Frjáls verslun - 01.05.2011, Page 58
58 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
Björg Thorarensen,
deildarforseti lagadeildar
Háskóla Íslands.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir,
framkvæmdastjóri Eignastýr
ingar hjá Landsbanka Íslands.
Þuríður Backman, formaður
þingflokks Vinstri grænna.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri Atlantsolíu.
Elín Jónsdóttir, forstjóri
Bankasýslu ríkisins.
„Ingrid er einstök, það er sérlega gott að vinna með
henni og undir hennar stjórn,“ segir Gylfi Dalmann
Aðal steinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Ís
lands. „Ég þekki fáa einstaklinga sem eru jafn skipulagðir
og hún og hún er mjög glögg og minnug.
Ingrid er snillingur í að veita endurgjöf. Hún hefur
sérlega næmt auga fyrir íslenskunni sem er hennar annað
tungumál en hún hefur í mörg ár verið prófdómari í
meist araritgerðum í viðskiptafræðideild HÍ.
Ingrid gerir miklar kröfur til sjálfrar sín og annarra,
hún er nákvæm og samviskusöm. Sem stjórnandi gerir
hún miklar kröfur, er fljót að greina frávik og beina
mönnum inn á réttar brautir. Ég þekki fáar manneskjur
sem eru jafnduglegar að hrósa og Ingrid. Hún er frábær
vinnufélagi og stjórnandi. Eini gallinn sem ég kem auga
á er að þessir góðu eiginleikar hennar kalla stundum á
smámunasemi.“
(Ingrid situr í stjórn Heimilis og skóla, hún er meðlimur í
ritnefnd og síðustu tvö árin ritstjóri rímaritsins Impetus og hún
er tengiliður atvinnulífs í EUMAsamtökunum (European
Management Assistants) í Evrópu. Þá er Ingrid varaformaður
Lífs styrktarfélags og varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.)
Nákvæm og samviskusöm
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri
Þekkingarmiðlunar
Gylfi Dalmann Aðal steinsson, dósent við
viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.