Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 108
108 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, Global Blue, Iceland Refund, Félag atvinnurekenda og Kaupmanna
samtökin standa að Njarðarskildinum
sem eru hvatningarverðlaun ferðamanna
verslana í Reykjavík. Við tilnefninguna er
leitast við að verðlauna þá verslun sem
hefur náð hvað bestum söluárangri til
erlendra ferðamanna milli ára. Markaðs
og kynningarmál eru höfð í huga svo
sem hvað varðar auglýsingar, vef og útlit
almennt. Þá eru hafðir í huga þættir eins
og þjónustulund, afgreiðslutími, merkingar
um endurgreiðslu virðisauka auk útlits
og lýsingar verslunarinnar. Framkoma og
tungumálakunnátta starfsfólks er metin,
sem og þekking þess á vörunni.
Gullkúnst Helgu er fyrsta skartgripaversl
unin sem er þess heiðurs aðnjótandi að
hljóta Njarðarskjöldinn. Um fjölskyldu
fyrirtæki er að ræða og er það nú komið í
hóp stórra fyrirtækja sem höfðu áður hlotið
Njarðarskjöldinn.
ÍSlenSka náttúran
Langflestir þeirra skartgripa sem þar fást
eru hannaðir og smíðaðir á staðnum eða
um 90%. Íslensk náttúra og landslag hefur
veitt hönnuðum innblástur og má nefna að
bláir og grænir eðalsteinar skreyta suma
eðalmálmana; litir sem finna má í nátt
úrunni. Stíllinn er svolítið hrár og gróf ur
og má meðal annars rekja þau áhrif til
hrunsins. Jöklarnir hafa líka veitt innblást
ur. Gullsmiðirnir hjá Gullkúnst Helgu vilja
prófa nýja hluti og við veitingu Njarðar
skjaldarins, sem Jón Gnarr borgarstjóri
afhenti Helgu, var sagt að hún hefði lagt
grunninn að miklum vinsældum hraunsins
á Íslandi. Steinar og hraun úr íslenskri
náttúru eru punkurinn yfir iið í sumum
skartgripunum fyrir utan innflutta eðalsteina
eins og til dæmis demanta; hvíta, rauða,
bláa og græna.
hver einaSti hlutur er
einStakur og handSmÍðaður
Boðið er upp á sérsmíði að óskum viðskipta
vina. Þá er hjá Gullkúnst Helgu meðal
annars boðið upp á viðgerðir, hreinsun,
ródíumhúðun og perluþræðingar.
rúmlega tÍu SöluStaðir
Hjónin Helga Jónsdóttir og Hallgrímur T.
Sveinsson stofnuðu fyrirtækið árið 1993 og
í dag er verslunin í rúmgóðu húsnæði við
Laugaveg 13. Verslunin minnir svolítið á
listagallerí og eru skartgripirnir til sýnis í
glerborðum og skápum auk þess að skreyta
óvenjustóra gluggana. Skartgripir frá
Gullkúnst Helgu fást á rúmlega tíu öðrum
sölustöðum. Þar má nefna Epal í Leifsstöð,
Bláa lónið, nokkur hótel og Geysir Shop í
Haukadal.
Nýjasti sölustaðurinn er verslunin Epal í
tónlistarhúsinu Hörpu. Fyrirtækinu hlotn
aðist sá heiður að hanna hluti fyrir Hörp u .
Hannaðar voru tvær skartgripalínur.
Annars vegar er um að ræða skartgripi þar
sem lógó Hörpu er í aðalhlutverki og hins
vegar línu, sem samanstendur af hring og
hálsmenum, þar sem innblásturinn kemur
úr gluggum Hörpu.
Handhafi njarðarskjaldarins
Gullkúnst Helgu fékk í vetur Njarðarskjöldinn sem eru hvatningarverðlaun
ferðamannaverslana í Reykjavík. Áhrif íslenskrar náttúru má finna í skart-
gripunum sem seldir eru á rúmlega tíu sölustöðum. Þar á meðal er Epal í
tónlistarhúsinu Hörpu.
Gullkúnst Helgu
Jón Gnarr borgarstjóri og Helga Jónsdóttir við afhendingu Njarðarskjaldarins.
Fjarðaál