Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 22
22 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
fyrst & frEmst
Já sér um útgáfu Símaskrár innar, rekstur 118 og rekstur vefsvæðisins
ja.is. Félagið var stofnað fyrir
sex árum undir stjórn Katrínar
Olgu Jóhannesdóttur sem
þá var framkvæmdastjóri hjá
Símanum.
Katrín Olga hefur verið stjórn ar
formaður félagsins frá stofnun
þess. Hún og Sigríður Margrét
Oddsdóttir, framkvæmdastjóri
Já, tóku þátt í kaupviðræðunum
sem leiddar voru af fyrirtækja
sviði Auðar Capital og Auði I,
fagfjárfestasjóði.
Viðskiptasamningurinn var
einn sá fyrsti eftir hrun þar sem
ekki var tekist á um fjárhagslega
endurskipulagningu heldur var
félagið talið traustur og góður
fjárfestingakostur.
Þrátt fyrir sex ára sögu Já
byggir félagið á yfir 100 ára
viðskiptasögu. Í fyrra var það í
22. sæti á topplista Creditinfo
yfir framúrskarandi fyrirtæki
auk þess sem vörumerki þess
mældist fimmta verðmætasta
merki landsins samkvæmt mæl
ingum Capacent Gallup.
Það var einstök stund þegar
gengið var frá fjármögnun kaup
anna í höfuðstöðvum Íslands
banka á Kirkjusandi. Ein göngu
konur sem komu að kaupsamn
ingnum og undirritun hans.
Þetta voru stjórnarformenn
beggja fyrirtækja, framkvæmda
stjórar, bankastjóri Íslandsbanka,
lögfræðingurinn og viðskipta
stjórinn. Það er ekki á hverjum
degi sem það gerist. Ánægju
leg stund.
Eingöngu konur sem
komu að samningnum
Þegar Skipti hf. seldu fyrirtækið Já undir lok síðasta árs
var það merkur samningur að einu leyti; eingöngu konur
komu að samningsgerðinni og undirrituninni.
Ein göngu konur
sem komu að kaup
samningnum og
undirritun hans.
Kaupin á Já:
Við undirritun kaupanna á Já. Fremri röð: Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, viðskiptastjóri Íslandsbanka, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Katrín Olga
Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já og Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri fagfjárfestingasjóða Auðar Captital og sjóðsstjóri Auðar I. Efri röð: Sigríður Margrét Odds-
dóttir, forstjóri Já, Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital og Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital.
Hvað fær
hún að
launum?
www.pwc.com/is
Samkvæmt jafnréttislögum ber að greiða körlum og
konum jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf.
Jafnlaunaúttekt PwC gefur upplýsingar um
raunverulegan launamun kynjanna hjá þínu fyrirtæki.
Jafnlaunaúttekt PwC
PwC á Íslandi er framsækið og taust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og
er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem skilgreinir sig sem þekkingarfyrirtæki sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur
sinn.
Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf PwC | Skógarhlíð 12 | 112 Reykjavík | S. 550 5300
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
5
52
84
9
06
/1
1 HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
TVÍBURINN
ÞÚ ERT AÐ FARA TIL ÚTLANDA OG ÞAÐ ERU 150 STUNDIR
AF AFÞREYINGU UM BORÐ Í FLUGVÉL ICELANDAIR.
NJÓTTU ÞESS.