsdóttir (RG) gegn íslenska ríkinu). Hæstiréttur byggir dóminn einkum á fyrstu málsgrein 71. greinar stjórnarskrárinnar sem segir stutt og snjallt: „AUir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.“ Dómurinn sýnir næman skilning hæstaréttar á friðhelgi einkalífs sem þannig er varið af stjórnarskránni og mannréttinda- sáttmálum Sameinuðu þjóðanna og Evrópu. Dómur- inn er til marks um sjálfstæði dómsvaldsins gegn framkvæmda- og löggjafarvaldinu. I dómnum er að finna átta afar mikilvæg atriði. Bersýnilegt er af þeim og öðrum atriðum dómsins að í dómnum er tekið undir sjónarmið þeirra sem gagn- rýnt hafa frumvarpið og lögin um gagnagrunn á heil- brigðissviði. Lögin standast ekki stjórnarskrána og gagnagrunninn er ekki hægt að byggja og reka að óbreyttum lögum. Persónulegir hagsmunir skyldmennis í fyrsta lagi viðurkennir hæstiréttur að RG hafi vegna friðhelgi einkalífs síns persónulega hagsmuni af því að koma í veg fyrir að upplýsingar úr sjúkraskrám látins föður hennar verði fluttar í gagnagrunninn. Löggjöf og friðhelgisákvæði stjórnarskrár Þá er tekið fram að yfirgripsmiklar upplýsingar um heilsufar manna, læknismeðferð sem þeir sæta, lifn- aðarhætti, félagslegar aðstæður, atvinnu og fjöl- skylduhagi séu færðar í sjúkraskrá. Upplýsingar þess- ar geta varðað einhver brýnustu einkamálefni þess sem í hlut á, án tillits til þess hvort þær geti talist hon- um til hnjóðs. Friðhelgisákvæði stjórnarskrárinnar tekur til slíkra upplýsinga og veitir hverjum manni friðhelgi um einkalíf sitt að þessu leyti. Ennfremur segir rétturinn að til að tryggja þá friðhelgi verði lög- gjafinn meðal annars að gæta að því að lög leiði ekki af sér raunhæfa hættu á að slíkar upplýsingar um einkahagi tiltekins manns komist í hendur annarra, sem eiga ekki réttmætt tilkall til aðgangs að þeim, hvort sem um er að ræða aðra einstaklinga eða hand- hafa ríkisvalds. Þetta merkir að hvorki má veita einkaaðilum né ríkisvaldi aðgang að upplýsingum um einkahagi til- tekins manns nema um réttmæta og lögmæta ástæðu sé að ræða. Ekki samþykkt berum orðum - krafan um upplýst samþykki I dóminum segir að með 7. gr. gagnagrunnslaganna sé gefinn kostur á að einkaaðili utan heilbrigðiskerfisins geti fengið uppplýsingar úr sjúkraskrám án þess að hinn skráði hafi berum orðum samþykkt það. Þó það eitt út af fyrir sig þurfi ekki að vera andstætt frið- helgisákvæði stjórnarskrárinnar verður löggjafinn með hliðsjón af framansögðu að stuðla að því við setningu reglu sem þessarar að tryggt sé eins og frek- ast er kostur að upplýsingarnar verði ekki raktar til ákveðinna manna. Þegar sagt er að hinn skráði hafi ekki berum orð- um samþykkt aðgang utanaðkomandi aðila að sjúkra- skýrslum sínum er hæstiréttur beinlínis að vísa í kröf- una um upplýst samþykki. Það að ekki er farið eftir upplýstu samþykki var og er einn helsti ásteytingar- steinninn í umræðunni um gagnagrunninn. Pétur Hauksson Dulkóðun gerir ekki útslag I dóminum segir ennfremur að ekki verði ráðið af gagnagrunnslögunum, reglugerð um gagnagrunninn eða starfsleyfi hvaða upplýsingar úr sjúkraskrá verði að dulkóða fyrir flutning í grunninn. Af viðauka við rekstrarleyfi virðist ekki annað verða ráðið en gengið sé út frá því að eingöngu kennitala sjúklings verði dulkóðuð í gagnagrunninum, en nöfnum og nákvæm- lega tilgreindu heimilisfangi verði sleppt. En þrátt fyrir alla dulkóðun sem hæstiréttur segir að „geti ver- ið framkvæmd með slíku öryggi að nánast niegi telja útilokað að lesa dulritaðar upplýsingar,“ eru upp- lýsingar þessar ekki þær einu sem geta tekið „af tví- mæli í einstaka tilvikum um hvaða maður eigi í hlut.“ Nægt geti upplýsingar um aldur manns, sveitarfélag, hjúskaparstöðu, menntun og starfsheiti ásamt til- greiningu á ákveðnum sjúkdómi, hvort heldur allt þetta til samans eða einstök þessi atriði. Ekki er girt fyrir það með lögum að nákvæmar upplýsingar um þessi atriði verði fluttar í gagnagrunninn. Höfundur er geðiæknir og Með þessu er hæstiréttur að segja að allt tal um dul- formaður Mannverndar. Læknablaðið 2004/90 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.