Læknablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 12
FRÆÐIGREINAR
LYFJAOFNÆMI
Tafla II. Einkenni við ofnæmi fyrir betalactam
sýklalyfjum
Frá húð
Maculopapuler / morbilliform
Urticaria / angioedema
Contact dermatitis
Fixed drug eruption
Photoallergic reaction
Erythema multiforme
Steven-Johnson syndrome
Toxic dermal necrolysis
Frá mörgum líffærakerfum
Anaphylaxis
Serum sickness
Drug fever
Vasculitis
DRESS syndrome
Frá beinmerg
Haemolytic anemia
Thrombocytopenia
Neutropenia
Aplastic anemia
Eosinophilia
Frá öndunarfærum
Bronchospasm
Rhinitis
Laryngeal oedema
Pulmonary eosinophilia
Frá nýrum
Nephritis
Frá lifur
Hepatitis
iljum, andþrengslum, blóðþrýstingsfalli, hröðum
hjartslætti eða meðvitundarleysi er oftast vegna
bráðaofnæmis (24).
Einkennin sem koma meira en klukkustund
eftir lyfjatöku kallast síðbúin (nonimmediate) (25).
Algengustu einkennin af þessum toga eru mis-
lingalík útbrot, einkum þegar í hlut eiga amoxicill-
ín og ampicillín (25). Ofsakláði og ofsabjúgur geta
þó verið síðbúin einkenni. Lyfjahiti, sermisýki,
æðabólga, nýrnabólga, frumufæð í blóði, en einn-
ig heilkenni, svo sem Steven-Johnsson heilkenni,
toxic dermal necrolysis og DRESS heilkenni (Drug
Rash with Eosinophilia and Systemic Symptoms)
(lyfjaútbrot með eosinofílíu, hita, eitlabólgum og
innvortis bólgum) eru einnig síðbúin ofnæmisvið-
brögð (26, 27). Intradermal húðpróf, með því lyfi
sem í hlut á, gefa stundum síðbúin svör í þessum
tilfellum. Slík próf eru þó ekki hættulaus og því
betra að gera plástrapróf (25). Þau eru heppilegri
þegar ofnæmisviðbrögðin eru talin hættuleg. Þá
er prófað fyrir benzýl-penisillíni, amoxicillíni og
því lyfi, sem talið er valda einkennunum (25).
Lymphocyte transformation próf (LTT) hefur
einnig reynst gagnlegt við greiningu síðbúinna
ofnæmisviðbragða (28, 29). Þetta próf er þó ekki
tiltækt hér á landi. Þolpróf skyldi aldrei gera þegar
um lífshættuleg ofnæmisviðbrögð er að ræða
(tafla II) (30).
European Network of Drug Allergy, sem starfar
á vegum Evrópusamtaka ofnæmislækna (EAACI),
hefur samið spumingalista til skráningar á lyfja-
ofnæmi (31). Listinn er mjög ítarlegur og tekur um
fimm mínútur að fylla hann út.
Mæling á penisillín-sértæku IgE í sermi
A ónæmisfræðideild Landspítala er boðið upp á
mælingu á sértæku IgE mótefni gegn benzýlpen-
isillíni (penisillín G), phenoxymethýlpenicillíni
(penicillín V), ampicillíni, amoxicillíni og minor
antigenic determinants með Pharmacia CAP
System. Rannsókn á næmi og sértækni Pharmacia
CAP fyrir penisillíni var gerð á Spáni 2001 þar
sem mælt var IgE fyrir amoxicilloýl (AXO) og
benzylpenicilloýl (BPO) í 129 sjúklingum með
staðfest bráðaofnæmi fyrir penisillíni eða amox-
icillíni (23). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu
að næmi CAP mælingar var 32-50% en sértækni
96%. Samkvæmt þessari rannsókn gæti mæling
á sértæku IgE gegn BPO og AXO sparað allt að
helmingi sjúklinga, sem eru með ofnæmi fyrir
þessum lyfjum, tímafrek klínísk próf. Þessi rann-
sókn sýndi einnig að hafi ofnæmisviðbrögðin
beinst gegn amoxicillíni þarf að prófa fyrir amox-
icillíni þar sem í mörgum tilfellum er um sértæka
svörun að ræða gegn amoxicillín hliðarkeðjunni.
Nýlegri rannsókn eftir sömu höfunda á næmi og
sértækni IgE mælinga sýnir 83-100 sértækni en
lakara næmi eða 0-25% með CAP-FEIA þar sem
prófið gagnast best hjá sjúklingum með afgerandi
sögu um ofnæmislost vegna beta-lactam lyfja
(32).
Areiðanleiki CAP-FEIA mælingar hefur oft
verið dreginn í efa og að öllu jöfnu talinn minni
en húðprófa, en áðumefndar rannsóknir sýna að
prófin bæta hvort annað upp og að nauðsynlegt er
að nota þau jöfnum höndum. Líði langur tími frá
ofnæmisviðbrögðunum og þar til ofnæmisrann-
sóknin fer fram geta öll mótefni verið horfin (33).
Þetta þarf að hafa í huga þegar niðurstöður eru
túlkaðar.
Húðpróf við IgE miðlað ofnæmi
Undanfarna tvo ártugi hefur verið prófað fyrir
penisillínofnæmi á göngudeild í ofnæmissjúk-
dómum á Vífilsstöðum og síðar á Landspítala
í Fossvogi með Allergopen frá Allergopharma,
Merck, Darmstad í Þýskalandi. Efnin sem notuð
voru við prófun vom penicilloýl-polylýsin (PPL)
og benzýlpenicillín/ natrium-benzýlpenizilloate
blanda (minor determinant mixture) (MDM))
188 LÆKNAblaðið 2008/94