Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Page 156
Einar Kárason
jöxlum úr kampinum. Þama niður frá verslaði maður mikið í sannkall-
aðri kamparabúð, sem hét víst Eyjabúð en var alltaf kölluð Jónsbúð eft-
ir litríkum kaupmanninum, tdð hliðina á henni var kaffihús kampsins,
Maddakaffi, - þarna var kattakelling sem varð mér mjög hugstæð og
þanmg mætti lengi telja. Þegar f\trst hvarflaði að mér að skrifa sögu sem
gerðist á svona stað fannst mér það afar spennandi, vægast sagt, og bless-
unarlega fjnir mig held ég að það hafi bóklesandi Islendingum h'ka fund-
ist spennandi lesefni.
Heldurþú að sögumarþínar um braggabúana ogsvo kvikmynd Friðriks Þórs
hafi breytt afstöðu Islendinga til braggalífsins?
Ætli hinn sístritandi tími hafa ekki átt þar mestan þátt? Ég vil nú helst
ekki vera að taka af honum þann heiður.
Nú er tökum að Ijúka á nýjustu kvikmynd Friðriks Þórs, Fálkar, en hún er
gerð eftir handriti eftirþig. Geturðu upplýst okkur um söguþráðinn?
Ég hef orðið var við það að leikstjórinn Friðrik, eða kannski er það fram-
leiðandinn, sem er nota bene sami maður - hann hefur rótgróna tor-
tryggni í garð þess að upplýst sé mikið um innihald kvikmynda áður en
þær eru frumsýndar, og ég verð að virða það. Ég treysti mér þó til að
segja að þarna er dálítið karakterstúdía á ferðinni, það eru hálfamerísk-
M4