Læknablaðið - 15.03.2008, Side 67
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
MINNINGARORÐ
í legi, svo sem legbolskrabbameini til þess að meta
dýpt íferðar inn í legvöðvann. Það sama átti við
um leghálskrabbamein og rannsóknir á fylgju-
staðsetningu. Brian varrn að þessum rannsóknum
í samstarfi við Sir Peter Mansfield, sem ásamt Paul
Lauterbur fékk Nóbelsverðlaunin 2003 fyrir að
finna segulómun klínískt notagildi í læknisfræði.
Brian hélt áfram rannsóknum eftir að hann
hætti störfum fyrir rúmum tveimur árum og vann
allt fram undir sína hinstu daga. Hann þróaði og
skipulagði myndgreiningarþjónustuna í heima-
borg sinni Nottingham og hafði mikil áhrif innan
Bretlands og víðar í tengslum við slíkt skipulag.
Hann sinnti jafnframt kennslu og var kallaður
til ráðuneytis innan- og utanlands, þar á meðal á
íslandi. Samtals átti Brian einn og með öðrum þátt
í um 400 vísindagreinum, bókum og bókarköflum
og hélt yfir 300 fyrirlestra í heimalandi sínu og al-
þjóðlega, m.a. á föstudagsfundi Landspítalans fyrir
um 15 árum. Hann var gerður heiðursfélagi í FÍR
árið 1986. Hann var heiðursfélagi í Félagi finnskra
röntgenlækna. Brian var gerður að „Fellow of the
Royal Society" sem er sjaldgæfur heiður. Hann var
þar í hópi með nöfnum eins og Sir Isaac Newton
og Albert Einstein og fyrsti röntgenlæknirinn til
að hljóta þessa viðurkenningu. Hann hlaut gull-
pening Royal College of Radiologists (RCR) og
Intemational Society for Magnetic Resonance in
Medicine (ISMRM) fyrir störf sín. Árið 2004 var
hann gerður heiðursfélagi hjá Radiological Society
of North America (RSNA) í Bandaríkjunum.
Margar fleiri viðurkenningar hlaut hann fyrir
vísinda- og fræðslustörf sín í myndgreiningu frá
mörgum stofnunum og félagasamtökum.
Brian náði allgóðum tökum á íslensku miðað
við það að hann hafði lítil tækifæri nema í stuttum
árlegum íslandsheimsóknum til að æfa sig. Hann
sagði þá sögu að hann fór eitt sinn í bókabúð Máls
og Menningar og bað um bamabækur til að æfa
sig í íslenskunni og var spurður að því hvað bam-
ið væri gamalt. Svarið á íslensku var: „Barnið er 52
ára." Hann las síðan á kvöldin Litlu gulu hænuna
fyrir Margaret konu sfna og hún tók þessu ein-
kennilega áhugamáli hans býsna vel. í jakkabarmi
bar hann gjaman merki með fánum íslands og
Bretlands.
Þegar briskirtilskrabbamein greindist hjá Brian
árið 2006 var hann nýkominn úr góðri ferð til
Ástralíu stuttu eftir að hann lét af störfum. Síðasta
ferð hans til íslands var vorið 2006. Hann náði
þokkalegum bata fram á sl. haust og hann átti sér
þann draum að komast aftur til íslands. Heilsan
leyfði það ekki. Hann andaðist heima í faðmi fjöl-
skyldu sinnar.
Vinir hans á íslandi og félagar í Félagi íslenskra
röntgenlækna minnast hans með þökk og virð-
ingu.
Ásmundur Brekkan
Öm Smári Amaldsson
Reynir Tómas Geirsson
Ólafur Eyjólfsson
Halldór Benediktsson,
formaður FÍR
Félag íslenskra gigtlækna
Vísindastyrkir
Vísindasjóður félags íslenskra gigtlækna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Heimilt er að úthluta
allt að þremur rannsóknastyrkjum úr sjóðnum. Auk þess verður úthlutað til rannsókna fjármunum sem
Scandinavian Journal of Rheumatology hefur gefið til rannsókna á gigtsjúkdómum á íslandi. - Umsóknarfrestur
er til 25. mars 2008.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Helga Jónssyni formanni sjóðsins, Landspítala Fossvogi, í
síma 543 6465, helgijon@landspitali.is
LÆKNAblaðið 2008/94 243