Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Side 121
Frá skáldsögu til kvikmyndar
myndu þeir kaupa réttinn að dýrri bók en reiða fram frtunlegt efni“.18
Flestir kvikmyndagerðarmenn láta þó í ljósi mun háleitari sjónarmið en
þessi. DeWitt Bodeen sem var meðhöfundur handritsins að Billy Budd
(1962) eftír Peter Ustinov fullyrðir: „Það leikur enginn vafi á því að
kvikmyndaleg aðlögun bókmenntaverks er skapandi verkefni sem krefst
ákveðins vals og túlkunar en einnig getu til að endurskapa og viðhalda
þegar tilbúinni stemmningu“.19 Samkvæmt þessu á sá sem aðlagar að líta
svo á að hann hafi svarið upprunalega verkinu hollustueið. Kvikmyndun
Peters Bogdanovich á Daisy Miller eftír Henry James er fyrst og fremst
samviskusamleg sjómæn útfærsla á frumverkinu, hvað sem líður afaeit-
un hans á skáldsögunni („Mér finnst þetta ekkert merkileg eða klassísk
saga. Eg lít ekki á hana með slíkri virðingu“20). Kvikmyndagerðarmenn
virðast yfirleitt hvorki nálgast efnivið sinn af áræðni né lýsa yfir hreinni
gróðahvöt.
Hvað sem líður kvörtunum áhorfenda yfir einni eða annarri afbökun
ffumverksins halda þeir áfrarn að forvitnast um hvernig bókin „lítur út“.
Þeir skapa stöðugt sína eigin innri mynd af heimi skáldsögunnar og fólki
hennar og fýsir mjög að bera eigin myndir saman við þær sem kvik-
myndagerðamaðurinn hefar búið til. En eins og Christian Metz hefar
bent á finnur áhorfandinn „ekki alltaf sína kvikmynd því það sem við
honum blasir í hinni raunverulegu kvikmynd er hugarfóstur einhvers
annars11.21 Þrátt fyrir að óvíst sé um svölun eða að hljóð-sjónrænu mynd-
irnar falh að hugarmyndum „lesenda/áhorfenda“, halda þeir áffam að
flykkjast á „hugarfóstur einhverra annarra“. Þeirrar undarlegu tilfinn-
ingar gætir einnig að frásögn í orðum af fólki, stöðum og hugmyndum
sem er aðalaðdráttarafl skáldsögunnar sé aðeins einn möguleiki af mörg-
18 Frederic Raphael, „Introduction“, Einn tvöfaldnr [Twofor the Road], Jonathan Cape:
London, 1967.
19 DeWitt Bodeen, Wðlögunarhstin“ [The Adapting Art], Films in Review, 14/6,
June-July 1963, s. 349.
20 Jan Dawson, ,JVIegiidandsgjáin: Sögur Henrys James kvikmyndaðar" [The Contin-
ental Divide: Filming Henryjames], Sight and Sound, 43/1, Winter 1973-1974, s.
14; endurpr. að hluta sem „Viðtal við Peter Bogdanovich" [An Interview with Pet-
er Bogdanovich] í G. Peary og R. Shatzkin (ritstj.), KJassíska bandaríska skáldsagan og
kvikmyndimar [The Classic American Novel and the Movies], Frederick Ungar Publis-
hing: New York, 1977.
21 Christian Metz, Imyndaða táknmyndin [The Imaginary Signifier], Indiana University
Press: Bloomington, 1977, s. 12. [Þýð.: Upphafl. titill: Le signifiant imaginaire. Þessi
hluti bókar Metz kemur út í íslenskri þýðingu Torfa H. Tuliniusar 2002.]