Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2008, Side 90

Læknablaðið - 15.03.2008, Side 90
|hugleiðing höfundar |af sársauka og hugarvíli Af sársauka og hugarvíli éÆ Eitt af því sem höfundar veigra sér mest við að skrifa um eru vísindi. Þar er Michel Houellebecq, höfundur Öreindanna, kannski mest áberandi und- antekningin en hann er líka landbúnaðarfræðing- ur og því með meira sjálfstraust og eðlilega fimari á svelli vísindanna en við hin. Sci-fi höfundar teljast ekki með, enda eru þeirra vísindi eins konar fantasíuvísindi sem hvorki er hægt að sanna né afsanna. Flestir höfundar fagurbókmennta eiga það sam- eiginlegt að vera hálf talnablindir - áhugasamari um mannlegar tilfinningar, goðsagnir og hug- myndir sem dregnar eru grófum dráttum en miskunnarlausa nákvæmni raunvísindanna. Þar er ég engin undantekning, þótt annað hafi verið uppi á teningunum á mínum yngri árum þegar ég var með þeim hæstu í mínum árgangi í samræmdu stærðfræðiprófi og var í kjölfarið send í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna. En eins og ég ýjaði að hér á undan virðist eitthvert dularfullt, öfugsnúið samband vera milli bókmennta annars vegar og stærðfræði og raungreina hins vegar, því eftir því sem heimur bók- menntanna opnaðist mér betur lokaðist staðreyndaheimurinn að sama skapi þar til ekki var eftir nema svolítil glufa sem ég rétt slapp gegnum á síðasta misseri mínu í menntaskóla, skíthrædd við að falla Guðrún Eva Mínervudóttir Guðrún Eva Mínervudóttir fæddist í Reykjavík 1976. Fyrsta bók hennar kom út árið 1998 og síðan hefur hún sent frá sér smásagnasafnið Á meðan I hann horfir á þig ertu Maria mey, sem vakti mikla athygli, skáldsögurnar Ljúlí Ijúlí (1999), Fyrirlestur um hamingjuna (2000, tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna), Albúm (2002) og Sagan af sjóreknu píanóunum (2002). Nýjasta skáldsaga Guðrúnar Evu Yosoy: Af sársauka og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss sem kom út árið 2005 er nýútgefin í ítalskri þýðingu og væntanleg í Danmörku. bæði í stærðfræði og eðlisfræði. Að loknum þessum inngangi er skemmtilega ævintýralegt að segja frá því að ég skuli hafa ráðist í einmitt þetta með síðustu skáldsögu minni: Að skrifa um vísindi, nánar tiltekið sársauka og það hvemig hann birtist í líkamanum og í huganum. Það var ef til vill meira af fífldirfsku en hugrekki, enda sést maður ekki alltaf fyrir í því sem maður tekur sér fyrir hendur. Engin skáldsaga yrði nokkru sinni skrifuð ef höfundar tækju upp á því að leggja niður fyrir sér allt streðið framundan áður en þeir hæfu verkið. Þegar ég ákvað að aðalpersónan, Ólafur Benediktsson, skyldi vera taugalífeðlisfræðingur og sérfræðingur í sársauka vissi ég að ekki yrði hjá því komist að kynna sér fræðin til að geta komist inn í hugarheim hans. En ég forðaðist að sjá fyrir mér hvað það nákvæmlega fæli í sér: Eilíft hangs á internetinu. Þrjá hillumetra af bókum um ýmis efm - til að mynda hið eilífa vandamál heimspekinnar um það hvernig hugurinn tengist líkamanum og er oftast nefnt „mind-body problem", stærðfræði sem kennd er við „fussy logic" og svo auðvitað um sjálft sársaukaskynið. Auk þess sem ég þurfti að temja mér nýja tegund samskiptatækni sem fólst í að spyrja glæsta fulltrúa vísindanna réttu spuminganna og mjólka úr þeim vitneskjuna a sæmilega tæm mannamáli. Það var einkum tvennt sem gerði að verkum að ég treysti mér svo langt að heiman, í vitsmunaleg' um skilningi. Annars vegar kom þar til kunnings- skapur minn við doktor Jóhann Axelsson sem er sennilega manna fróðastur á Islandi um þetta fýr' irbæri, sársaukann. Því þótt við ynnum ekki náið saman á meðan á sjálfum bókarskrifunum stóð var það mér eins og fínasti göngustafur að vita til þess að bókin færi ekki í prentun án blessunar sársaukapáfans. Og hins vegar var það bók sem ég rakst á fyrir tilviljun eftir geðþekkan snilling að nafni Patrick Wall og nefnist „Pain: The Science of Suffering". Bók Walls var biblían sem ég ríghélt mér í gegn' um 400 síður af skáldskap um sársaukann í öllum sínum myndum og víkur ekki langt frá mér enn þann dag í dag - útkrotuð með asnaeyru og gu'n' aðar síður af legu í gluggakistum. Eftir þessa reynslu hef ég hallast æ meir að þvl að skáldsagnagerð sé ekki einstaklingsíþrótt sem fram fer í fílabeinsturnum heldur hópíþrótt, alveg eins og hin göfugu vísindi, sama þótt þörf okkar fyrir glamúr krefjist þess að einn höfundur/vlS' indamaður hjóti allan heiðurinn fyrir verkið/upp' götvunina. Vísindin eru okkur höfundum síðan endalaus uppspretta hugmynda og vonandi að skáldskap' urinn geti orðið vísindamönnum innblástur n| að fara ótroðnar slóðir. Eins og doktor Jóhanm Axelssyni varð að orði þegar ég setti skömmustu lega fyrirvara við ímyndunarafl mitt og bað hanu að muna að hér væri um skáldskap að ræða. Ham1 leit ábúðarfullur upp úr handritinu og sagði: Það er rétt að sumt sem þú lýsir er ekki hægt, í þellTI skilningi að við kunnum það ekki. En við verðum að geta hugsað það. 266 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.