Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 24
24 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
þau hafa orðið
Jón Snorri Snorrason segir að árangur undanfarinna ára í ferðaþjónustu hafi verið virkilega góður og
rétt sé að benda á að aukinn
ferða mannastraumur skili sér í
skatttekjum af virðisaukaskatti og
öðrum veltusköttum sem séu á
neyslu erlendra ferðamanna og
aukinn starfsmannafjöldi í grein
inni skili sér jafnframt í auknum
skatttekjum og minna atvinnuleysi.
„Undanfarin ár hafa skatta
breyt ingar og hækkun gjalda
verið tilkynnt með nánast engum
fyrir vara, sem gerir alla áætlana
gerð erfiða og þar með rekstur
ferða þjónustunnar á Íslandi.
Þessi áform um aukna skatt
heimtu eru óviðunandi vinnu
brögð þar sem tímafrestur
er enginn, erfitt að aðlaga
verðskrár eftir á – og áætlana
gerð verður ómarkviss þar sem
flug og ferðaþjónusta byggist
mikið á fyrirframsölu. Allt þetta
hefur neikvæð áhrif samkeppn
isstöðu landsins.
Það á að stækka kökuna í stað
þess að kaffæra vaxtarsprotana
um leið og þeir myndast þar
sem aukið umfang hefur skilað
sér í auknum tekjum ríkissjóðs,
minna atvinnuleysi og verulegu
innflæði gjaldeyris.
Ef ferðaþjónustan á að verða
ein af grunnstoðum hagkerfisins
verður að gefa fyrirtækjum í grein
inni kleift að treysta rekstur sinn og
efnahag til lengri tíma.“
Það var flökt á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði í júní og júlí en hækkun frá júní til ágústloka er
þó viðunandi. Hlutabréf á Wall
Street lækkuðu um 10% í apríl
og maí en í byrjun júní tók við
hækkun til ágústloka um nálægt
10%.“
Sigurður B. Stefánsson segir
að bandarísk hlutabréf séu leið
andi á heimsmarkaði um þessar
mundir og hafi í ágústlok staðið
í líku verðgildi og í lok mars. Ein
ungis um 50% af lækkun í kaup
höllum í Evrópu og Asíu frá apríl
og maí vannst upp í ágúst lok.
„Veikleika í kauphöllum í Asíu
má ekki síst rekja til Shanghai í
Kína þar sem hlutabréf hafa farið
lækkandi frá byrjun ágúst 2009.
Lækkunarferillinn nær aftur til
haustsins 2010 í Hong Kong,
Japan og á Indlandi. Í síðar
nefndu löndunum mótar fyrir
aðeins betri árangri árið 2012 en
í Kína hefur verð á hlutabréfum
ekki verið lægra síðan í janúar
2009. Þessi mikli veikleiki þar
kann að endurspegla hægari
hag vöxt í Kína og ef til vill minni
vöxt næstu árin.
Þýskaland og Bretland eru
leið andi á hlutabréfamarkaðnum
í Evrópu. Lækkun í apríl og maí
var væg og vannst að mestu
til baka í ágústlok. Spánn og
Ítalía eru í veikari kantinum og
eiga hlutbréf erfitt uppdráttar í
Frakk landi.
Vikurnar í september og
októ ber eru oft erfiður tími á
hluta bréfamarkaði. Eftir þriggja
mánaða hækkunarlegg er best
að vera við öllu búinn, jafnvel
þótt dæmi séu um samfelldan
hækk unarlegg frá júní eða júlí og
fram á næsta ár.“
Þýskaland og Bretland leiðandi í Evrópu
Vandamál sem áskorun og
leiðir til úrbóta
Rekstur ferðaþjónustunnar
gerður erfiður
skoðun
sigurður b. sTEfánsson
– sjóðstjóri hjá Eignastýringu landsbankans
ingrid kuHlman
– framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar
ERLEND
HLUTABRÉF
HOLLRÁÐ Í
STJÓRNUN
Jón snorri snorrason
– lektor við viðskipta fræð i deild Háskóla Íslands
FYRIRTÆKIÐ OG
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
Ingrid Kuhlman segir mikilvægt að stjórnendur hugsi út fyrir kassann en festist ekki í gömlum viðhorfum t.d. með því að spyrja sig hverjar séu
ástæðurnar fyrir ákvörðunum, vanda mál
um, lausnum og staðreyndum og að þeir
setji spurningarmerki við hlutina.
„Það skiptir líka máli fyrir stjórnendur að
hafa trú á því að það sé hægt að leysa flest
vandamál og að vandamálin séu í raun
bara áskorun og leiðir til úrbóta. Þegar
hugs að er út fyrir rammann kvikna oft nýjar
og betri hugmyndir og lausnir.
Það þarf á skapandi hugsun að halda til að skjóta fleiri stoðum undir atvinnu lífið
og finna nýjar leiðir með langtímasjón ar
mið í huga. Það er alveg ljóst að eftir hrun
er nauðsynlegt að fara aðrar leiðir og er
kröfugt nýsköpunarstarf forsenda fram
fara. Það gagnast öllum að geta komið
með gagnlegar lausnir og hugmyndir við
ögrandi viðfangsefnum. Á mörgum vinnu
stöðum er verið að hagræða, innleiða nýja
sýn, endurskoða gildin, leggja áherslu
á sjálfbærni og í raun breyta því hvernig
hlutirnir hafa verið gerðir. Stjórnendur þurfa
hér að taka forystuna því að heimurinn er
alltaf að breytast og það er ekki hægt að
gera hlutina eins og áður heldur þarf að
finna nýjar leiðir til að vera betur í stakk
búinn til að takast á við framtíðina.“