Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Síða 45
Ungfrúna góðu eða hiísið...
reglu, skipulagi, úrvali, forgangsröðun. Það sem kemst á lista er mikil-
vægt - þó ekki sé fyrir annað en að hafa komist á listann og verða þar
með hluti af úrvali og forgangsröðun. I Ungfrúnni góðu og húsinu eru
listar yfir útsaumsaðferðimar sem ungfrúin kann, listi yfir hvert klæðis-
plagg, öll hnjáskjólin og klukkurnar, sem hún tekur með sér til Kaup-
mannahafiiar auk bóka og skrautmuna. Listagerðin nær þó hámarki
þegar kemur að undirbúningi brúðkaupsins og gerður er listi yfir boðs-
gesti, kökur sem bakaðar em, hreingerningu hússins herbergi úr her-
bergi, matargerð og vínkaup. Upptalningarnar gera stíllinn hraðan og
ákafan, lýst er bakandi og eldandi hreingerningaher og þessi lesandi sér
fyrir sér hópinn á harðahlaupum eins og í þögulh, svart-hvítri mynd
með honky-tonk píanóundirleik, eins og hjá Buster Keaton eða
Chaplin. Farsaeinkennin víkja í síðari hluta sögunnar og upptalningar
eða hstar sömuleiðis. Háðsádeilan er þó enn í fyrirrúmi en undirtónn-
inn verður æ þyngri eftir því sem Húsið krefst fleiri og stærri fórna.
Háðið í lok sögunnar, þegar systumar fallast í faðma yfir lfld barnsins,
er orðið býsna nístandi, þær kyssast og svo segir: „Lík Katrínar litlu
Hansdóttur stóð að veði fyrir frændsemi þeirra.“(96) Þessa setningu má
túlka á marga vegu.
Að mínu viti er Ungfrúin góða og hiisið írónískur texti frá upphafi til
enda. Sagan verður aldrei tragísk af því að hina tragísku hetju vantar.
Persónusköpun
Systumar Þuríður og Rannveig era mikilvægustu persónurnar í sögu
Halldórs Laxness og þær em afar ólíkar. Þuríður er jarphærð, falleg,
skapmikil og stjómar öllu í kringum sig með harðri hendi. Hún er ger-
andinn í sögurmi og hinn raunverulegi húsbóndi bæði á sínu heimili og
foreldranna.
Rannveig er hávaxin, ljóshærð og fremur þéttvaxin. Hún er ekki fal-
leg eins og Þuríður en ákaflega góð kona sem ekkert aurnt má sjá enda
elska hana allir í þorpinu. Hún hefur aldrei farið að heiman og það er
ekki hægt að telja hana á að yfirgefa þorpið, fara suður eða utan til að
forírama sig. Hún hefur engan áhuga á karlmönnum og gefur aldrei
undir fótinn þeim vonbiðlum sem prófasturinn er að bjóða heim í von
um að koma henni út. Þetta er löngu orðið pínlegt fyrir alla aðila því að
Rannveig er orðin þrítug í upphafi sögu. Þá loks lætur hún undan
43