Læknablaðið - 15.03.2008, Page 47
U M R Æ Ð U R
0 G
F í H
F R É T T I R
3 0 Á R A
Sérfræðinenmr í heimilislækningum bera saman bækur sínar í Heilsugæslustöðinni i Efstaleiti.
þeirra sem koma að námi og kennslu.
Þá hefur sannarlega skapast visst tómarúm í
læknisstörfunum hér heima þegar heilu árgang-
arnir hverfa af landi brott í nokkur ár. Starfsnám
hér heima lengir starfsævi læknisins hér á landi
og leiðir til spamaðar fyrir þjóðina þegar til lengri
tíma er litið.
Svo má ekki gleyma því að sumir læknar eiga
þess ekki kost að fara erlendis, svo sem af fjöl-
skylduástæðum. Þess vegna er það afar dýrmætt
að hafa þann valkost að geta tekið námið hér á
landi. Þeir sem velja þennan kost verða þá að fá
sambærilega menntun eða jafnvel betri en ger-
ist erlendis. Af þessum ástæðum höfum við lagt
af stað með metnaðarfullt prógram í sérnámi í
heimilislækningum hér á landi og dregið að metn-
aðarfulla unglækna og hver og einn unglæknir
sem byrjar í náminu dregur að aðra. Nú eru um
27 unglæknar að bíða eftir sémámsstöðu í heim-
ilislækningum og veitir ekki af því við þurfum
að vinna upp mörg mögur ár og einnig munu svo
margir hætta á næstu árum vegna aldurs."
Verðum að vita hvar við erum
til að vita hvert við ætlum
Geturðu lýst því um livað heimilislækningar snúast?
„Það er erfitt að svara þessari spurningu með
fáum orðum en í stuttu máli em heimilislækn-
ingar fjölbreytt svið innan læknisfræðinnar þar
sem læknisfræðileg þekking og færni, samkennd,
reynsla og mannúð er nauðsynleg til að sjúklingur
fái sem besta umönnun og læknirinn fullnægju í
starfi.
Sérstaða heimilislækninga er einkum
fólgin í samfelldri þjónustu læknis við ein-
staklinga og fjölskyldur. Þekking á samspili
milli einstaklinga innan fjölskyldunnar og
samfélagsins í heild er mikilvæg og ekki
síður heildræn nálgun heimilislæknisins
á hverju því vandamáli sem sjúklingur
ber á borð fyrir hann þannig að litið er
til bæði líkamlegra, andlegra og félags-
legra þátta."
Hvernig er sérnámið hyggt upp?
„Það tekur fjögur og hálft til fimm ár
að sérmennta sig til heimilislækninga.
Tímanum er skipt niður þannig að það
eru tvö ár í starfsnámi á heilsugæslustöð
og tvö og hálft ár á spítala. Við erum
að reyna að fá þessu breytt og auka
tímann í heilsugæslunni í tvö og hálft ár og
minnka tímann á spítölunum í tvö ár en leggja
mun meiri áherslu á að hver sémámslæknir
fari í gegnum okkar vandaða prógram, hafi
lærimeistara eða mentor allan tímann, stand-
ist gæðakröfur og viss próf. Aðalatriðið er
þó að námið er byggt á marklýsingu fyrir
sémám í heimilislækningum sem nýlega er
komin út. Formleg kennsla fer fram bæði á
spítölum og í heilsugæslunni en ekki má gleyma
að þetta er starfsnám og það er ekki verið að
kenna læknisfræðina upp á nýtt heldur nálgun
heimilislækna á kvörtunum sjúklinga.
Við leggjum áherslu á að frammistaða, þekk-
ing, viðhorf og fæmi læknis í sémámi séu metin
reglulega. Mikið er lagt upp úr því að vita hvar
styrkleikar hans og veikleikar liggja til að geta
fJSr**** /
Kninaum /
9M| I
SsssS
Síaða//
*?5B8£“ /
3
Tílraun
Kápumyndir bókanna þriggja
sem FÍH gafút nýverið í tilefni
afmælis félagsins: Marklýsing
fyrir sérnám í heimilislækn-
ingum, Hugmyndafræði
heimilislækninga eftir Ólaf
Mixa og Starfsemi og starfs-
aðstaða heimilislækna - Staðall.
Bækurnar eru saman í öskju,
einkar smekklegar, hönnuður
þeirra er Árni Pétursson.
LÆKNAblaðið 2008/94 223