Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 18

Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 18
18 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Í stuttu máli 100 milljÓnir söfnuðust L angflest barnanna búa heima hjá fölskyldum sínum og þurfa umönnun allan sólar­ hring inn. Heimili þeirra eru undirlögð af tækjum og tól um og því má segja að á Íslandi séu rekin mörg hátæknisjúkrahús, flest á höfuðborgarsvæðinu. Söfnunin fór fram með frjálsum fram ­ lögum í gegnum söfnunarþátt á Rás 2 og RÚV sem og sölu á varaglossi frá Dior sem heildverslun Halldórs Jónssonar flytur inn. Yfir fimmtán þúsund glossar seldust á hálfum mánuði en meðalsala er um 200 á mánuði. Þetta er í fimmta sinn á jafnmörgum árum sem þær stöllur Elísabet Sveins ­ dótt ir, Gróa Ásgeirsdóttir og Guðný Páls ­ dóttir standa fyrir söfnun af þessu tagi. Þrjár konur úr Kópavogi, eins og þær hafa stundum nefnt það, sem gerðu þessi mál efni að áhugamáli sínu. Yfir 200 manns lögðu hönd á plóginn og gerðu hugmyndina að veruleika. „Við erum óendanlega þakklátar fyrir stuðning þjóðarinnar,“ segir Elísa bet. „Með góðum undirtektum þjóðarinnar hefur tekist að tryggja stuðnings miðstöð ­ inni fjögur rekstrarár.“ Landsbankinn, Vistor, Medor, Fíton, True North, RÚV og síðast en ekki síst Halldór Jónsson voru helstu bakhjarlar söfnunarinnar. landssöfnunin Á allra vörum er gott dæmi um vel heppnaða söfnunarherferð þar sem allt gekk upp; góður málstaður, hugmynd, undirbúningur, framkvæmd og árangur. Þegar upp var staðið söfnuðust um 100 milljónir króna til stuðningsmiðstöðvar fyrir langveik börn með sjaldgæfa, alvarlega og jafn­ vel ólæknandi sjúkdóma. landSSÖfnunin á allRa vÖRum: Landssöfnunin fór m.a. fram í kvölddagskrá á RÚV föstudagskvöldið 14. desember. Hér er rætt við Dorrit Moussaieff forsetafrú. Gróa Ásgeirsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir og Guðný Pálsdóttir með íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem kom við sögu í söfnuninni. Með forráðamönnum Dior. Fimmtán þúsund glossar seldust á hálfum mánuði. Frá vinstri: Parisa Shave, markaðsstjóri Dior á Norðurlöndum, Guðný Pálsdótt­ ir, Elísabet Sveinsdóttir, Ásgeir Sveinsson, frkvstj. Halldórs Jónssonar ehf., Gróa Ásgeirsdóttir, Stephane Previdi, framkvæmdastjóri Dior á Norðurlöndum, og Helena Finnbogadóttir, vörumerkjastjóri Dior á Íslandi. Meinleg mistök urðu í árlegri og viðamikilli könnun Frjálsrar verslunar um fjölda kvenna í stjórn­ um og framkvæmda­ stjórnum stærstu fyrir tækja landsins og birtist í blaðinu um 100 áhrifamestu konur landsins. Í töflu með greininni voru rangar upplýs­ ingar. Engar konur voru sagðar í stjórn VÍS. Reyndin er sú að 2 af 5 stjórnarmönn­ um eru konur, þær Guðrún Þorgeirsdóttir og Helga Jónsdóttir. Sama villan var upp á teningnum varðandi konur í framkvæmda­ stjórn félagsins. Hið rétta er að 2 af 6 fram­ kvæmdastjórum VÍS eru konur, þær Auður Björk Guðmundsdóttir og Anna Rós Ívars­ dóttir. Forstjóri VÍS er Sig­ rún Ragna Ólafsdóttir. Framkvæmdastjórn VÍS er því skipuð 7 manns, þar af 3 kon um að Sigrúnu með talinni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. lEiðrÉttinG vEGna vÍs kvennablaðið: Helga Jónsdóttir. Anna Rós Ívarsdóttir. Auður Björk Guðmundsdóttir. Sigrún Ragnar Ólafsdóttir. Guðrún Þorgeirsdóttir.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.