Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 21
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 21
Í stuttu máli
d ú k k u l Í s u r n a r h a G n a s t
skattar hækka um
22,5 milljarða
Inga María Guðmundsdótt ir, bókasafnsfræðingur á Ísafirði og eini eig
andi og starfsmaður Dress
up games ehf. sem rekur
Dúkku lísuvefinn Dressup
games.com, gerir það gott.
Fyrir tækið hagnaðist um
48,8 milljónir króna á síðasta
ári borið saman við um 88
milljóna króna hagnað árið
áður. Eigið fé félagsins nam
192 milljónum í lok síðasta
árs. Samkvæmt Við skipta
blað inu hefur félagið greitt
163 milljónir króna í arð til
eiganda síns á undanförnum
árum. Dressupgames.com
er vinsæl vefsíða hjá ungum
enskumælandi stúlkum sem
gerir þeim kleift að finna leiki
á vefnum sem ganga út á að
klæða dúkkulísur í föt. Vef
síðan fær milljónir innlita á
hverjum mánuði.
Tekjur félagsins eru í formi
aug lýsinga og eru tekjur frá
Google umfangsmestar.
Gert er ráð fyrir 2,7% hagvexti á árinu 2013.
Miðað er við að verðbólga á árinu verði 3,9%.
Spáð er 5,3% atvinnuleysi árið 2013 og 6% í ár.
Frumvarpið gengur út frá því að viðskipta jöfnuður
verði neikvæður um 2,1% af vergri landsframleiðslu.
reiknað er með að kaupmáttur launa aukist
um 1,7% á árinu 2013.
Óli Björn Kárason.
forsEndur Í fjárlaGafrumvarpi
þEtta Er kosninGaplaGG
Óli BJÖRn:
Óli Björn nefnir fjár laga frum varpið „áróðursplagg í aðdrag anda kosninga“ og segir
að reynsla undanfarinna ára sýni
að taka verði töluna 2,8 millj arða
mjög varlega því reynsla undan
far inna ára sýni að reynt sé að
fegra hlutina í frumvarpinu.
Hann ber raunverulegan afkomu
ríkissjóðs samkvæmt ríkis reikn
ingi undanfarin ár saman við
fjár laga frumvörpin sem hafi verið
kynnt og lögð fram af bjartsýni.
FJÁRLaGaÁRIÐ 2010:
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2010
var kynnt haustið 2009 og var gert
ráð fyrir 87,4 milljarða halla.
Eftir að Alþingi hafði farið hönd
um um frumvarpið voru fjárlög
sam þykkt með 98,8 milljarða halla.
Raunveruleikinn: Halli sam
kvæmt ríkisreikningi 123,3 millj
arðar króna.
mismunur frá framlögðu fjár laga
frumvarpi: 35,9 milljarðar króna.
FJÁRLaGaÁRIÐ 2011
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2011
var kynnt haustið 2010 og var gert
ráð fyrir 37,3 milljörðum króna.
Raunveruleikinn: Halli samkvæmt
ríkisreikningi 89,4 milljarðar króna.
mismunur frá framlögðu fjár
laga frumvarpi: 52,1 milljarður
króna.
Munurinn á upphaflegum, fram
lögðum fjárlaga frumvörpum
þessara tveggja ára og útkomunni
sam kvæmt ríkis reikningi var 88,0
millj arðar króna í mínus.
Óli Björn segir að vanmatið sé
enn meira varðandi frumjöfnuð
þessi tvö ár, þ.e. mismun tekna
og útgjalda að frádregnum fjár
magns kostnaði. Á tveimur ár
um var frumjöfnuðurinn 101,7
millj örðum króna verri en fjárlög
sögðu til um eða nær 11% af raun
tekj um ársins.
Óli Björn segir ennfremur að
vit að sé um tugmilljarða útgjöld
á komandi ári en þeirra sé í engu
getið í frumvarpinu. „Einnig eru
vísbendingar um að tekjur séu
oftaldar, hvort heldur af þre földun
virðis aukaskatts á ferða þjónustuna
eða breytingu á vöru gjöldum. Þá
er ónefnt að með frum varpinu
ræðst ríkisstjórnin beint á forsendur
kjara samninga og með því er verið
að hleypa vinnu markaðinum í
uppnám. Vandi Íbúðalánasjóðs er
óleystur, lífeyris skuldbindingar
að aukast, fjár munum sóað, ekkert
tekið á vanda tuga stofn ana, skuldir
að hækka og skuldbindingar ríkis
ins faldar utan efnahags.“
Vilhjálmur Egils son, framkvæmda stjóri
Sam taka atvinnulífsins,
segir að auknar skatta
álögur, sam kvæmt fjár
lagafrumvarpi, sem nemi
22,5 millj örðum dragi
veru lega úr svigrúmi
fyrir tækja til að fjárfesta.
„Ef við ætlum okkur
að ná hagvextinum
upp þarf fjárfesting
að aukast. Umræddar
skatta hækkanir auka
því hættuna á að hag
vöxtur verði áfram lítill
og atvinnustigið óvið
unandi. Ein forsenda
kjarasamninga var að
fjárfesting færi í gang,“
segir Vilhjálmur.
Halldór Árnason,
hag fræðingur Samtaka
atvinnu lífsins, segir í
sömu frétt blaðsins: „Þetta
eru allt viðbótarskattar
sem draga úr svigrúmi
fyrirtækja til fjárfestinga.
Það er alveg ljóst að ef
22,5 milljarðar eru teknir
út úr atvinnulífinu á einu
ári með nýjum sköttum
slagar það hátt í þá
fjárhæð sem er áætluð í
tekju skatt af fyrirtækjum.
Það er gert ráð fyrir 35
milljörðum þar.“
Óli björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins,
skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið eftir að
oddný Harðardóttir fjármálaráðherra hafði kynnt nýtt fjár
lagafrumvarp sem hljóðar upp á að fjárlagahallinn verði
2,8 milljarðar árið 2013.