Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2008, Page 25

Læknablaðið - 15.03.2008, Page 25
FRÆÐIGREINAR efs'ti lihiti (1) | Ósæð liöftiðstofii (5) lihðaiaeiii (9) I. . efeti lihiti (6) ^ 2. bliðargieiu (10) yfii lihiti (8) miðliliib (2) Hægri kransæð bakvegsskvisl (15) Vinstri kransæð KRANSÆÐAR - Mynd 1. Skematísk æða- mynd. Númemðir æðahlutar kransæða sem voru skoðaðir. Mynd 1 var unnin í tölvu- forritinu Microsoft Paint fyrir Windows XP. isgjöf í bláæð í olnbogabót. Gefnir voru 90 ml af skuggaefni (Omnipaque 300 mg I/ml), með vélsprautu sem dælir 4 ml/sek. Til að tryggja þéttleika skuggaefnisins í kransæðunum var seinni myndrunan tekin þegar skuggaefnið náði ákveðnum þröskuldi í ósæðinni (> 110 Hounsfield Units). Notuð var afturvirk EKG-lyklun og las sér- fræðingur í geislagreiningu úr sneiðmyndunum í sértækum þrívíddar-tölvuvinnustöðvum. Hjartaþræðingar Hjartaþræðingarnar voru framkvæmdar á æða- rannsóknarstofu Landspítala og kransæðarn- ar myndaðar í tvívídd með stafrænni tækni. Kransæðaleggur var þræddur í upptök krans- æða og skuggaefnisdæling gerð í gegnum hann. Hjartalæknir framkvæmdi hjartaþræðinguna og var hver æðahluti skoðaður frá nokkrum mis- munandi sjónarhornum. Gögnin voru vistuð á stafrænu formi. Sérfræðingur í hjartalækningum las því næst úr myndum allra sjúklinganna í tvívíddar-tölvuvinnustöð. Úrvinnsla Kransæðatrénu var skipt niður í 15 hluta sam- kvæmt alþjóðlegum staðli (16) (sjá mynd 1). Algengur breytileiki í kransæðatrénu er að til stað- ar sé milligrein vinstri kransæðar (intermedius branch). Þegar hún var til staðar var hún einnig metin. Sú grein er þá staðsett á milli umfeðmings- kvíslar og framveggskvíslar vinstri kransæðar. Niðurstöður úr aflestri mynda voru skráðar í tölfræðiforritið Statistical Package for the Social Sciences (SPSS) 14.0 fyrir Windows stýrikerfi. Hjartalæknir og röntgenlæknir lásu úr mynd- unum hvor í sínu lagi og án innbyrðis samráðs milli greiningaraðferða. Þrengsli í hverjum æða- hluta voru metin sjónrænt sem hlutfall þvermáls æðarhols. Þrenging í hverjum æðahluta fyrir sig var skráð með sex stiga flokkun á eftirfarandi hátt: 1. Eðlilegt 2. <30% þrenging 3. 30-49% þrenging 4. 50-69% þrenging 5. >70% þrenging 6. Lokun Þrengslin voru einnig flokkuð eftir því hvort um marktæk þrengsli (>50% þrenging) væri að ræða eða ekki. Upphaflega var endurþræðingin framkvæmd til að meta endurþrengsli í stoðnetum og TS-rannsókn framkvæmd til að meta gagnsemi TS til greiningar endurþrengsla í stoðnetum. Því voru myndirnar í einstaka tilfellum ekki teknar með tilliti til beggja æða og voru þeir æðahlutar sem ekki var unnt að meta vegna þessa útilokaðir sjálfkrafa úr rannsókninni. Þeir æðahlutar sem höfðu stoðnet eða ef myndgæði einhverra æða- hluta voru ekki nægjanlega góð á TS voru þeir æðahlutar einnig útilokaðir við mat á greining- arhæfni TS-tækninnar. Sérstaklega var tekið fram hver orsökin var fyrir útilokuninni, það er stoðnet, of mikið kalk, hreyfitruflanir eða of lítill æðahluti (<1,5 mm í þvermál). Kyn sjúklinganna var skráð og aldur þeirra á endurþræðingardegi. Einnig var tími á milli rannsókna reiknaður. Hjartsláttartíðni við sneiðmyndatöku var skráð. Lýsandi tölfræði var beitt við úrvinnslu á nið- urstöðunum. Við samanburð á úrlestri TS og hjartaþræðingarmyndanna með tilliti til mark- tækra þrenginga voru notaðar venslatöflur (cross- tabs). Út frá þeim voru næmi, sértæki, jákvætt LÆKNAblaðið 2008/94 201

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.