Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 102
102 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
jafnréttisstEfna fyrirtækja
K
ynjamismunur (e.
gender difference)
sem áhrifaþátt ur á
stjórnun og sam
skipti í fyrir tækj um
hefur notið vaxandi at hygli á
síðustu árum og víða er fjall að
um þessi áhrif í nýleg um bókum
og greinum á þessu sviði.
Þessi aukna athygli tengist
ekki síst umræðu um mikil
vægi og áhrif fjölbreytileika í
sam setningu stjórnenda og
starfs mannahópsins en margir
eru þeirrar skoðunar að ólíkir
ein stakl ingar sem starfa saman
í hópi séu líklegri til að ná meiri
árangri en of einsleitur hópur.
Já kvæð áhrif fjölbreytileikans
birtast meðal annars í fleiri og
fjöl breyttari hugmyndum, meiri
skoðanaskiptum og umræðu
sem ýtir undir gagnrýna hugs
un, þróun og nýsköpun. Þess
vegna er mikilvægt að huga
meðal annars að kynjahlutföll
um, aldursdreifingu, ólíkum
bakgrunni, menntun og reynslu
þegar valið er í hópinn.
Kynjakvótar og jafnrétti
Í umræðum um jafnréttismál
tak ast gjarnan á sjónarmið um
hvort kynjahlutföll eða kvótar
eigi að ráða vali á einstakling
um til að sinna stjórnunarstörf
um eða hvort horfa eigi fyrst og
fremst til hæfni einstaklinganna,
óháð kyni. Spurningin snýst þá
gjarnan um það hvort einung
is á að bera umsækjendur
saman við aðra umsækjendur
þegar leitað er að hæfasta
einstaklingn um og tilhneiging
er þá að bera saman magn
mennt unar og reynslu. Eða á að
horfa á málið í víðara samhengi
og meta hverju hæfni viðkom
andi bætir við þá hæfni, þekk
ingu og reynslu sem fyrir er á
vinnustaðnum eða í verkefninu.
Nauðsynlegt getur verið að horfa
út fyrir menntun og reynslu til að
tryggja æskilegan fjölbreyti leika
og há marksstarfshæfni hópsins.
Munurinn á körlum og konum
Talað er um að karllæg gildi
hafi hingað til ráðið ferðinni í
við skiptaumhverfinu og verið
ríkj andi á vinnustöðum. Þau eru
almennt sögð einkennast af
ákveðni og samkeppni en kven
leg gildi einkennast af hógværð
og umhyggjusemi. Þótt alls ekki
hafi allar konur eða allir karlar
sama stíl hefur verið sýnt fram
á að meirihluti kvenna og meiri
hluti karla er með sam skonar
einkenni í stjórnunar og sam
skiptastíl. Þetta er rakið að hluta
til líffræðilegra þátta en einnig
til félagslegra og sálfræðilegra
áhrifa svo sem uppruna, menn
ingar og uppeldis. Ekki verður
heldur litið fram hjá því að eins
og konur hafa tileinkað sér
einkenni úr stjórnunarstíl karla
gegnum tíðina hafa margir karl
ar einnig tileinkað sér eiginleika
sem flokkaðir hafa verið sem
kven legur stjórnunarstíll.
Ýmsir halda því fram að sú
sam félagslega þróun sem
hefur átt sér stað síðustu ára
tugi sé konum og kvenlegum
eiginleikum í stjórnun hagstæð.
Leiðtogahæfni á sviði starfs
hvatn ingar, við uppbyggingu
liðsheildar og við lausn ágrein
ings sé konum eðlislæg og
geti verið mjög árangursrík,
ekki síður en eiginleikar karla í
viðskiptaumhverfi 21. aldarinn
ar, og skapað fyrirtækjum
samkeppnisforskot.
Það er því ótvíræður ávinning
ur að því að nýta meðvitað styrk
leika beggja kynja við stjórn un
og í samskiptum. Því er ástæða
fyrir bæði karla og konur að
hugleiða styrkleika sína og
veikleika og taka sinn stíl til
endurskoðun ar. Með því að
vera meðvitaðir um kynjamun
inn geta stjórnendur betur nýtt
hæfi leika beggja kynja og aukið
árangur.
Einkenni kvenna
Algeng einkenni á stjórnunarstíl
kvenna eru að leggja áherslu
á samhug, tengsl og þátttöku
með því að finna samsvörun
með öðrum og deila reynslu.
Þær trufla samtöl minna en
karlar gera og leggja sig
fram við að halda samtölum
gang andi. Þær vilja líta á sam
starfsfólk sem jafningja og taka
ákvarðanir byggðar á sam
eig inlegum niðurstöðum og fá
samþykki alls samstarfsfólks
ins fremur en að beita valdi.
Þær tjá sig frekar í smærri
hóp um þar sem tækifæri er til
að eiga samræður. Konur eiga
auðveldara með að opinbera og
segja frá veikleikum sínum og
vandamálum. Þær leggja meiri
áherslu á smáatriði og til finningar
en karlar og eiga erfi ðara með að
halda per s ónu legum og viðskipta
legum sam ræðum aðskildum.
Þær eiga auð veldara með að
biðja um að stoð, sýna samúð
Ólíkur stjórnunarstíll kvenna og karla
Er kvenlegur stjórnunarstíll veikleikamerki? Þurfa konur að tileinka sér karlmannlegan stjórnunarstíl ef þær vilja ná árangri
og komast til metorða í viðskiptalífinu? Lengi vel hefur verið litið svo á. Síðustu ár hefur mátt merkja viðhorfsbreyt ingu og
tugir nýlegra rannsókna á sviði stjórnunar styðja það að fjölmargir kvenlegir eiginleikar í stjórnun eru lykilárangursþættir.
Kvenlegir eiginleikar eru því ekki síður mikilvægir til að ná árangri en þeir karlmannlegu.
TexTi: Sigrún ÞorleifSdÓTTir mynd: geir ÓlAfSSon o.fl.
Sigrún Þorleifsdóttir, stjórn enda
þjálfari og einn eigenda Vendum –
stjórnendaþjálfunar.
Í umræðum um
jafn réttismál takast
gjarnan á sjónarmið
um hvort kynja
hlutföll eða kvótar
eiga að ráða vali á
einstaklingum til að
sinna stjórnunar
störfum eða hvort
horfa eigi fyrst og
fremst til hæfni ein
staklinganna, óháð
kyni.