Læknablaðið - 15.01.2004, Page 84
ÞING / RÁÐSTEFNUR
XVI. þing Félags íslenskra lyflækna
Þing Félags íslenskra lyflækna, hið XVI. í röðinni, verður haldið á Sauðárkróki dagana 4.-6. júní næstkomandi.
Á þinginu gefst þátttakendum að venju kostur á að kynna rannsóknir sínar og styðjast þá annaðhvort við skyggn-
ur eða veggspjald. Lögð verður meiri áhersla en áður á notkun veggspjalda við kynningu.
Leiðbeiningar fyrir ágrip erinda og veggspjalda:
* SKILAFRESTUR ER 15. APRÍL.
* Hámarkslengd ágripa miðast við 1800 letureiningar (characters with spaces), talið án nafna höfunda og stofn-
ana.
* Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
* Eftirtalin atriði komi fram í ágripi í þeirri röð sem hér er getið: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnu-
staðir með tilvísun til höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, helstu niðurstöður og ályktanir. Semja þarf
sérstaklega um birtingu á töflum og myndum.
* Höfundar taki fram hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
* Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi á netfang: birna@birna.is.
* Notaður verður tölvuskjávarpa við flutning erinda.
* Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Stjórn Félags íslenskra lyflækna mun meta hvort ágrip verði kynnt með erindi eða veggspjaldi.
Skráning: Þátttökutilkynningar á veffangi: www.birna.is Sjá skráningarblað. Þátttakendur er hvattir til að skrá sig
tímanlega.
Þátttökugjald: Þátttökugjald er 12.000 kr. fullt gjald, 9.000 kr. fyrir unglækna, frítt fyrir læknanema. Þátttökugjald
greiðist við skráningu á þingstað. Innifalið í þátttökugjaldi eru þinggögn, kaffi á þingstað, boð í hádegisverð á
laugardag og kvöldverði á föstudags- og laugardagskvöldi.
Gisting: Gist verður á Fosshóteli Áningu, Hótel Tindastóli, Gistiheimilinu Koti og Gistiheimilinu 550. Pantanir:
www.birna.is Sjá bókunarblað. Ekki er unnt að staðfesta pöntun á gistingu nema kortanúmer sé uppgefið.
Kort: Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/MasterCard.
Skipuleggjandi: Menningarfylgd Birnu ehf - Birna Þórðardóttir -
Veffang: www.birna.is - Netfang: birna@birna.is - S.: 862 8031
Stjórn Félags íslenskra lyflækna:
Davíð O. Arnar, ritari, Landspítala háskólasjúkrahúsi
Hlíf Steingrímsdóttir, Landspítala háskólasjúkrahúsi
Rafn Benediktsson, Landspítala háskólasjúkrahúsi
Runólfur Pálsson, formaður, Landspítala háskólasjúkrahúsi
Sigurður Guðmundsson, landlæknir
Sigurður Ólafsson, gjaldkeri, Landspítala háskólasjúkrahúsi
AstraZeneca dagur
6. mars 2004
Hinn árlegi fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna haldinn á Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar eru sem fyrr einnig hjartanlega velkomnir.
AstraZeneca dagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og AstraZeneca.
Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukkustunda almennum fundi. Að því loknu verður boðið
upp á tvíþætta samhliða dagskrá fram að almennum fundi milli kl. 16:00 og 17:00.
Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca
84 Læknablaðið 2004/90